Matteusarguðspjall 11
11
Sá sem koma skal
1Þá er Jesús hafði mælt svo fyrir við lærisveina sína tólf hélt hann þaðan að kenna og prédika í borgum þeirra.
2Jóhannes heyrði í fangelsinu um verk Krists. Þá sendi hann honum orð með lærisveinum sínum og spurði: 3„Ert þú sá sem koma skal eða eigum við að vænta annars?“
4Jesús svaraði þeim: „Farið og kunngjörið Jóhannesi það sem þið heyrið og sjáið: 5Blindir fá sýn og haltir ganga, líkþráir hreinsast#11.5 Sjá Matt 8.2. og daufir heyra, dauðir rísa upp og fátækum er flutt fagnaðarerindi. 6Og sæll er sá sem ekki hneykslast á mér.“
Meira en spámaður
7Þegar þeir voru farnir tók Jesús að tala til mannfjöldans um Jóhannes: „Hvað fóruð þér að sjá í óbyggðum? Reyr af vindi skekinn? 8Hvað fóruð þér að sjá? Prúðbúinn mann? Nei, prúðbúna menn er að finna í sölum konunga. 9Til hvers fóruð þér? Að sjá spámann? Já, segi ég yður, og það meira en spámann. 10Hann er sá sem um er ritað:
Ég sendi sendiboða minn á undan þér,
hann á að greiða þér veg.
11Sannlega segi ég yður: Enginn er sá af konu fæddur sem meiri sé en Jóhannes skírari. En hinn minnsti í himnaríki er honum meiri. 12Frá dögum Jóhannesar skírara og til þessa er ríki himnanna valdi beitt og árásarmenn reyna að hremma það. 13Spámennirnir allir og lögmálið, allt fram að Jóhannesi, sögðu fyrir um þetta. 14Og ef þér viljið við því taka þá er hann Elía, sá sem koma skyldi. 15Hver sem eyru hefur hann heyri.
16Við hvað á ég að líkja þessari kynslóð? Lík er hún börnum sem á torgum sitja og kallast á: 17Vér lékum fyrir yður á flautu og ekki vilduð þér dansa. Vér sungum yður sorgarljóð og ekki vilduð þér syrgja. 18Jóhannes kom, át hvorki né drakk, og menn segja: Hann hefur illan anda. 19Mannssonurinn kom, át og drakk, og menn segja: Hann er mathákur og vínsvelgur, vinur tollheimtumanna og bersyndugra! En spekin sannast af verkum sínum.“
Dómsorð
20Þá tók Jesús að ávíta borgirnar, þar sem hann hafði gert flest kraftaverk sín, fyrir að hafa ekki tekið sinnaskiptum. 21„Vei þér, Korasín! Vei þér, Betsaída! Ef gerst hefðu í Týrus og Sídon kraftaverkin, sem gerðust í ykkur, hefðu þær löngu iðrast í sekk og ösku. 22En ég segi ykkur: Týrus og Sídon mun bærilegra á dómsdegi en ykkur. 23Og þú, Kapernaúm. Verður þú hafin til himins? Nei, til heljar mun þér steypt verða. Ef gerst hefðu í Sódómu kraftaverkin, sem gerðust í þér, þá stæði hún enn í dag. 24En ég segi yður: Landi Sódómu mun bærilegra á dómsdegi en þér.“
Komið til mín
25Á þeim tíma tók Jesús svo til orða: „Ég vegsama þig, faðir, Drottinn himins og jarðar, að þú hefur hulið þetta spekingum og hyggindamönnum en opinberað það smælingjum. 26Já, faðir, svo var þér þóknanlegt.
27Allt hefur faðir minn falið mér og enginn þekkir soninn nema faðirinn, né þekkir nokkur föðurinn nema sonurinn og sá er sonurinn vill opinbera hann.
28Komið til mín, öll þér sem erfiðið og þunga eruð hlaðin, og ég mun veita yður hvíld. 29Takið á yður mitt ok og lærið af mér, því að ég er hógvær og af hjarta lítillátur, og þá munuð þér finna hvíld sálum yðar. 30Því að mitt ok er ljúft og byrði mín létt.“
Currently Selected:
Matteusarguðspjall 11: BIBLIAN07
Highlight
Share
Copy

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007