YouVersion Logo
Search Icon

Matteusarguðspjall 24

24
Skelfist ekki
1Jesús gekk út úr helgidóminum og hélt brott. Þá komu lærisveinar hans og vildu sýna honum byggingar helgidómsins. 2Hann sagði við þá: „Sjáið þið allt þetta? Sannlega segi ég ykkur, hér verður ekki steinn yfir steini, allt verður lagt í rúst.“
3Þá er Jesús sat á Olíufjallinu gengu lærisveinarnir til hans og spurðu hann einslega: „Seg þú okkur, hvenær verður þetta? Hvernig sjáum við að þú sért að koma og veröldin að líða undir lok?“
4Jesús svaraði þeim: „Varist að láta nokkurn leiða yður í villu. 5Margir munu koma í mínu nafni og segja: Ég er Kristur! og marga munu þeir leiða í villu. 6Þér munuð spyrja hernað og ófriðartíðindi. Gætið þess að skelfast ekki. Þetta á að verða en endirinn er ekki þar með kominn. 7Þjóð mun rísa gegn þjóð og ríki gegn ríki, þá verður hungur og landskjálftar á ýmsum stöðum. 8Allt þetta er upphaf fæðingarhríðanna.
9Þá munu menn framselja yður, pína og taka af lífi og allar þjóðir munu hata yður vegna nafns míns. 10Margir munu þá falla frá og framselja hver annan og hata. 11Fram munu koma margir falsspámenn og leiða marga í villu. 12Og vegna þess að lögleysi magnast mun kærleikur flestra kólna. 13En sá sem staðfastur er allt til enda verður hólpinn. 14Fagnaðarerindið um ríkið verður prédikað um alla heimsbyggðina til þess að allar þjóðir fái að heyra það. Og þá mun endirinn koma.
Trúið því ekki
15Þegar þér sjáið viðurstyggð eyðileggingarinnar, sem Daníel spámaður talar um, standa á helgum stað“ − lesandinn athugi það − 16„þá flýi þeir sem í Júdeu eru til fjalla. 17Sá sem er uppi á þaki fari ekki ofan að sækja neitt í hús sitt. 18Og sá sem er á akri skal ekki hverfa aftur að taka yfirhöfn sína. 19Vei þeim sem þungaðar eru eða börn hafa á brjósti á þeim dögum. 20Biðjið að flótti yðar verði ekki um vetur eða á hvíldardegi. 21Þá verður sú mikla þrenging sem engin hefur þvílík verið frá upphafi heims allt til þessa og verður aldrei framar. 22Ef dagar þessir hefðu ekki verið styttir kæmist enginn maður af. En vegna hinna útvöldu verða þeir dagar styttir.
23Ef einhver segir þá við yður: Hér er Kristur, eða: Þar, þá trúið því ekki. 24Því að fram munu koma falskristar og falsspámenn og þeir munu gera stór tákn og undur svo að þeir gætu leitt hin útvöldu afvega ef það er unnt. 25Athugið að ég hef sagt yður það fyrir.
26Ef menn segja við yður: Hann er í óbyggðum, þá farið ekki þangað. Ef þeir segja: Hann er í leynum, þá trúið því ekki. 27Mannssonurinn kemur eins og elding sem leiftrar frá austri til vesturs.
28Þar munu ernirnir safnast sem hræið er.
Mannssonurinn kemur
29En þegar eftir þrengingu þessara daga mun sólin sortna og tunglið hætta að skína. Stjörnurnar munu hrapa af himni og festingin mun riðlast. 30Þá mun tákn Mannssonarins birtast á himni og allar kynkvíslir jarðar hefja kveinstafi. Og menn munu sjá Mannssoninn koma á skýjum himins með mætti og mikilli dýrð. 31Hann mun senda út engla sína með hvellum lúðri og þeir munu safna hans útvöldu úr áttunum fjórum, himinskauta milli.
Sumar í nánd
32Nemið líkingu af fíkjutrénu. Þegar greinar þess fara að mýkjast og laufið að springa út, þá vitið þér að sumar er í nánd. 33Eins skuluð þér vita, þegar þér sjáið allt þetta, að hann er í nánd, fyrir dyrum. 34Sannlega segi ég yður: Þessi kynslóð mun ekki líða undir lok uns allt þetta er komið fram. 35Himinn og jörð munu líða undir lok en orð mín munu aldrei undir lok líða.
Vakið því
36En þann dag og stund veit enginn, hvorki englar á himnum né sonurinn,#24.36 Orðin „né sonurinn“ vantar í sum handrit. enginn nema faðirinn einn. 37Eins og var á dögum Nóa, svo mun verða við komu Mannssonarins. 38Dagana fyrir flóðið átu menn og drukku, kvæntust og giftust allt til þess dags er Nói gekk í örkina. 39Og þeir vissu ekki fyrr en flóðið kom og hreif þá alla burt. Eins verður við komu Mannssonarins. 40Þá verða tveir á akri, annar mun tekinn, hinn eftir skilinn. 41Tvær munu mala á kvörn, önnur verður tekin, hin eftir skilin.
42Vakið því, þér vitið eigi hvaða dag Drottinn yðar kemur. 43Það skiljið þér að húsráðandi vekti og léti ekki brjótast inn í hús sitt ef hann vissi á hvaða stundu nætur þjófurinn kæmi. 44Verið þér og viðbúin því að Mannssonurinn kemur á þeirri stundu sem þér ætlið eigi.
45Hver er sá trúi og hyggni þjónn sem húsbóndinn hefur sett yfir hjú sín að gefa þeim mat á réttum tíma? 46Sæll er sá þjónn er húsbóndinn finnur breyta svo er hann kemur. 47Sannlega segi ég yður: Hann mun setja hann yfir allar eigur sínar. 48En ef illur þjónn segir í hjarta sínu: Húsbónda mínum dvelst, 49og hann tekur að berja samþjóna sína og eta og drekka með svöllurum 50þá mun húsbóndi þess þjóns koma á þeim degi sem hann væntir ekki, á þeirri stundu sem hann veit ekki, 51höggva hann og láta hann fá hlut með hræsnurum. Þar verður grátur og gnístran tanna.“

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in