YouVersion Logo
Search Icon

Markúsarguðspjall 6

6
Í Nasaret
1Þaðan fór Jesús og kom í ættborg sína og lærisveinar hans fylgdu honum. 2Þegar hvíldardagur var kominn tók hann að kenna í samkundunni. Fjöldinn sem á hlýddi undraðist stórum. Menn sögðu: „Hvaðan kemur honum þetta? Hver er sú speki sem honum er gefin og hvernig getur hann gert slík kraftaverk? 3Er þetta ekki smiðurinn, sonur Maríu, bróðir þeirra Jakobs, Jóse, Júdasar og Símonar? Og eru ekki systur hans hér hjá okkur?“ Og þeir hneyksluðust á honum.
4Þá sagði Jesús: „Hvergi er spámaður minna metinn en í landi sínu, með frændfólki sínu og heimamönnum.“ 5Og hann gat ekki gert þar neitt kraftaverk nema hann lagði hendur yfir nokkra sjúka og læknaði þá. 6Og hann undraðist vantrú þeirra.
Postular sendir
Jesús fór nú um þorpin þar í kring og kenndi. 7Og hann kallaði þá tólf til sín, tók að senda þá út, tvo og tvo, og gaf þeim vald yfir óhreinum öndum. 8Hann bauð þeim að taka ekkert til ferðarinnar annað en staf, ekki brauð, mal né peninga í belti. 9Þeir skyldu hafa skó á fótum en ekki tvo kyrtla. 10Og hann sagði við þá: „Hvar sem þið fáið inni, þar sé aðsetur ykkar uns þið leggið upp að nýju. 11En hvar sem ekki er tekið við ykkur né á ykkur hlýtt, þaðan skuluð þið fara og hrista dustið af fótum ykkar þeim til viðvörunar.“
12Þeir lögðu af stað og prédikuðu að menn skyldu taka sinnaskiptum, 13ráku út marga illa anda og smurðu marga sjúka með olíu og læknuðu þá.
Heródes uggandi
14Heródes konungur#6.14 Heródes Antipas réð ríkjum í Galíleu frá 4 f.Kr. til 39 e.Kr. frétti þetta enda var nafn Jesú orðið víðfrægt. Sögðu sumir: „Jóhannes skírari er risinn upp frá dauðum, þess vegna gerir hann þessi kraftaverk.“
15Aðrir sögðu: „Hann er Elía,“ enn aðrir: „Hann er spámaður eins og spámennirnir fornu.“
16Þegar Heródes heyrði þetta sagði hann: „Jóhannes, sem ég lét hálshöggva, hann er upp risinn.“
17En Heródes hafði sent menn að taka Jóhannes höndum, fjötra hann og varpa í fangelsi vegna Heródíasar, konu Filippusar, bróður síns. Hann hafði gengið að eiga hana 18en Jóhannes hafði sagt við Heródes: „Þú mátt ekki eiga konu bróður þíns.“
19Þess vegna lagði Heródías fæð á Jóhannes og vildi deyða hann en gat ekki 20því að Heródes hafði beyg af honum og verndaði hann þar eð hann vissi að hann var maður réttlátur og heilagur. Hann komst í mikinn vanda þegar hann hlýddi á mál hans en þó var honum ljúft að hlusta á hann.
21En nú kom hentugur dagur. Á afmæli sínu gerði Heródes veislu gæðingum sínum, hershöfðingjum og fyrirmönnum Galíleu. 22Dóttir Heródíasar gekk þar inn og sté dans. Hún hreif Heródes og gesti hans og konungur sagði við stúlkuna: „Bið mig hvers þú vilt og mun ég veita þér.“
23Og Heródes sór henni: „Hvað sem þú biður um það mun ég veita þér, allt að helmingi ríkis míns.“
24Hún gekk þá út og spurði móður sína: „Um hvað á ég að biðja?“
Hún svaraði: „Höfuð Jóhannesar skírara.“
25Jafnskjótt skundaði hún til konungs og bað hann: „Gef mér þegar á fati höfuð Jóhannesar skírara.“
26Konungur varð hryggur við en vegna eiðsins og gesta sinna vildi hann ekki synja henni þessa 27heldur sendi þegar böðul og bauð að færa sér höfuð Jóhannesar. Hann fór og hjó af höfuð Jóhannesar í fangelsinu, 28kom með höfuð hans á fati og færði stúlkunni en stúlkan móður sinni. 29Þegar lærisveinar hans fréttu þetta komu þeir, tóku lík Jóhannesar og lögðu í gröf.
