YouVersion Logo
Search Icon

Markúsarguðspjall 16

16
Hann er upp risinn
1Þá er hvíldardagurinn var liðinn keyptu þær María Magdalena, María móðir Jakobs og Salóme ilmsmyrsl til að fara og smyrja hann. 2Og mjög árla hinn fyrsta dag vikunnar, um sólarupprás, koma þær að gröfinni. 3Þær sögðu sín á milli: „Hver mun velta fyrir okkur steininum frá grafarmunnanum?“ 4En þegar þær líta upp sjá þær að steininum hafði verið velt frá en hann var mjög stór. 5Þær stíga inn í gröfina og sjá ungan mann sitja hægra megin, klæddan hvítri skikkju, og þær skelfdust.
6En hann sagði við þær: „Skelfist
eigi. Þér leitið að Jesú frá Nasaret, hinum krossfesta. Hann er upp risinn, hann er ekki hér. Sjáið þarna staðinn þar sem þeir lögðu hann. 7En farið og segið lærisveinum hans og Pétri: Hann fer á undan yður til Galíleu. Þar munuð þér sjá hann eins og hann sagði yður.“
8Þær fóru út og flýðu frá gröfinni því ótti og ofboð var yfir þær komið. Þær sögðu engum frá neinu því þær voru hræddar.
Fagnaðarboð öllu mannkyni
[9Þegar Jesús var upp risinn árla hinn fyrsta dag vikunnar birtist hann fyrst Maríu Magdalenu en út af henni hafði hann rekið sjö illa anda. 10Hún fór og kunngjörði þetta þeim er með honum höfðu verið og hörmuðu nú og grétu.
11Þá er þeir heyrðu að Jesús væri lifandi og hún hefði séð hann trúðu þeir ekki.
12Eftir þetta birtist Jesús í annarri mynd tveimur þeirra þar sem þeir voru á göngu á leið út í sveit. 13Þeir sneru við og kunngjörðu hinum en þeir trúðu þeim ekki heldur.
14Seinna birtist Jesús þeim ellefu þegar þeir sátu til borðs og ávítaði þá fyrir vantrú þeirra og þverúð hjartans, að þeir hefðu ekki trúað þeim er sáu hann upp risinn. 15Jesús sagði við þá: „Farið út um allan heim og prédikið fagnaðarerindið öllu mannkyni. 16Sá sem trúir og skírist mun hólpinn verða en sá sem trúir ekki mun dæmdur verða. 17En þessi tákn munu fylgja þeim er trúa: Í mínu nafni munu þeir reka út illa anda, tala nýjum tungum, 18taka upp höggorma og þó að þeir drekki eitthvað banvænt mun þeim ekki verða meint af. Yfir sjúka munu þeir leggja hendur og þeir verða heilir.“
19Þegar nú Drottinn Jesús hafði talað við þá var hann upp numinn til himins og settist til hægri handar Guði. 20Þeir fóru og prédikuðu hvarvetna og Drottinn var í verki með þeim og staðfesti boðun þeirra með táknum sem henni fylgdu.]#16.20 Vantar í sum handrit.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy