YouVersion Logo
Search Icon

Fyrsta Mósebók 36

36
Niðjatal Esaú og Edómíta
1Þetta er ættartala Esaú, það er Edóms:
2Esaú tók sér kanverskar eiginkonur sem voru Ada, dóttir Hetítans Elons, og Oholíbama, dóttir Ana, sonar Hívítans Síbeons, 3og Basmat, dóttir Ísmaels, systur Nebajóts. 4Ada ól Esaú Elífas, Basmat ól Regúel 5og Oholíbama ól Jeús, Jaelam og Kóra. Þessir voru synir Esaú sem honum fæddust í Kanaanslandi.
6Esaú tók konur sínar, syni sína, dætur og allt sitt fólk, hjörð sína og kvikfénað og allt það sem hann hafði eignast í Kanaanslandi og fór frá Jakobi bróður sínum til Seírlands. 7Eigur þeirra voru meiri en svo að þeir gætu búið á sama stað og landið, er þeir bjuggu í sem útlendingar, bar ekki hjarðir þeirra.
8Esaú settist að á Seírfjöllum en Esaú er Edóm.
9Þetta er ættartala Esaú, ættföður Edómíta, á Seírfjöllum.
10Þetta eru nöfn sona Esaú: Elífas, sonur Ada, konu Esaú, Regúel, sonur Basmat, konu Esaú. 11Synir Elífasar voru Teman, Ómar, Sefó, Gatam og Kenas. 12Timna var önnur kona Elífasar, sonar Esaú, og hún ól Elífas Amalek. Þetta eru synir Ada, konu Esaú.
13Synir Regúels eru þessir: Nahat, Sera, Samma og Missa. Þeir voru synir Basmat, konu Esaú. 14Synir Esaú og Oholíbama, dóttur Ana Síbeonssonar, voru: Jeús, Jaelam og Kóra.
15Ættarhöfðingjar meðal niðja Esaú eru:
Synir Elífasar, frumgetins sonar Esaú: höfðingjarnir Teman, Ómar, Sefó, Kenas, 16Kóra, Gatam og Amalek. Þetta eru höfðingjarnir, sem komnir eru frá Elífas í Edómslandi, þeir eru sonarsynir Ada.
17Synir Regúels Esaúsonar voru: höfðingjarnir Nahat, Sera, Samma og Missa. Þeir eru höfðingjar sem komnir eru frá Regúel í Edómslandi, sonarsynir Basmat, konu Esaú.
18Synir Oholíbama, konu Esaú, eru: höfðingjarnir Jeús, Jaelam og Kóra. Þeir eru höfðingjar sem komnir eru frá Oholíbama, dóttur Ana, konu Esaú.
19Þetta eru synir Esaú og höfðingjar þeirra, það er Edóm.
20Synir Hórítans Seírs, frumbyggjar landsins, eru: Lótan, Sóbal, Síbeon, Ana, 21Díson, Eser og Dísan. Þeir eru höfðingjar Hórítanna, synir Seírs í Edómslandi. 22Synir Lótans voru Hórí og Hemam og systir Lótans var Timna. 23Synir Sóbals eru: Alvan, Manahat, Ebal, Sefó og Ónam. 24Synir Síbeons eru: Aja og Ana, það er sá Ana sem fann hverina í óbyggðinni er hann gætti asna Síbeons föður síns. 25Börn Ana eru: Díson og Oholíbama, dóttir Ana. 26Synir Dísons eru: Hemdan, Esban, Jítran og Keran. 27Synir Esers eru: Bílhan, Saavan og Akan. 28Synir Dísans eru: Ús og Aran.
29Höfðingjar Hórítanna eru: höfðingjarnir Lótan, Sóbal, Síbeon, Ana, 30Díson, Eser og Dísan. Þeir eru höfðingjar Hórítanna eftir höfðingjum þeirra í Seírlandi.
31Þeir konungar, sem ríktu í Edómslandi áður en konungar ríktu yfir Ísraelsmönnum, eru:
32Bela Beórsson, var konungur í Edóm og hét borg hans Dínhaba. 33Er Bela dó tók Jóbab, sonur Sera frá Bosra, ríki eftir hann. 34Er Jóbab dó tók Húsam frá Temanítalandi ríki eftir hann. 35Er Húsam dó tók Hadad Bedadsson ríki eftir hann. Það var hann sem sigraði Midíaníta á Móabsvöllum og borg hans hét Avít. 36Er Hadad dó tók Samla frá Masreka ríki eftir hann. 37Er Samla dó tók Sál frá Rehóbót hjá Efrat ríki eftir hann. 38Er Sál dó tók Baal Hanan Akbórsson ríki eftir hann. 39Er Baal Hanan Akbórsson dó tók Hadar ríki eftir hann og hét borg hans Pagú en kona hans Mehetabeel, dóttir Matredar, dóttur Me-Sahabs.
40Þetta eru nöfn höfðingja þeirra er frá Esaú eru komnir, eftir ættkvíslum þeirra, bústöðum og nöfnum: höfðingjarnir Timna, Alva, Jetet, 41Oholíbama, Ela, Pínon, 42Kenas, Teman, höfðinginn Mibsar, 43Magdíel og Íram. Þeir voru höfðingjar Edómíta, eftir bústöðum þeirra í landinu sem þeir höfðu numið. Esaú er ættfaðir Edómíta.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in