YouVersion लोगो
खोज आइकन

Markúsarguðspjall 11

11
Jesú fagnað
1Þegar þeir nálgast Jerúsalem og koma til Betfage og Betaníu við Olíufjallið sendir Jesús tvo lærisveina sína 2og segir við þá: „Farið í þorpið hér fram undan ykkur. Um leið og þið komið þangað munuð þið finna fola bundinn sem enginn hefur enn komið á bak. Leysið hann og komið með hann. 3Ef einhver spyr ykkur: Hvers vegna gerið þið þetta? þá svarið: Drottinn,#11.3 Eða: Eigandi hans. þarf hans við, hann sendir hann jafnskjótt aftur hingað.“
4Þeir fóru og fundu folann bundinn við dyr úti á strætinu og leystu hann. 5Nokkrir sem stóðu þar sögðu við þá: „Hvers vegna eruð þið að leysa folann?“
6Þeir svöruðu eins og Jesús hafði sagt og þeir létu þá fara. 7Síðan færðu þeir Jesú folann og lögðu á hann klæði sín en hann settist á bak. 8Og margir breiddu klæði sín á veginn en aðrir lim sem þeir höfðu skorið af trjánum. 9Þeir sem á undan fóru og eftir fylgdu hrópuðu: „Hósanna. Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins! 10Blessað sé hið komandi ríki föður vors Davíðs! Hósanna í hæstum hæðum!“
11Jesús fór inn í Jerúsalem og í helgidóminn. Þar leit hann yfir allt en þar sem komið var kvöld fór hann til Betaníu með þeim tólf.
Ekkert nema blöð
12Á leiðinni frá Betaníu morguninn eftir kenndi Jesús hungurs. 13Þá sá hann álengdar laufgað fíkjutré og fór að gá hvort hann fyndi nokkuð á því. En þegar hann kom að því fann hann ekkert nema blöð enda var ekki fíknatíð. 14Jesús sagði þá við tréð: „Enginn neyti framar ávaxtar af þér að eilífu!“ Þetta heyrðu lærisveinar hans.
Hús mitt bænahús
15Þeir komu til Jerúsalem og Jesús gekk í helgidóminn og tók að reka út þá sem voru að selja þar og kaupa og hratt um borðum víxlaranna og stólum dúfnasalanna. 16Og engum leyfði hann að bera neitt um helgidóminn. 17Og hann kenndi þeim og sagði: „Er ekki ritað: Hús mitt á að vera bænahús fyrir allar þjóðir? En þið hafið gert það að ræningjabæli.“
18Æðstu prestarnir og fræðimennirnir heyrðu þetta og leituðu fyrir sér hvernig þeir gætu ráðið hann af dögum. Þeim stóð ótti af honum því að allt fólkið hreifst mjög af kenningu hans.
19Þegar leið að kvöldi fóru þeir úr borginni.
Trúið á Guð
20Árla morguns fóru þeir hjá fíkjutrénu og sáu að það var visnað frá rótum. 21Pétur minntist þess sem gerst hafði og segir við hann: „Meistari, sjáðu! fíkjutréð, sem þú formæltir, er visnað.“
22Jesús svaraði þeim: „Trúið á Guð. 23Sannlega segi ég ykkur: Hver sem segir við fjall þetta: Lyft þér upp og steyp þér í hafið, og efar ekki í hjarta sínu heldur trúir að svo fari sem hann mælir, þá gerist það. 24Fyrir því segi ég ykkur: Ef þið biðjið Guð um eitthvað og treystið því að þið öðlist það, þá mun hann veita ykkur það. 25Og þegar þið eruð að biðja, þá fyrirgefið þeim sem hafa gert eitthvað á hlut ykkar til þess að faðir ykkar á himnum fyrirgefi einnig ykkur misgjörðir ykkar. [26Ef þið fyrirgefið ekki mun faðir ykkar á himnum ekki heldur fyrirgefa misgjörðir ykkar.],#11.26 Vantar í sum handrit.
Hver gaf þér það vald?
27Þeir koma aftur til Jerúsalem og þegar hann var á gangi í helgidóminum koma til hans æðstu prestarnir, fræðimennirnir og öldungarnir 28og segja við hann: „Með hvaða valdi gerir þú þetta? Hver gaf þér það vald að þú gerir þetta?“
29Jesús sagði við þá: „Ég vil leggja eina spurningu fyrir ykkur. Svarið henni og ég mun segja ykkur með hvaða valdi ég geri þetta. 30Hver fól Jóhannesi að skíra, var það Guð eða voru það menn? Svarið mér!“
31Þeir ráðguðust hver við annan um þetta og sögðu: „Ef við svörum: Það var Guð, spyr hann: Hví trúðuð þið honum þá ekki? 32Eða ættum við að svara: Það voru menn?“ − Það þorðu þeir ekki fyrir fólkinu því allir töldu að Jóhannes hefði verið sannur spámaður. 33Þeir svöruðu Jesú: „Við vitum það ekki.“
Jesús sagði við þá: „Ég segi ykkur þá ekki heldur hver fól mér að gera þetta.“

अहिले सेलेक्ट गरिएको:

Markúsarguðspjall 11: BIBLIAN07

हाइलाइट

शेयर गर्नुहोस्

कपी गर्नुहोस्

None

तपाईंका हाइलाइटहरू तपाईंका सबै यन्त्रहरूमा सुरक्षित गर्न चाहनुहुन्छ? साइन अप वा साइन इन गर्नुहोस्