YouVersion Logo
Search Icon

Jónas 3

3
Jónas fer til Níníve
1Orð Drottins kom öðru sinni til Jónasar: 2„Legg þú af stað og far til Níníve, hinnar miklu borgar, og prédikaðu fyrir henni þann boðskap sem ég mun greina þér frá.“ 3Jónas lagði af stað og fór til Níníve eins og Drottinn hafði boðið.
En Níníve var svo firnastór borg að þrjár dagleiðir voru um hana þvera. 4Jónas hóf nú göngu sína inn í borgina og er hann var kominn eina dagleið prédikaði hann: „Eftir fjörutíu daga verður Níníve lögð í rúst!“
5Settu þá Nínívebúar traust sitt á Guð, boðuðu föstu og klæddust hærusekkjum, jafnt háir sem lágir.
6Þegar fregnin barst konunginum í Níníve stóð hann upp úr hásæti sínu, svipti af sér tignarskrúðanum, huldi sig hærusekk, settist í ösku 7og sendi kallara með svohljóðandi boð til Nínívebúa:
„Samkvæmt tilskipun konungs og höfðingja hans er svo fyrir mælt: Hvorki menn né skepnur, hvorki naut né sauðir skulu neins neyta og ekki skulu þau á gras ganga eða vatn drekka. 8Menn og dýr skulu sveipa sig hærusekkjum, hrópa til Guðs af öllum mætti, snúa frá sinni illu breytni og láta af því ofbeldi sem þau hafa framið. 9Hver veit nema Guði snúist hugur og hann láti af sinni brennandi reiði svo að við förumst ekki.“
10Guð sá hvað fólkið gerði, að það hafði látið af sinni illu breytni. Þá snerist honum hugur og hann ákvað að valda fólkinu ekki þeirri ógæfu sem hann hafði boðað og refsa því ekki.

Currently Selected:

Jónas 3: BIBLIAN07

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in