YouVersion Logo
Search Icon

Postulasagan 3

3
Við Fögrudyr
1Pétur og Jóhannes gengu upp í helgidóminn til síðdegisbæna. 2Þá var þangað borinn maður, lami frá móðurlífi, er dag hvern var settur við þær dyr helgidómsins sem nefndar eru Fögrudyr til að beiðast ölmusu af þeim er inn gengu í helgidóminn. 3Er hann sá þá Pétur og Jóhannes á leið inn í helgidóminn baðst hann ölmusu. 4Þeir horfðu fast á hann og Pétur sagði: „Lít þú á okkur.“ 5Hann starði á þá í von um að fá eitthvað hjá þeim. 6Pétur sagði: „Silfur og gull á ég ekki en það sem ég hef, það gef ég þér: Í nafni Jesú Krists frá Nasaret, statt upp og gakk!“ 7Og hann tók í hægri hönd honum og reisti hann upp. Jafnskjótt urðu fætur hans og ökklar styrkir, 8hann spratt upp, stóð í fætur og tók að ganga. Hann fór inn með þeim í helgidóminn, gekk um og stökk og lofaði Guð. 9Allt fólkið sá hann ganga um og lofa Guð. 10Menn könnuðust við að hann var sá er hafði setið fyrir Fögrudyrum helgidómsins til að beiðast ölmusu. Urðu þeir furðu lostnir og frá sér numdir af því sem fram við hann hafði komið.
Pétur talar
11Maðurinn hélt sér að Pétri og Jóhannesi og þá flykktist allt fólkið furðu lostið til þeirra í súlnagöngin sem kennd eru við Salómon. 12Þegar Pétur sá það ávarpaði hann fólkið: „Ísraelsmenn, hví furðar ykkur á þessu eða hví starið þið á okkur eins og við hefðum af eigin mætti eða guðrækni komið því til leiðar að þessi maður gengur? 13Guð forfeðra vorra, Guð Abrahams, Ísaks og Jakobs, hefur gert þjón sinn, Jesú, dýrlegan, sama Jesú sem þið framselduð og afneituðuð frammi fyrir Pílatusi er hann hafði ályktað að láta hann lausan. 14Þið afneituðuð hinum heilaga og réttláta en beiddust að manndrápari yrði ykkur gefinn. 15Þið líflétuð höfðingja lífsins en Guð uppvakti hann frá dauðum og að því erum við vottar. 16Trúin á nafn Jesú gerði þennan mann, sem þið sjáið og þekkið, styrkan. Nafn hans og trúin, sem hann gefur, veitti manninum þennan albata fyrir augum ykkar allra.
17Nú veit ég, systkin,#3.17 Orðrétt: bræður. að þið gerðuð það af vanþekkingu, sem og höfðingjar ykkar. 18En Guð lét þannig rætast það sem hann hafði látið alla spámennina boða, að Kristur hans skyldi líða. 19Takið því sinnaskiptum og snúið ykkur til Guðs svo að hann afmái syndir ykkar. 20Þá mun Drottinn láta upp renna endurlífgunartíma og hann mun senda Krist sem ykkur er fyrirhugaður sem er Jesús. 21Hann á að vera í himninum allt til þess tíma þegar Guð endurreisir alla hluti eins og hann hefur frá alda öðli látið heilaga spámenn sína boða. 22Móse sagði: Spámann líkan mér mun Drottinn, Guð ykkar, kalla fram úr hópi bræðra ykkar. Á hann skuluð þið hlýða í öllu er hann talar til ykkar. 23Og sérhver sá sem hlýðir ekki á þennan spámann skal upprættur verða úr samfélagi Guðs. 24Allir spámennirnir, Samúel og þeir sem á eftir komu, allir þeir sem talað hafa, boðuðu og þessa daga. 25Þið eruð börn spámannanna og eigið hlut í sáttmálanum sem Guð gerði við forfeður ykkar er hann sagði við Abraham: Af þínu afkvæmi skulu allar ættkvíslir jarðarinnar blessun hljóta. 26Guð hefur reist upp þjón sinn og sent hann fyrst til ykkar til að blessa ykkur og snúa hverju ykkar frá vondri breytni sinni.“

Currently Selected:

Postulasagan 3: BIBLIAN07

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy