Sálmarnir 112
112
1Hallelúja.
Sæll er sá sem óttast Drottin
og gleðst yfir boðum hans.
2Niðjar hans verða voldugir í landinu,
ætt réttvísra mun blessun hljóta.
3Nægtir og auðæfi eru í húsi hans
og réttlæti hans stendur stöðugt að eilífu.
4Réttvísum skín ljós í myrkri,
mildum, miskunnsömum og réttlátum.
5Vel farnast þeim sem lánar fúslega
og annast málefni sín af réttvísi
6því að hann mun aldrei haggast.
Minning hins réttláta er ævarandi,
7hann þarf ekki að kvíða ótíðindum,
hjarta hans er stöðugt, hann treystir Drottni.
8Hjarta hans er óhult, hann óttast ekki;
skjótt fær hann að líta fall óvina sinna.
9Hann hefur miðlað mildilega og gefið fátækum,
réttlæti hans stendur stöðugt að eilífu,
horn hans er hafið upp með sæmd.
10Hinn óguðlegi sér það og honum gremst,
hann gnístir tönnum og ferst.
Óskir óguðlegra rætast ekki.
Currently Selected:
Sálmarnir 112: BIBLIAN07
Highlight
Share
Copy

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007