YouVersion Logo
Search Icon

Jónas 4

4
Jónas andmælir miskunn Guðs
1Jónas fylltist mikilli gremju, honum brann reiðin 2og hann sagði við Drottin:
„Ó, Drottinn! Var það ekki einmitt þetta sem ég sagði áður en ég fór að heiman? Það var vegna þessa sem ég í fyrstu vildi flýja til Tarsis því að ég vissi að þú ert líknsamur og miskunnsamur Guð, þolinmóður og gæskuríkur, og þú iðrast ógæfunnar og lætur refsinguna ekki dynja yfir. 3En nú, Drottinn. Taktu líf mitt því að mér er betra að deyja en lifa.“ 4Drottinn svaraði: „Gerir þú rétt er þú reiðist?“
5Jónas hafði gengið út úr borginni og búið um sig fyrir austan hana í því skyni að reisa sér laufskála og setjast undir hann í skuggann og bíða þess hvað yrði í borginni. 6Þá leiddi Drottinn Guð fram rísínusrunna. Hann óx yfir Jónas og varpaði skugga á höfuð hans og linaði beiskju hans og gladdist hann mjög af rísínusrunnanum.
7En þegar birti af degi og roðaði af morgni sendi Guð orm sem stakk rísínusrunnann svo að hann visnaði. 8Og er sól var á lofti leiddi Guð fram brennheitan eyðimerkurvindinn og sólin stakk Jónas í höfuðið svo að hann örmagnaðist. Þá óskaði hann sér dauða og sagði: „Ég vil heldur deyja en lifa.“
9Guð sagði þá við Jónas: „Hyggurðu að þú reiðist með réttu vegna rísínusrunnans?“
Hann svaraði: „Ég geri rétt er ég reiðist til dauða.“
Svar Guðs
10Þá sagði Drottinn: „Þú kennir í brjósti um rísínusrunnann sem þú hefur hvorki haft erfiði af né komið upp. Hann óx á einni nóttu og visnaði á einni nóttu. 11Ætti ég ekki að sjá aumur á Níníve, hinni miklu borg, þar sem meira en hundrað og tuttugu þúsundir manna búa, sem þekkja vart hægri höndina frá þeirri vinstri, og að auki fjöldi dýra?“

Currently Selected:

Jónas 4: BIBLIAN07

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in