Fyrsta Mósebók 10

10
Þjóðir heims
1Þetta er ættartala sona Nóa, Sems, Kams og Jafets. Þeim fæddust synir eftir flóðið.
2Synir Jafets voru Gómer, Magog, Madaí, Javan, Túbal, Mesek og Tíras.
3Synir Gómers voru Askenas, Rífat og Tógarma.
4Synir Javans voru Elísa, Tarsis, Kittím og Ródaním.
5Út frá niðjum Jafets kvísluðust eyþjóðirnar í löndum sínum, sérhver eftir tungu sinni, eftir ætt sinni og þjóðerni.
6Synir Kams voru Kús, Misraím, Pút og Kanaan.
7Synir Kúss voru Seba, Havíla, Sabta, Ragma og Sabteka. Synir Ragma voru Saba og Dedan.
8Kús gat Nimrod. Hann var fyrsti valdsmaðurinn á jörðinni. 9Hann var mikill veiðimaður fyrir Drottni. Því er máltækið: „Mikill veiðimaður fyrir Drottni eins og Nimrod.“ 10Babel, Erek, Akkad og Kalne í Sínearlandi voru stofninn í ríki hans. 11Frá því landi fór hann til Assýríu og byggði Níníve, Rehóbót-Ír, Kala 12og einnig Resen, hina miklu borg milli Níníve og Kala.
13Misraím gat Lúdíta, Anamíta, Lehabíta, Naftúhíta, 14Patrúsíta, Kaslúkíta og Kaftóríta en frá þeim eru Filistear komnir.
15Kanaan gat Sídon, frumgetinn son sinn, og Het 16og einnig Jebúsíta, Amoríta og Gírgasíta, 17Hevíta, Arkíta, Síníta, 18Arvadíta, Semaríta og Hamatíta. Og síðan breiddust ættflokkar Kanverja út. 19Landamerki Kanverja eru frá Sídon um Gerar og allt til Gasa. Þá er stefnan um Sódómu og Gómorru og Adma og Sebojím, allt til Lasa.
20Þessir voru synir Kams eftir ætt þeirra, tungu, löndum og þjóðerni.
21Sem fæddust einnig synir. Hann var ættfaðir allra Eberssona og eldri bróðir Jafets.
22Synir Sems voru Elam, Assúr, Arpaksad, Lúd og Aram.
23Synir Arams voru Ús, Húl, Geter og Mas.
24Arpaksad gat Sela og Sela gat Eber.
25Eber fæddust tveir synir. Hét annar Peleg, því að á hans dögum greindist fólkið á jörðinni, en bróðir hans hét Joktan.
26Joktan gat Almódad, Selef, Hasarmavet, Jara, 27Hadóram, Úsal, Dikla, 28Óbal, Abímael, Seba, 29Ófír, Havíla og Jóbab. Allir þessir voru synir Joktans. 30Heimkynni þeirra voru frá Mesa um Sefar og allt til austurfjallanna.
31Þessir voru synir Sems eftir ætt þeirra, tungu, löndum þeirra og þjóðerni.
32Þessar voru ættir sona Nóa eftir uppruna þeirra og þjóðerni. Og frá þeim kvísluðust þjóðirnar út um jörðina eftir flóðið.

Sorotan

Berbagi

Salin

None

Ingin menyimpan sorotan di semua perangkat Anda? Daftar atau masuk