Matteusarguðspjall 26
26
Með svikum
1Þegar Jesús hafði lokið þessari ræðu sagði hann við lærisveina sína: 2„Þið vitið að eftir tvo daga eru páskar. Þá verður Mannssonurinn framseldur til krossfestingar.“
3Æðstu prestarnir og öldungarnir söfnuðust nú saman í höll æðsta prestsins, er Kaífas hét, 4og réðu með sér að handsama Jesú með svikum og taka hann af lífi. 5En þeir sögðu: „Ekki á hátíðinni, annars verður uppþot meðal fólksins.“
Gott verk gerði hún
6En Jesús var í Betaníu, í húsi Símonar líkþráa. 7Kom þá til hans kona og hafði alabastursbuðk með dýrum smyrslum og hellti yfir höfuð honum þar sem hann sat að borði. 8Við þessa sjón urðu lærisveinarnir gramir og sögðu: „Til hvers er þessi sóun? 9Þetta hefði mátt selja dýru verði og gefa fátækum.“
10Jesús varð þess vís og sagði við þá: „Hvað eruð þið að angra konuna? Gott verk gerði hún mér. 11Fátæka hafið þið jafnan hjá ykkur en mig hafið þið ekki ávallt. 12Þegar hún hellti þessum smyrslum yfir líkama minn var hún að búa mig til greftrunar. 13Sannlega segi ég ykkur: Hvar um heim sem fagnaðarerindi þetta verður flutt mun þess getið sem hún gerði og hennar minnst.“
Þrjátíu silfurpeningar
14Þá fór einn þeirra tólf, Júdas Ískaríot að nafni, til æðstu prestanna 15og sagði: „Hvað viljið þið gefa mér fyrir að framselja ykkur Jesú?“ En þeir greiddu honum þrjátíu silfurpeninga. 16Upp frá þessu leitaði hann færis að framselja Jesú.
Búið til páskamáltíðar
17Á fyrsta degi ósýrðu brauðanna komu lærisveinarnir til Jesú og sögðu: „Hvar vilt þú að við búum þér páskamáltíðina?“
18Hann mælti: „Farið til ákveðins manns í borginni og segið við hann: Meistarinn segir: Minn tími er í nánd, hjá þér vil ég halda páska með lærisveinum mínum.“
19Lærisveinarnir gerðu sem Jesús bauð þeim og bjuggu til páskamáltíðar.
20Um kvöldið sat Jesús til borðs með þeim tólf. 21Og er þeir mötuðust sagði hann: „Sannlega segi ég ykkur: Einn af ykkur mun svíkja mig.“
22Þeir urðu mjög hryggir og sögðu við hann, einn af öðrum: „Er það ég, Drottinn?“
23Hann svaraði þeim: „Sá sem dýfði brauðinu í fatið með mér mun svíkja mig. 24Mannssonurinn fer að sönnu héðan svo sem um hann er ritað en vei þeim manni sem því veldur að Mannssonurinn verður framseldur. Betra væri þeim manni að hafa aldrei fæðst.“
25En Júdas, sem sveik hann, sagði: „Rabbí, er það ég?“
Jesús svaraði: „Það eru þín orð.“
Heilög kvöldmáltíð
26Þá er þeir mötuðust tók Jesús brauð, gerði þakkir, braut það og gaf lærisveinunum og sagði: „Takið og etið, þetta er líkami minn.“
27Og hann tók kaleik, gerði þakkir, gaf þeim og sagði: „Drekkið allir hér af. 28Þetta er blóð mitt, blóð sáttmálans, úthellt fyrir marga til fyrirgefningar synda. 29Ég segi ykkur: Héðan í frá mun ég eigi drekka af þessum vínviðar ávexti til þess dags er ég drekk hann nýjan með ykkur í ríki föður míns.“
30Þegar þeir höfðu sungið lofsönginn fóru þeir til Olíufjallsins.
Afneitun sögð fyrir
31Þá segir Jesús við þá: „Á þessari nóttu munuð þið allir hafna mér því að ritað er: Ég mun slá hirðinn og sauðir hjarðarinnar munu tvístrast. 32En eftir að ég er upp risinn mun ég fara á undan ykkur til Galíleu.“
33Þá segir Pétur: „Þótt allir hafni þér skal ég aldrei hafna þér.“
34Jesús sagði við hann: „Sannlega segi ég þér: Á þessari nóttu, áður en hani galar, muntu þrisvar afneita mér.“
35Pétur svarar: „Þótt ég ætti að deyja með þér þá mun ég aldrei afneita þér.“
Eins töluðu allir lærisveinarnir.
Í Getsemane
36Þá kemur Jesús með þeim í garð er heitir Getsemane og hann segir við lærisveinana: „Setjist hér meðan ég fer og biðst fyrir þarna.“ 37Hann tók með sér þá Pétur og báða sonu Sebedeusar. Og nú setti að honum hryggð og angist. 38Hann segir við þá: „Sál mín er hrygg allt til dauða. Bíðið hér og vakið með mér.“
39Þá gekk Jesús lítið eitt lengra, féll fram á ásjónu sína, baðst fyrir og sagði: „Faðir minn, ef verða má þá fari þessi kaleikur fram hjá mér. Þó ekki sem ég vil heldur sem þú vilt.“
40Jesús kom aftur til lærisveinanna og fann þá sofandi. Þá sagði hann við Pétur: „Þið gátuð þá ekki vakað með mér eina stund? 41Vakið og biðjið svo að þið fallið ekki í freistni. Andinn er reiðubúinn en holdið veikt.“
42Aftur vék hann brott annað sinn og bað: „Faðir minn, ef eigi verður hjá því komist að ég drekki þennan kaleik, þá verði þinn vilji.“ 43Þegar hann kom aftur fann hann þá enn sofandi því þeir gátu ekki haldið augunum opnum.
44Þá fór hann enn frá þeim og baðst fyrir þriðja sinn með sömu orðum og fyrr. 45Og hann kom til lærisveinanna og sagði við þá: „Sofið þið enn og hvílist? Stundin er komin og Mannssonurinn er framseldur í hendur syndugra manna. 46Standið upp, förum! Í nánd er sá er mig svíkur.“
Tekinn höndum
47Meðan Jesús var enn að tala kom Júdas, einn þeirra tólf, og með honum mikill flokkur frá æðstu prestunum og öldungunum og höfðu þeir sverð og barefli. 48Svikarinn hafði sagt þeim þetta til marks: „Sá sem ég kyssi, það er hann. Takið hann höndum.“
49Hann gekk beint að Jesú og sagði: „Heill, rabbí!“ og kyssti hann.
50Jesús sagði við hann: „Vinur, hví ertu hér?“
Þá komu hinir, lögðu hendur á Jesú og tóku hann fastan. 51Einn þeirra sem með Jesú voru greip til sverðs og brá því, hjó til þjóns æðsta prestsins og sneið af honum eyrað. 52Jesús sagði við hann: „Slíðra sverð þitt! Allir sem sverði bregða munu fyrir sverði falla. 53Hyggur þú að ég geti ekki beðið föður minn að senda mér nú meira en tólf sveitir engla? 54Hvernig ættu þá ritningarnar að rætast sem segja að þetta eigi svo að verða?“
55Þá sagði Jesús við flokkinn: „Eruð þið að fara að mér með sverðum og bareflum eins og gegn ræningja til að handtaka mig? Daglega sat ég í helgidóminum og kenndi og þið tókuð mig ekki höndum. 56En allt verður þetta til þess að ritningar spámannanna rætist.“
Þá yfirgáfu allir lærisveinarnir Jesú og flýðu.
Fyrir ráðinu
57Þeir sem tóku Jesú höndum færðu hann til Kaífasar æðsta prests en þar voru saman komnir fræðimennirnir og öldungarnir. 58Pétur fylgdi honum álengdar, allt að garði æðsta prestsins. Þar gekk hann inn og settist hjá þjónunum til að sjá hver yrði endir á. 59Æðstu prestarnir og allt ráðið leituðu ljúgvitnis gegn Jesú til að geta líflátið hann 60en fundu ekkert þótt margir ljúgvottar kæmu. Loks komu tveir 61og sögðu: „Þessi maður sagði: Ég get brotið niður musteri Guðs og reist það aftur á þrem dögum.“
62Þá stóð æðsti presturinn upp og sagði: „Svarar þú því engu sem þessir vitna gegn þér?“ 63En Jesús þagði. Þá sagði æðsti presturinn við hann: „Ég særi þig við lifanda Guð, segðu okkur: Ertu Kristur, sonur Guðs?“
64Jesús svarar honum: „Það voru þín orð. En ég segi ykkur: Upp frá þessu munuð þið sjá Mannssoninn sitja til hægri handar Hinum almáttuga og koma á skýjum himins.“
65Þá reif æðsti presturinn klæði sín og sagði: „Hann guðlastar, hvað þurfum við nú framar votta við? Þið heyrðuð guðlastið. 66Hvað líst ykkur?“
Þeir svöruðu: „Hann er dauðasekur.“
67Og þeir hræktu í andlit honum og slógu hann með hnefunum en aðrir börðu hann með stöfum 68og sögðu: „Þú ert spámaður, Kristur. Hver sló þig?“
Pétur afneitar
69En Pétur sat úti í garðinum. Þar kom að honum þerna ein og sagði: „Þú varst líka með Jesú frá Galíleu.“
70Því neitaði hann svo allir heyrðu og sagði: „Ekki veit ég hvað þú ert að fara.“ 71Hann gekk út í fordyrið. Þar sá hann önnur þerna og sagði við þá sem þar voru: „Þessi var með Jesú frá Nasaret.“
72En hann neitaði sem áður og sór þess eið að hann þekkti ekki þann mann.
73Litlu síðar komu þeir er þar stóðu og sögðu við Pétur: „Víst ertu líka einn af þeim enda segir málfæri þitt til þín.“
74En hann sór og sárt við lagði að hann þekkti ekki manninn. Um leið gól hani. 75Og Pétur minntist þess er Jesús hafði mælt: „Áður en hani galar muntu þrisvar afneita mér.“ Og hann gekk út og grét beisklega.
Currently Selected:
Matteusarguðspjall 26: BIBLIAN07
Highlight
Share
Copy

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007