YouVersion Logo
Search Icon

Fyrsta Mósebók 22

22
Guð reynir Abraham
1Eftir þessa atburði reyndi Guð Abraham. Hann mælti til hans: „Abraham.“
Og hann svaraði: „Hér er ég.“
2Hann sagði: „Tak þú son þinn, einkason þinn sem þú elskar, hann Ísak, og far þú til Móríalands og fórna honum sem brennifórn á því fjalli sem ég mun vísa þér á.“
3Árla morguns söðlaði Abraham asna sinn, tók með sér tvo af sveinum sínum og Ísak son sinn, klauf við til brennifórnar, lagði síðan af stað og hélt til þess staðar sem Guð hafði sagt honum. 4Á þriðja degi hóf Abraham upp augu sín og sá staðinn álengdar. 5Hann sagði við sveina sína: „Bíðið hérna hjá asnanum en við drengurinn munum ganga þangað upp eftir til að biðjast fyrir og komum svo til ykkar aftur.“
6Abraham tók nú brennifórnarviðinn og lagði Ísak syni sínum á herðar en eldinn og hnífinn tók hann sér í hönd.
Og þeir gengu báðir saman.
7Þá sagði Ísak við Abraham föður sinn: „Faðir minn.“
Og hann svaraði: „Hér er ég, sonur minn.“
Ísak mælti: „Hér er eldurinn og viðurinn. En hvar er sauðurinn til brennifórnarinnar?“
8Abraham svaraði: „Guð mun sjá sér fyrir sauð til brennifórnar, sonur minn.“
Og þeir gengu báðir saman.
9Nú komu þeir á staðinn sem Guð hafði talað um. Þar reisti Abraham altari, lagði viðinn á, batt Ísak son sinn og lagði hann á altarið ofan á viðinn. 10Þá tók Abraham hnífinn í hönd sér til þess að slátra syni sínum. 11En engill Drottins kallaði til hans af himni og mælti: „Abraham! Abraham!“
Og hann svaraði: „Hér er ég.“
12Engillinn sagði: „Leggðu ekki hönd á sveininn og gerðu honum ekkert því að nú veit ég að þú óttast Guð. Þú hefur jafnvel ekki synjað mér um son þinn, einkason þinn.“
13Þá hóf Abraham upp augu sín og sá hvar hrútur var fastur á hornunum í greinaþykkni. Fór hann þangað, tók hrútinn og fórnaði honum sem brennifórn í stað sonar síns. 14Og Abraham nefndi stað þennan „Drottinn sér“ og því segja menn enn í dag: „Á fjallinu birtist Drottinn.“
15Engill Drottins kallaði öðru sinni til Abrahams af himni 16og mælti: „Ég sver við sjálfan mig, segir Drottinn: Af því að þú gerðir þetta og synjaðir mér ekki um einkason þinn 17mun ég ríkulega blessa þig og margfalda kyn þitt mikillega eins og stjörnur á himni, eins og sand á sjávarströnd. Og niðjar þínir skulu ná borgarhliðum óvina sinna. 18Allar þjóðir heims munu blessun hljóta af niðjum þínum vegna þess að þú hlýðnaðist raust minni.“
19Abraham sneri nú aftur til sveina sinna og þeir tóku sig upp og gengu saman til Beerseba. Og Abraham bjó í Beerseba.
Ætt Nahors, bróður Abrahams
20Svo bar við eftir þessa atburði að sagt var við Abraham: „Milka hefur einnig fætt. Hún hefur fætt Nahor bróður þínum syni: 21Ús, frumgetinn son hans, Bús, bróður hans, Kemúel, ættföður Aramea, 22Kesed, Kasó, Píldas, Jídlaf og Betúel.“
23En Betúel gat Rebekku. Þessa átta syni fæddi Milka Nahor, bróður Abrahams.
24Hjákona hans hét Reúma. Hún fæddi einnig syni: Tebak, Gaham, Tahas og Maaka.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in