Opinberunarbókin 5
5
Bókin og lambið
1Í hægri hendi hans, er í hásætinu sat, sá ég bók#5.1 Hér er átt við bók sem er vafin saman − roðul − og skrifað bæði á ytri og innri hlið hennar. sem ritað var á báðum megin og innsiglaða sjö innsiglum. 2Og ég sá sterkan engil sem kallaði hárri röddu: „Hver er þess verður að ljúka upp bókinni og rjúfa innsigli hennar?“ 3En enginn var sá á himni eða jörðu eða undir jörðunni sem lokið gæti upp bókinni og litið í hana. 4Og ég grét stórum af því að enginn reyndist maklegur að ljúka henni upp og líta í hana. 5En einn af öldungunum segir við mig: „Grát þú eigi! Sjá, sigrað hefur ljónið af Júda ættkvísl, rótarkvistur Davíðs. Hann getur lokið upp bókinni og rofið innsigli hennar sjö.“
6Þá sá ég lamb, sem virtist hafa verið slátrað, standa fyrir miðju hásætinu milli veranna fjögurra og öldunganna. Það hafði sjö horn og sjö augu, og eru það sjö andar Guðs sem eru sendir út um alla jörðina. 7Lambið kom og tók við bókinni úr hægri hendi hans er í hásætinu sat. 8Þegar það hafði tekið við henni féllu verurnar fjórar og öldungarnir tuttugu og fjórir niður frammi fyrir lambinu. Þeir höfðu hver um sig hörpu og héldu á gullskálum fullum af reykelsi. Það eru bænir hinna heilögu. 9Og þeir sungu nýjan söng:
Verður ert þú að taka við bókinni
og rjúfa innsigli hennar
því að þér var slátrað
og með blóði þínu keyptir þú Guði til handa menn
af sérhverri kynkvísl og tungu, lýð og þjóð.
10Og þú gerðir þá að konungum og prestum Guði vorum til handa.
Og þeir munu ríkja á jörðunni.
11Þá sá ég og heyrði raust margra engla sem stóðu hringinn í kringum hásætið og verurnar og öldungana og tala þeirra var tíu þúsundir tíu þúsunda og þúsundir þúsunda. 12Þeir sögðu með hárri röddu:
Maklegt er lambið slátraða
að fá máttinn og ríkdóminn, visku og kraft,
heiður og dýrð og lofgjörð.
13Þá heyrði ég að allt sem skapað er á himni og jörðu, undir jörðunni og á hafinu, og allt sem í þeim er, tók undir og sagði:
Honum, sem í hásætinu situr, og lambinu,
sé lof og heiður, dýrð og kraftur um aldir alda.
14Og verurnar fjórar sögðu: „Amen.“ Og öldungarnir féllu fram og tilbáðu.
Currently Selected:
Opinberunarbókin 5: BIBLIAN07
Highlight
Share
Copy

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007