YouVersion Logo
Search Icon

Filippíbréfið 2

2
Verið með sama hugarfari og Kristur
1Fyrst Kristur veitir kjark, fyrst kærleikur hans uppörvar, fyrst andi hans skapar samfélag, fyrst þar ríkir hlýja og samúð 2gerið þá gleði mína fullkomna með því að vera einhuga, hafa sama kærleika, einn hug og eina sál. 3Gerið ekkert af eigingirni eða hégómagirnd. Verið lítillát og metið hvert annað meira en ykkur sjálf. 4Lítið ekki aðeins á eigin hag heldur einnig annarra. 5Verið með sama hugarfari sem Kristur Jesús var.
6Hann var í Guðs mynd.
En hann fór ekki með það sem feng sinn að vera Guði líkur.
7Hann svipti sig öllu, tók á sig þjóns mynd
og varð mönnum líkur.
Hann kom fram sem maður,
8lægði sjálfan sig
og varð hlýðinn allt til dauða,
já, dauðans á krossi.
9Fyrir því hefur og Guð
hátt upp hafið hann
og gefið honum nafnið,
sem hverju nafni er æðra,
10til þess að fyrir nafni Jesú
skuli hvert kné beygja sig á himni, jörðu og undir jörðu
11og sérhver tunga játa Guði föður til dýrðar:
Jesús Kristur er Drottinn.
Eins og ljós í heiminum
12Þess vegna, mín elskuðu, sem ætíð hafið verið hlýðin, vinnið nú að sáluhjálp ykkar með ugg og ótta eins og þegar ég var hjá ykkur, því fremur nú þegar ég er fjarri. 13Því að það er Guð sem verkar í ykkur bæði að vilja og að framkvæma sér til velþóknunar.
14Gerið allt án þess að mögla og hika 15til þess að þið verðið óaðfinnanleg og hrein, flekklaus Guðs börn meðal rangsnúinnar og gerspilltrar kynslóðar sem þið skínið hjá eins og ljós í heiminum. 16Haldið fast við orð lífsins mér til hróss á degi Krists. Þá hef ég ekki hlaupið til einskis né erfiðað til ónýtis.
17Enda þótt blóði mínu verði úthellt við fórnarþjónustu mína þegar ég ber trú ykkar fram fyrir Guð, þá gleðst ég og samgleðst ykkur öllum. 18Af hinu sama skuluð þið einnig gleðjast og samgleðjast mér.
Tveir trúir samverkamenn
19En ég vona að Drottinn Jesús geri mér bráðum fært að senda Tímóteus til ykkar til þess að mér verði einnig hughægra þá er ég fæ að vita um hagi ykkar. 20Ég hef engan honum líkan sem lætur sér eins einlæglega annt um hagi ykkar. − 21Allir leita þess sem sjálfra þeirra er en ekki þess sem Krists Jesú er. − 22En þið vitið hvernig hann hefur reynst, að hann hefur þjónað að boðun fagnaðarerindisins með mér eins og barn með föður sínum. 23Ég vona að geta sent hann jafnskjótt og ég sé hvað um mig verður. 24En ég ber það traust til Drottins að ég muni og bráðum koma sjálfur.
25Ég taldi það og nauðsynlegt að senda til ykkar Epafrodítus, bróður minn, samverkamann og samherja, sem þið senduð til að annast um mig. 26Hann hefur þráð ykkur öll og liðið illa út af því að þið höfðuð heyrt að hann hefði orðið sjúkur. 27Já, sjúkur varð hann, að dauða kominn, en Guð miskunnaði honum og ekki einungis honum heldur og mér til þess að ég skyldi eigi hafa hryggð á hryggð ofan. 28Þess vegna er mér enn hugleiknara að senda hann heim til þess að þið verðið aftur glöð er þið sjáið hann og mér verði hughægra. 29Takið því á móti honum í nafni Drottins með miklum fögnuði og hafið slíka menn í heiðri. 30Hann var að vinna fyrir Krist. Þess vegna var hann að dauða kominn. Hann lagði líf sitt í hættu til þess að bæta upp þá þjónustu sem þið gátuð ekki veitt mér.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy