Matteusarguðspjall 27
27
Fyrir Pílatusi
1Að morgni gerðu allir æðstu prestarnir og öldungarnir samþykkt gegn Jesú að hann skyldi af lífi tekinn. 2Þeir létu binda hann og færa brott og framseldu hann Pílatusi landshöfðingja.
Afdrif Júdasar
3Þegar Júdas, sem sveik hann, sá að hann var dæmdur sekur iðraðist hann og skilaði æðstu prestunum og öldungunum silfurpeningunum þrjátíu 4og mælti: „Ég drýgði synd, ég sveik saklaust blóð.“
Þeir sögðu: „Hvað varðar okkur um það? Það er þitt að sjá fyrir því.“
5Hann fleygði þá silfrinu inn í musterið og hélt brott. Síðan fór hann og hengdi sig.
6Æðstu prestarnir tóku silfrið og sögðu: „Ekki má láta það í guðskistuna því þetta eru blóðpeningar.“ 7Og þeir urðu ásáttir um að kaupa fyrir þá akur leirkerasmiðsins til grafreits handa útlendingum. 8Þess vegna kallast hann enn í dag Blóðreitur.
9Þá rættist það sem sagt var fyrir munn Jeremía spámanns: „Þeir tóku silfurpeningana þrjátíu, það verð sem sá var metinn á er til verðs var lagður af Ísraels sonum, 10og keyptu fyrir þá leirkerasmiðs akurinn eins og Drottinn hafði fyrir mig lagt.“
Konungur Gyðinga?
11Jesús kom nú fyrir landshöfðingjann. Landshöfðinginn spurði hann: „Ert þú konungur Gyðinga?“
Jesús svaraði: „Það eru þín orð.“ 12Æðstu prestarnir og öldungarnir báru á hann sakir en hann svaraði engu.
13Þá spurði Pílatus hann: „Heyrir þú ekki hve mjög þeir vitna gegn þér?“
14En Jesús svaraði honum ekki, engu orði hans, og undraðist landshöfðinginn mjög.
Krossfestu hann!
15Á hátíðinni var landshöfðinginn vanur að gefa fólkinu lausan einn bandingja, þann er það vildi. 16Þá var þar alræmdur bandingi í haldi, Barabbas að nafni. 17Sem þeir nú voru saman komnir sagði Pílatus við þá: „Hvorn viljið þið að ég gefi ykkur lausan, Barabbas eða Jesú sem kallast Kristur?“ 18Hann vissi að þeir höfðu fyrir öfundar sakir framselt hann.
19Meðan Pílatus sat á dómstólnum sendi kona hans til hans með þessi orð: „Láttu þennan réttláta mann vera, þungir hafa draumar mínir verið í nótt hans vegna.“
20En æðstu prestarnir og öldungarnir fengu múginn til að biðja um Barabbas en að Jesús yrði deyddur. 21Landshöfðinginn spurði: „Hvorn þeirra tveggja viljið þið að ég gefi ykkur lausan?“
Þeir sögðu: „Barabbas.“
22Pílatus spyr: „Hvað á ég þá að gera við Jesú sem kallast Kristur?“
Þeir segja allir: „Krossfestu hann.“
23Pílatus spurði: „Hvað illt hefur hann þá gert?“
En þeir æptu því meir: „Krossfestu hann!“
24Nú sér Pílatus að hann fær ekki að gert en ólætin aukast. Hann tók vatn, þvoði hendur sínar frammi fyrir fólkinu og mælti: „Sýkn er ég af blóði þessa [réttláta]#27.24 Vantar í sum handrit. manns! Svarið þið sjálf fyrir!“
25Og allur lýðurinn sagði: „Komi blóð hans yfir okkur og yfir börn okkar!“
26Þá gaf hann þeim Barabbas lausan en lét húðstrýkja Jesú og framseldi hann til krossfestingar.
Hæddur
27Hermenn landshöfðingjans fóru nú með hann inn í höllina og söfnuðu um hann allri hersveitinni. 28Þeir afklæddu hann og færðu hann í skarlatsrauða kápu, 29fléttuðu þyrnikórónu og settu á höfuð honum en reyrsprota í hægri hönd hans. Síðan féllu þeir á kné fyrir honum og höfðu hann að háði og sögðu: „Heill þér, konungur Gyðinga!“ 30Og þeir hræktu á hann, tóku reyrsprotann og slógu hann í höfuðið. 31Þegar þeir höfðu spottað hann færðu þeir hann úr kápunni og í hans eigin klæði. Þá leiddu þeir hann út til að krossfesta hann.
