YouVersion Logo
Search Icon

Lúkasarguðspjall 1

1
1Margir hafa tekið sér fyrir hendur að rekja sögu þeirra viðburða, er gerst hafa meðal okkar, 2samkvæmt því sem þeir menn hafa flutt okkur er frá öndverðu voru sjónarvottar og urðu þjónar orðsins. 3Nú hef ég athugað kostgæfilega allt þetta frá upphafi og réð því einnig af að rita samfellda sögu fyrir þig, göfugi Þeófílus, 4svo að þú megir ganga úr skugga um sannindi þeirra frásagna sem þú hefur fræðst um.
Bæn heyrð
5Á dögum Heródesar, konungs í Júdeu, var uppi prestur nokkur að nafni Sakaría, af sveit Abía. Kona hans var og af ætt Arons og hét Elísabet. 6Þau voru bæði réttlát fyrir Guði og lifðu réttlát eftir öllum boðum og ákvæðum Drottins. 7En þau áttu ekki barn því að Elísabet var óbyrja og bæði voru þau hnigin að aldri.
8Eitt sinn er röðin kom að sveit Sakaría og hann þjónaði sem prestur í musterinu, 9þá féll það í hlut hans, samkvæmt venju prestdómsins, að ganga inn í musteri Drottins og fórna reykelsi. 10En allur fólksfjöldinn var fyrir utan á bæn meðan reykelsisfórnin var færð.
11Birtist honum þá engill Drottins sem stóð hægra megin við reykelsisaltarið. 12Sakaría varð hverft við sýn þessa og ótta sló á hann. 13En engillinn sagði við hann: „Óttast þú eigi, Sakaría, því að bæn þín er heyrð. Elísabet kona þín mun fæða þér son og þú skalt láta hann heita Jóhannes. 14Og þér mun veitast gleði og fögnuður og margir munu gleðjast vegna fæðingar hans 15því að hann mun verða mikill fyrir augliti Drottins. Aldrei mun hann drekka vín né áfengan drykk en fyllast heilögum anda þegar frá móðurlífi. 16Og mörgum Ísraelsmönnum mun hann snúa til Drottins, Guðs þeirra. 17Og hann mun ganga fyrir honum í anda og krafti Elía, til að snúa hjörtum feðra til barna sinna og gefa óhlýðnum réttlátt hugarfar og búa Drottni altygjaðan lýð.“
18Sakaría sagði við engilinn: „Hvernig get ég vitað þetta? Ég er gamall og kona mín hnigin að aldri.“
19En engillinn svaraði honum: „Ég er Gabríel sem stend frammi fyrir Guði og Guð sendi mig til að tala við þig og flytja þér þessa gleðifregn. 20En nú verður þú mállaus og getur ekki talað til þess dags er þetta kemur fram vegna þess að þú trúðir ekki orðum mínum. En þau munu rætast á sínum tíma.“
21Og fólkið beið eftir Sakaría og undraðist hve honum dvaldist í musterinu. 22En er hann kom út gat hann ekki talað og skildu menn að hann hafði séð sýn í musterinu. Hann gaf þeim bendingar og var mállaus áfram. 23Og er þjónustudagar hans voru liðnir fór hann heim til sín.
24En eftir þessa daga varð Elísabet kona hans þunguð og hún leyndi sér í fimm mánuði og sagði: 25„Þannig hefur Drottinn sýnt að honum er annt um mig og hefur afmáð hneisu mína í augum manna.“
Boðun Maríu
26En í sjötta mánuði sendi Guð Gabríel engil til borgar í Galíleu, sem heitir Nasaret, 27til meyjar er var föstnuð manni, sem Jósef hét, af ætt Davíðs en mærin hét María. 28Og engillinn kom inn til hennar og sagði: „Heil vert þú sem nýtur náðar Guðs! Drottinn er með þér.“
29En María varð hrædd við þessi orð og hugleiddi hvað þessi kveðja ætti að merkja. 30Og engillinn sagði við hana: „Óttast þú eigi, María, því að þú hefur fundið náð hjá Guði. 31Þú munt þunguð verða og son ala og þú skalt láta hann heita JESÚ. 32Hann mun verða mikill og kallaður sonur Hins hæsta. Drottinn Guð mun gefa honum hásæti Davíðs föður hans 33og hann mun ríkja yfir ætt Jakobs að eilífu og á ríki hans mun enginn endir verða.“
34Þá sagði María við engilinn: „Hvernig má þetta verða þar eð ég hef ekki karlmanns kennt?“
35Og engillinn sagði við hana: „Heilagur andi mun koma yfir þig og kraftur Hins hæsta mun yfirskyggja þig. Þess vegna verður barnið heilagt, sonur Guðs. 36Elísabet, frændkona þín, er einnig orðin þunguð að syni í elli sinni og þetta er sjötti mánuður hennar sem kölluð var óbyrja 37en Guði er enginn hlutur um megn.“
38Þá sagði María: „Sjá, ég er ambátt Drottins. Verði mér eftir orðum þínum.“ Og engillinn fór burt frá henni.