Jesús mettar
30Postularnir komu nú aftur til Jesú og sögðu honum frá öllu því er þeir höfðu gert og kennt. 31Hann sagði við þá: „Komið nú á óbyggðan stað, svo að við séum einir saman, og hvílist um stund.“ En fjöldi fólks var stöðugt að koma og fara svo að þeir höfðu ekki einu sinni næði til að matast.
32Og þeir fóru á bátnum einir saman á óbyggðan stað. 33Menn sáu þá fara og margir þekktu þá og nú streymdi fólk þangað gangandi úr öllum borgunum og varð á undan þeim. 34Þegar Jesús steig á land sá hann þar margt manna og hann kenndi í brjósti um þá því að þeir voru sem sauðir er engan hirði hafa. Og hann kenndi þeim margt. 35Þá er mjög var áliðið dags komu lærisveinarnir að máli við Jesú og sögðu: „Hér er engin mannabyggð og langt á daginn liðið. 36Lát fólkið fara svo að það geti náð til býla og þorpa hér í kring og keypt sér eitthvað til matar.“
37En Jesús svaraði þeim: „Gefið því sjálfir að eta.“
Þeir svara honum: „Eigum við að fara og kaupa brauð fyrir tvö hundruð denara#6.37 Einn denar var venjuleg daglaun landbúnaðarverkamanns, sbr. Matt 20.2. og gefa því að eta?“
38Jesús spyr þá: „Hve mörg brauð hafið þið? Farið og gætið að.“
Þeir hugðu að og svöruðu: „Fimm brauð og tvo fiska.“
39Þá bauð hann þeim að láta alla setjast í grængresið og skipta sér í hópa. 40Fólkið settist niður í flokkum, hundrað í sumum en fimmtíu í öðrum.
41Og Jesús tók brauðin fimm og fiskana tvo, leit upp til himins, þakkaði Guði, braut brauðin og gaf lærisveinunum til að bera fram fyrir mannfjöldann. Fiskunum tveim skipti hann og meðal allra. 42Og allir neyttu og urðu mettir. 43Þeir tóku saman brauðbitana er fylltu tólf körfur, svo og fiskleifarnar. 44En þeir sem brauðanna neyttu voru fimm þúsund karlmenn.
Það er ég
45Tafarlaust knúði Jesús lærisveina sína að fara í bátinn og halda á undan yfir til Betsaídu meðan hann sendi fólkið brott. 46Og þá er hann hafði kvatt það fór hann til fjalls að biðjast fyrir. 47Þegar kvöld var komið var báturinn á miðju vatni en Jesús einn á landi. 48Hann sá að þeim var þungur róðurinn því að vindur var á móti þeim og er langt var liðið nætur#6.48 Orðrétt: um fjórðu næturvöku, þ.e. milli kl. þrjú og sex að nóttu. kemur hann til þeirra gangandi á vatninu og ætlar fram hjá þeim. 49Þegar þeir sáu Jesú ganga á vatninu hugðu þeir að þar færi vofa og æptu upp yfir sig. 50Því að allir sáu þeir hann og urðu skelfdir.
En Jesús mælti jafnskjótt til þeirra: „Verið hughraustir, það er ég, verið óhræddir.“ 51Og hann sté í bátinn til þeirra og lægði þá vindinn. Og þeir urðu öldungis agndofa 52enda höfðu þeir ekki skilið það sem gerst hafði með brauðin, hjörtu þeirra voru blind.
Þeir urðu heilir
53Þegar þeir höfðu náð yfir um komu þeir að landi við Genesaret og lögðu þar að. 54Um leið og þeir stigu úr bátnum þekktu menn Jesú. 55Og fólk tók að streyma fram og aftur um allt það hérað og bera sjúklinga í burðarrekkjum hvert þangað sem það heyrði að hann væri. 56Og hvar sem Jesús kom í þorp, borgir eða bæi lögðu menn sjúka á torgin og báðu hann að þeir fengju rétt að snerta fald klæða hans og allir þeir sem snertu hann urðu heilir.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in