1
Filippíbréfið 2:3-4
Biblían (2007)
BIBLIAN07
Gerið ekkert af eigingirni eða hégómagirnd. Verið lítillát og metið hvert annað meira en ykkur sjálf. Lítið ekki aðeins á eigin hag heldur einnig annarra.
Compare
Explore Filippíbréfið 2:3-4
2
Filippíbréfið 2:5
Verið með sama hugarfari sem Kristur Jesús var.
Explore Filippíbréfið 2:5
3
Filippíbréfið 2:6-8
Hann var í Guðs mynd. En hann fór ekki með það sem feng sinn að vera Guði líkur. Hann svipti sig öllu, tók á sig þjóns mynd og varð mönnum líkur. Hann kom fram sem maður, lægði sjálfan sig og varð hlýðinn allt til dauða, já, dauðans á krossi.
Explore Filippíbréfið 2:6-8
4
Filippíbréfið 2:13
Því að það er Guð sem verkar í ykkur bæði að vilja og að framkvæma sér til velþóknunar.
Explore Filippíbréfið 2:13
5
Filippíbréfið 2:9-11
Fyrir því hefur og Guð hátt upp hafið hann og gefið honum nafnið, sem hverju nafni er æðra, til þess að fyrir nafni Jesú skuli hvert kné beygja sig á himni, jörðu og undir jörðu og sérhver tunga játa Guði föður til dýrðar: Jesús Kristur er Drottinn.
Explore Filippíbréfið 2:9-11
6
Filippíbréfið 2:14-15
Gerið allt án þess að mögla og hika til þess að þið verðið óaðfinnanleg og hrein, flekklaus Guðs börn meðal rangsnúinnar og gerspilltrar kynslóðar sem þið skínið hjá eins og ljós í heiminum.
Explore Filippíbréfið 2:14-15
7
Filippíbréfið 2:12
Þess vegna, mín elskuðu, sem ætíð hafið verið hlýðin, vinnið nú að sáluhjálp ykkar með ugg og ótta eins og þegar ég var hjá ykkur, því fremur nú þegar ég er fjarri.
Explore Filippíbréfið 2:12
Home
Bible
Plans
Videos