María og Elísabet
39En á þeim dögum tók María sig upp og fór með flýti til borgar nokkurrar í fjallbyggðum Júda. 40Hún kom inn í hús Sakaría og heilsaði Elísabetu. 41Þá varð það, þegar Elísabet heyrði kveðju Maríu, að barnið tók viðbragð í lífi hennar og Elísabet fylltist heilögum anda 42og hrópaði hárri röddu: „Blessuð sért þú meðal kvenna og blessaður ávöxtur lífs þíns. 43Hvaðan kemur mér þetta, að móðir Drottins míns kemur til mín? 44Þegar kveðja þín hljómaði í eyrum mér tók barnið viðbragð af gleði í lífi mínu. 45Sæl er sú sem trúði því að rætast mundi það sem Drottinn lét segja henni.“
Lofsöngur Maríu
46Og María sagði:
Önd mín miklar Drottin
47og andi minn gleðst í Guði, frelsara mínum.
48Því að hann hefur litið til ambáttar sinnar í smæð hennar,
héðan af munu allar kynslóðir mig sæla segja.
49Því að mikla hluti hefur Hinn voldugi við mig gert
og heilagt er nafn hans.
50Miskunn hans við þá er óttast hann varir frá kyni til kyns.
51Máttarverk hefur hann unnið með armi sínum
og drembilátum í hug og hjarta hefur hann tvístrað.
52Valdhöfum hefur hann steypt af stóli
og upp hafið smælingja,
53hungraða hefur hann fyllt gæðum
en látið ríka tómhenta frá sér fara.
54Hann hefur minnst miskunnar sinnar
og tekið að sér Ísrael, þjón sinn,
55eins og hann hét feðrum vorum,
Abraham og niðjum hans, eilíflega.
56En María dvaldist hjá henni hér um bil þrjá mánuði og sneri síðan heim til sín.
Fæðing Jóhannesar
57Nú kom sá tími að Elísabet skyldi verða léttari og ól hún son. 58Og nágrannar hennar og ættmenn heyrðu hversu mikla miskunn Drottinn hafði auðsýnt henni og samfögnuðu henni.
59Á áttunda degi komu þeir að umskera sveininn og vildu þeir láta hann heita Sakaría í höfuðið á föður sínum. 60Þá mælti móðir hans: „Eigi skal hann svo heita heldur Jóhannes.“
61En þeir sögðu við hana: „Enginn er í ætt þinni sem heitir því nafni.“ 62Bentu þeir þá föður hans að hann léti þá vita hvað sveinninn skyldi heita.
63Hann bað um spjald og reit: „Jóhannes er nafn hans,“ og urðu þeir allir undrandi. 64Jafnskjótt laukst upp munnur hans og tunga. Hann fór að tala og lofaði Guð. 65En ótta sló á alla nágranna þeirra og þótti þessi atburður miklum tíðindum sæta í allri fjallbyggð Júdeu. 66Og allir, sem þetta heyrðu, festu það í huga sér og sögðu: „Hvers má vænta af þessu barni?“ Því að hönd Drottins var með honum.
Lofsöngur Sakaría
67En Sakaría faðir hans fylltist heilögum anda og mælti af spámannlegri andagift:
68Lofaður sé Drottinn, Guð Ísraels,
því að hann hefur vitjað lýðs síns og búið honum lausn.
69Hann hefur reist oss horn hjálpræðis
í húsi Davíðs þjóns síns
70eins og hann talaði fyrir munn sinna heilögu spámanna frá öndverðu,
71frelsun frá óvinum vorum
og úr höndum allra er hata oss.
72Hann hefur auðsýnt feðrum vorum miskunn
og minnst síns heilaga sáttmála,
73þess eiðs er hann sór Abraham föður vorum
74að hrífa oss úr höndum óvina
og veita oss að þjóna sér óttalaust
75í heilagleik og réttlæti fyrir augum hans alla daga vora.
76Og þú, sveinn, munt nefndur verða spámaður Hins hæsta
því að þú munt ganga fyrir Drottni að greiða vegu hans
77og veita lýð hans þekkingu á hjálpræðinu
sem er fyrirgefning synda þeirra.
78Þessu veldur hjartans miskunn Guðs vors.
Hún lætur upp renna sól af hæðum að vitja vor
79og lýsa þeim sem sitja í myrkri og skugga dauðans
og beina fótum vorum á friðar veg.
80En sveinninn óx og varð þróttmikill í anda. Hann dvaldist í óbyggðum til þess dags er hann skyldi koma fram fyrir Ísrael.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy