YouVersion Logo
Search Icon

Rómverjabréfið 6

6
Skírð til nýs lífs
1Hvað merkir nú þetta? Eigum við að vera áfram í syndinni til þess að náðin verði því meiri? 2Fjarri fer því! Við sem dóum syndinni, hvernig ættum við að lifa áfram í henni? 3Eða vitið þið ekki að við öll, sem skírð erum til Krists Jesú, erum skírð til dauða hans? 4Við erum því dáin og greftruð með honum í skírninni. Og eins og faðirinn vakti Krist frá dauðum með dýrðarmætti sínum, eins eigum við að lifa nýju lífi.
5Fyrst við erum samgróin honum með því að deyja líkt og hann eigum við einnig að vera samgróin honum með því að rísa upp líkt og hann. 6Við vitum að okkar gamli maður dó með honum á krossi til þess að líkami syndarinnar yrði að engu og við værum aldrei framar þrælar syndarinnar. 7Dauður maður er leystur frá syndinni.
8Ef við erum dáin með Kristi trúum við því að við munum og með honum lifa. 9Við vitum að Kristur, upp vakinn frá dauðum, deyr ekki framar. Dauðinn drottnar ekki lengur yfir honum. 10Með dauða sínum dó hann frá syndinni í eitt skipti fyrir öll en lífi sínu lifir hann Guði. 11Þannig skuluð og þið álíta sjálf ykkur vera dáin frá syndinni en lifandi Guði í Kristi Jesú.
12Látið því ekki syndina ríkja í dauðlegum líkama ykkar svo að þið hlýðnist girndum hans. 13Ljáið ekki heldur syndinni limi ykkar sem ranglætisvopn. Nei, ljáið heldur Guði sjálf ykkur lifnuð frá dauðum og limi ykkar sem réttlætisvopn. 14Synd skal ekki ríkja yfir ykkur þar eð þið eruð ekki undir lögmálinu heldur undir náðinni.
Leyst frá syndinni
15Eða hvað? Eigum við að syndga fyrst við erum ekki undir lögmálinu heldur náðinni? Fjarstæða! 16Vitið þið ekki að ef þið gerist ánauðug þý einhvers eruð þið nauðbeygð að hlýða honum? Annaðhvort hlýðið þið syndinni sem leiðir til dauða eða Guði sem leiðir til lífs í réttlæti. 17En þökk sé Guði. Þið, sem voruð þrælar syndarinnar, urðuð af hjarta hlýðin þeirri kenningu sem ykkur var gefin. 18Nú eruð þið leyst frá syndinni og bundin réttlætinu, 19svo að ég noti líkingu úr mannlífinu, sökum veikleika ykkar. Eins og þið fyrrum létuð limina þræla fyrir óhrein öfl og siðleysi undir ólögum skuluð þið nú láta þá þjóna réttlæti Guðs og helgast honum.
20Þegar þið voruð þrælar syndarinnar lutuð þið ekki yfirráðum réttlætisins. 21Hvaða ávöxtu höfðuð þið af því? Þá eina sem þið finnið nú að eru til skammar því að þeir leiða að lokum til dauða. 22En nú eruð þið leyst frá syndinni og bundin Guði. Það ber ávöxt til helgunar og eilífs lífs að lokum. 23Því að laun syndarinnar er dauði en náðargjöf Guðs er eilíft líf í Kristi Jesú, Drottni vorum.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in