Kólossubréfið 3
3
Hinn gamli og nýi maður
1Fyrst þið því eruð uppvakin með Kristi, þá keppist eftir því sem er hið efra þar sem Kristur situr við hægri hönd Guðs. 2Hugsið um það sem er hið efra en ekki um það sem á jörðinni er. 3Því að þið eruð dáin og líf ykkar er fólgið með Kristi í Guði. 4Þegar Kristur, sem er líf ykkar, opinberast, þá munuð þið og ásamt honum opinberast í dýrð.
5Deyðið því hið jarðbundna í fari ykkar: hórdóm, saurlifnað, losta, vonda fýsn og ágirnd sem ekki er annað en skurðgoðadýrkun. 6Af þessu kemur reiði Guðs yfir þá sem hlýða honum ekki.#3.6 Orðin „yfir þá sem hlýða honum ekki“ vantar í sum handrit. 7Meðal þeirra voruð einnig þið áður þegar þið lifðuð í þessum syndum. 8En nú skuluð þið segja skilið við allt þetta: reiði, bræði, vonsku, lastmæli, svívirðilegt orðbragð. 9Ljúgið ekki hvert að öðru því þið hafið afklæðst hinum gamla manni með gjörðum hans 10og íklæðst hinum nýja sem Guð er að skapa að nýju í sinni mynd til þess að þið fáið gjörþekkt hann. 11Þar er hvorki grískur maður né Gyðingur, umskorinn né óumskorinn, útlendingur, Skýti, þræll né frjáls maður, þar er Kristur allt og í öllum.
12Íklæðist því eins og Guðs útvalin, heilög og elskuð börn hjartagróinni meðaumkun, góðvild, auðmýkt, hógværð og langlyndi. 13Umberið hvert annað og fyrirgefið hvert öðru ef einhver hefur sök á hendur öðrum. Eins og Drottinn hefur fyrirgefið ykkur, svo skuluð þið og gera. 14En íklæðist yfir allt þetta elskunni sem bindur allt saman og fullkomnar allt.
15Látið frið Krists ríkja í hjörtum ykkar því að Guð kallaði ykkur til að lifa saman í friði sem limi í einum líkama. Verið þakklát.
16Látið orð Krists búa með ykkur í allri sinni auðlegð og speki. Fræðið og áminnið hvert annað og syngið Guði sætlega lof í hjörtum ykkar með sálmum, lofsöngvum og andlegum ljóðum. 17Hvað sem þið segið eða gerið, gerið það allt í nafni Drottins Jesú og þakkið Guði föður með hjálp hans.
Nýtt samfélag
18Konur, verið undirgefnar eiginmönnum ykkar eins og sómir þeim er Drottni heyra til.
19Karlar, elskið eiginkonur ykkar og verið ekki beiskir við þær.
20Börn, verið hlýðin foreldrum ykkar í öllu því að það er Drottni þóknanlegt.
21Feður, verið ekki höstugir við börn ykkar, það gerir þau ístöðulaus.
22Þrælar, verið í öllu hlýðnir jarðneskum húsbændum ykkar, ekki með augnaþjónustu, eins og þeir er mönnum vilja þóknast, heldur af einlægni hjartans, af lotningu fyrir Drottni. 23Hvað sem þið gerið, þá gerið það af heilum huga eins og Drottinn ætti í hlut en ekki menn. 24Þið vitið og sjálfir að Drottinn mun veita ykkur arfleifðina að launum enda þjónið þið Drottni Kristi. 25Sá sem rangt gerir skal fá það endurgoldið sem hann gerði rangt og þar er ekki farið í manngreinarálit.
Currently Selected:
Kólossubréfið 3: BIBLIAN07
Highlight
Share
Copy
Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007