Krossfestur
32Á leiðinni hittu þeir mann frá Kýrene er Símon hét. Hann neyddu þeir til að bera kross Jesú. 33Og er þeir komu til þess staðar er heitir Golgata, það þýðir hauskúpustaður, 34gáfu þeir Jesú vín að drekka, galli blandað. Hann bragðaði það en vildi ekki drekka.
35Þá krossfestu þeir hann. Og þeir köstuðu hlutum um klæði hans og skiptu með sér, 36sátu þar svo og gættu hans. 37Yfir höfði hans festu þeir sakargift hans svo skráða: ÞESSI ER JESÚS, KONUNGUR GYÐINGA. 38Þá voru krossfestir með honum tveir ræningjar, annar til hægri, hinn til vinstri.
39Þeir sem fram hjá gengu hæddu Jesú, skóku höfuð sín 40og sögðu: „Þú sem brýtur niður musterið og reisir það á þrem dögum. Bjarga nú sjálfum þér ef þú ert sonur Guðs og stíg niður af krossinum!“
41Eins gerðu æðstu prestarnir gys að honum og fræðimennirnir og öldungarnir og sögðu: 42„Öðrum bjargaði hann, sjálfum sér getur hann ekki bjargað. Hann er konungur Ísraels, stígi hann nú niður af krossinum, þá skulum við trúa á hann. 43Hann treystir Guði. Nú ætti Guð að frelsa hann ef hann hefur mætur á honum. Eða sagði hann ekki: Ég er sonur Guðs?“
44Einnig ræningjarnir, sem með honum voru krossfestir, smánuðu hann á sama hátt.
Dáinn
45En frá hádegi varð myrkur um allt land til nóns.#27.45 Orðrétt: til níundu stundar, þ.e. kl. þrjú eftir hádegi. 46Og um nón kallaði Jesús hárri röddu: „Elí, Elí, lama sabaktaní!“ Það þýðir: „Guð minn, Guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig?“
47Nokkrir þeirra er þar stóðu heyrðu þetta og sögðu: „Hann kallar á Elía!“ 48Jafnskjótt hljóp einn þeirra til, tók njarðarvött og fyllti ediki, stakk á reyrstaf og gaf honum að drekka.
49Hinir sögðu: „Sjáum til hvort Elía kemur að bjarga honum.“
50En Jesús hrópaði aftur hárri röddu og gaf upp andann.
51Þá rifnaði fortjald musterisins í tvennt, ofan frá og niður úr, jörðin skalf og björgin klofnuðu, 52grafir opnuðust og margir heilagir menn, sem látnir voru, risu upp. 53Eftir upprisu Jesú gengu þeir úr gröfum sínum og komu í borgina helgu og birtust mörgum.
54Þegar hundraðshöfðinginn og þeir sem gættu Jesú með honum sáu landskjálftann og atburði þessa hræddust þeir mjög og sögðu: „Sannarlega var þessi maður sonur Guðs.“
55Þar voru og margar konur sem álengdar horfðu á, þær höfðu fylgt Jesú frá Galíleu og þjónað honum. 56Meðal þeirra var María Magdalena, María, móðir þeirra Jakobs og Jósefs, og móðir Sebedeussona.
Grafinn
57Um kvöldið kom auðugur maður frá Arímaþeu, Jósef að nafni, er sjálfur var orðinn lærisveinn Jesú. 58Hann gekk til Pílatusar og bað hann um líkama Jesú. Pílatus bauð þá að fá Jósef hann. 59Jósef tók líkið, sveipaði það hreinu línklæði 60og lagði í nýja gröf, sem hann átti og hafði látið höggva í klett, velti síðan stórum steini fyrir grafarmunnann og fór burt. 61María Magdalena var þar og María hin og sátu þær gegnt gröfinni.
Grafar gætt
62Næsta dag, hvíldardaginn, gengu æðstu prestarnir og farísearnir saman fyrir Pílatus 63og sögðu: „Herra, við minnumst þess að svikari þessi sagði í lifanda lífi: Eftir þrjá daga rís ég upp. 64Bjóð því að grafarinnar sé vandlega gætt allt til þriðja dags, ella gætu lærisveinar hans komið og stolið honum og sagt fólkinu: Hann er risinn frá dauðum. Þá verða síðari svikin verri hinum fyrri.“
65Pílatus sagði við þá: „Hér hafið þið varðmenn, farið og búið svo tryggilega um sem best þið kunnið.“
66Þeir fóru og gengu tryggilega frá gröfinni og innsigluðu steininn með aðstoð varðmannanna.
Currently Selected:
Matteusarguðspjall 27: BIBLIAN07
Highlight
Share
Copy

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007