Markúsarguðspjall 9
9
1Og Jesús sagði: „Sannlega segi ég ykkur: Nokkrir þeirra sem hér standa munu eigi deyja fyrr en þeir sjá Guðs ríki komið með krafti.“
Þessi er minn elskaði sonur
2Eftir sex daga tekur Jesús með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes og fer með þá upp á hátt fjall að þeir væru einir saman. Þar ummyndaðist hann fyrir augum þeirra 3og klæði hans urðu fannhvít og skínandi og fær enginn bleikir á jörðu svo hvítt gert. 4Og Elía og Móse birtust þeim og voru þeir á tali við Jesú. 5Þá tekur Pétur til máls og segir við Jesú: „Meistari, gott er að við erum hér. Gerum þrjár tjaldbúðir, þér eina, Móse eina og Elía eina.“ 6Hann vissi ekki hvað hann átti að segja enda urðu þeir mjög skelfdir.
7Þá kom ský og skyggði yfir þá og rödd kom úr skýinu: „Þessi er minn elskaði sonur, hlýðið á hann!“ 8Og jafnskjótt litu lærisveinarnir í kringum sig og sáu engan framar hjá sér nema Jesú einan.
9Á leiðinni ofan fjallið bannaði Jesús þeim að segja nokkrum frá því er þeir höfðu séð fyrr en Mannssonurinn væri risinn upp frá dauðum.
10Þeir festu orðin í minni og ræddu um hvað væri að rísa upp frá dauðum. 11Og þeir spurðu hann: „Hví segja fræðimennirnir að Elía eigi fyrst að koma?“
12Jesús svaraði þeim: „Víst kemur Elía fyrst og færir allt í lag. En hvernig er ritað um Mannssoninn? Á hann ekki margt að líða og verða smáður? 13En ég segi ykkur: Elía er kominn og þeir gerðu honum allt sem þeir vildu, eins og ritað er um hann.“
Hjálpa þú vantrú minni
14Þegar þeir komu til lærisveinanna sáu þeir mannfjölda mikinn kringum þá og fræðimenn að þrátta við þá. 15En um leið og fólkið sá hann sló þegar felmtri á menn og þeir hlupu til og heilsuðu Jesú. 16Hann spurði þá: „Um hvað eruð þið að þrátta við þá?“
17En einn úr mannfjöldanum svaraði honum: „Meistari, ég færði til þín son minn sem er haldinn illum anda svo að hann getur ekki talað. 18Hvar sem andinn grípur hann slengir hann honum flötum og hann froðufellir, gnístir tönnum og stirðnar upp. Ég bað lærisveina þína að reka hann út en þeir gátu það ekki.“
19Jesús svarar þeim: „Þú vantrúa kynslóð, hversu lengi á ég að vera hjá ykkur? Hversu lengi á ég að umbera ykkur? Færið hann til mín.“
20Þeir færðu hann þá til Jesú en um leið og andinn sá hann teygði hann drenginn ákaflega, hann féll til jarðar, veltist um og froðufelldi.
21Jesús spurði þá föður hans: „Hve lengi hefur honum liðið svo?“
Faðirinn sagði: „Frá bernsku. 22Og oft hefur illi andinn kastað honum bæði í eld og vatn til að fyrirfara honum. En ef þú getur nokkuð þá sjá aumur á okkur og hjálpa okkur.“
23Jesús sagði við hann: „Ef þú getur! Sá getur allt sem trúir.“
24Jafnskjótt hrópaði faðir sveinsins: „Ég trúi, hjálpa þú vantrú minni.“
25Nú sér Jesús að mannfjöldi þyrpist að. Þá hastar hann á óhreina andann og segir: „Þú daufdumbi andi, ég býð þér, far út af honum og kom aldrei framar í hann.“
26Þá æpti andinn, teygði hann mjög og fór en sveinninn varð sem nár svo að flestir sögðu: „Hann er dáinn.“ 27En Jesús tók í hönd honum og reisti hann upp og hann stóð á fætur.
28Þegar Jesús var kominn inn og orðinn einn með lærisveinum sínum spurðu þeir hann: „Hvers vegna gátum við ekki rekið hann út?“
29Jesús mælti: „Þetta kyn verður eigi út rekið nema með bæn.“
Þeir skildu ekki
30Þeir héldu nú brott þaðan og fóru um Galíleu en Jesús vildi ekki að neinn vissi það 31því að hann var að kenna lærisveinum sínum. Hann sagði þeim: „Mannssonurinn verður framseldur í manna hendur og þeir munu lífláta hann en eftir þrjá daga mun hann rísa upp.“
32En þeir skildu ekki það sem hann sagði og þorðu ekki að spyrja hann.
Hver er mestur?
33Þeir komu til Kapernaúm. Þegar þeir voru komnir inn spurði Jesús þá: „Hvað voruð þið að ræða á leiðinni?“
34En þeir þögðu. Þeir höfðu verið að ræða það sín á milli á leiðinni hver væri mestur.
35Hann settist niður, kallaði á þá tólf og sagði við þá: „Hver sem vill vera fremstur sé síðastur allra og þjónn allra.“ 36Og hann tók lítið barn, setti það meðal þeirra, tók það sér í faðm og sagði við þá: 37„Hver sem tekur við einu slíku barni í mínu nafni tekur við mér og hver sem tekur við mér tekur ekki aðeins við mér heldur og við þeim er sendi mig.“
Varnið þess ekki
38Jóhannes sagði við hann: „Meistari, við sáum mann reka út illa anda í þínu nafni og vildum við varna honum þess af því að hann fylgdi okkur ekki.“
39Jesús sagði: „Varnið honum þess ekki því að enginn gerir kraftaverk í mínu nafni og fer þegar á eftir að tala illa um mig. 40Sá sem er ekki á móti okkur er með okkur. 41Sannlega segi ég ykkur að hver sem gefur ykkur bikar vatns að drekka vegna þess að þið hafið játast Kristi, hann mun alls ekki missa af launum sínum.
Hverju skal til kosta?
42Hverjum þeim sem tælir til falls einn af þessum smælingjum sem trúa væri betra að vera varpað í hafið með mylnustein um hálsinn. 43Ef hönd þín tælir þig til falls þá sníð hana af. Betra er þér handarvana inn að ganga til lífsins en hafa báðar hendur og fara til helvítis, í hinn óslökkvanda eld. [44Þar sem ormarnir deyja ekki og eldurinn slokknar ekki.]#9.44 Vantar í sum handrit. 45Ef fótur þinn tælir þig til falls þá sníð hann af. Betra er þér höltum inn að ganga til lífsins en hafa báða fætur og verða kastað í helvíti. [46Þar sem ormarnir deyja ekki og eldurinn slokknar ekki.]#9.46 Vantar í sum handrit. 47Og ef auga þitt tælir þig til falls þá ríf það úr. Betra er þér eineygðum inn að ganga í Guðs ríki en hafa bæði augu og verða kastað í helvíti 48þar sem ormarnir deyja ekki og eldurinn slokknar ekki. 49Sérhver mun eldi saltast. 50Saltið er gott en ef saltið missir seltuna, með hverju viljið þið þá krydda það? Hafið salt í sjálfum ykkur og haldið frið ykkar á milli.“
Currently Selected:
Markúsarguðspjall 9: BIBLIAN07
Highlight
Share
Copy
Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007