YouVersion Logo
Search Icon

Postulasagan 2

2
Gjöf heilags anda
1Þá er upp var runninn hvítasunnudagur voru allir saman komnir á einum stað. 2Varð þá skyndilega gnýr af himni, eins og óveður væri að skella á, og fyllti allt húsið þar sem þeir voru. 3Þeim birtust tungur, eins og af eldi væru, er kvísluðust og settust á hvert og eitt þeirra. 4Allir fylltust heilögum anda og tóku að tala öðrum tungum, eins og andinn gaf þeim að mæla.
5Í Jerúsalem dvöldust Gyðingar, guðræknir menn, frá öllum löndum undir himninum. 6Er þetta hljóð heyrðist kom allur hópurinn saman. Þeim brá mjög við, því að hver og einn heyrði þá mæla á sína tungu. 7Menn voru frá sér af undrun og sögðu: „Eru þetta ekki allt Galíleumenn sem hér eru að tala? 8Hvernig má það vera að við, hvert og eitt, heyrum þá tala okkar eigið móðurmál? 9Við erum Partar, Medar og Elamítar, við erum frá Mesópótamíu, Júdeu, Kappadókíu, Pontus og Asíu, 10frá Frýgíu og Pamfýlíu, Egyptalandi og Líbýubyggðum við Kýrene og við sem hingað erum flutt frá Róm. 11Hér eru bæði Gyðingar og þeir sem tekið hafa trú Gyðinga, Kríteyingar og Arabar. Við heyrum þá tala á tungum okkar um stórmerki Guðs.“ 12Allir voru furðu lostnir og ráðalausir og sögðu hver við annan: „Hvað getur þetta verið?“
13En aðrir höfðu að spotti og sögðu: „Fólkið er drukkið af sætu víni.“
Ræða Péturs
14Þá steig Pétur fram og þeir ellefu og hann hóf upp raust sína og mælti til þeirra: „Gyðingar og allir Jerúsalembúar! Þetta skuluð þið vita. Ljáið eyru orðum mínum. 15Eigi eru þessir menn drukknir eins og þið ætlið enda aðeins komin dagmál.#2.15 Þriðja stund dags, þ.e. kl. níu fyrir hádegi. 16Hér er að rætast það sem spámaðurinn Jóel segir:
17Það mun verða á efstu dögum, segir Guð,
að ég mun úthella anda mínum yfir alla menn.
Synir yðar og dætur munu spá,
ungmenni yðar munu sjá sýnir
og aldraða yðar á meðal mun drauma dreyma.
18Jafnvel yfir þræla mína og ambáttir mínar
mun ég á þeim dögum úthella anda mínum,
og þau munu spá.
19Og ég mun láta undur verða á himnum uppi
og tákn á jörðu niðri,
blóð, eld og reykjarmökk.
20Sólin mun snúast í myrkur
og tunglið í blóð
áður en dagur Drottins kemur, hinn mikli og dýrlegi.
21En hver sá sem ákallar nafn Drottins mun frelsast.
22Ísraelsmenn, heyrið þessi orð: Jesús frá Nasaret var maður sem kom til ykkar frá Guði. Guð sannaði ykkur það með því að láta hann gera kraftaverk, undur og tákn meðal ykkar eins og þið vitið sjálfir. 23Hann fenguð þið framseldan eins og Guð vissi fyrir og felldi að áætlun sinni og þið létuð lögleysingja negla hann á kross og taka af lífi. 24En Guð leysti hann úr dauðans böndum og reisti hann upp, enda gat það aldrei orðið að dauðinn fengi haldið honum 25því að Davíð segir um hann:
Ávallt hafði ég Drottin fyrir augum mér.
Hann er mér til hægri handar svo að mér sé borgið.
26Fyrir því gladdist hjarta mitt og tunga mín fagnaði.
Meira að segja mun líkami minn hvílast í von.
27Því að ekki munt þú skilja sálu mína eftir í helju
og eigi láta þinn heilaga verða rotnun að bráð.
28Kunna gerðir þú mér lífsins vegu
og návist þín fyllir mig fögnuði.
29Systkin,#2.29 Orðrétt: Bræður. óhikað get ég talað við ykkur um ættföðurinn Davíð. Hann dó og var grafinn og leiði hans er til hér allt til þessa dags. 30En hann var spámaður og vissi að Guð hafði með eiði heitið honum að setja einhvern niðja hans í hásæti hans. 31Því var það upprisa Krists sem hann sá fyrir þegar hann sagði:
Ekki varð hann eftir skilinn í helju
og ekki varð líkami hans rotnun að bráð.
32Þennan Jesú reisti Guð upp og erum við allir vottar þess. 33Nú er hann hafinn upp til hægri handar Guðs#2.33 Eða: með Guðs hægri hendi. og hefur af föðurnum tekið við heilögum anda, sem fyrirheitið var, og úthellt honum eins og þið sjáið og heyrið. 34Ekki steig Davíð upp til himna en hann segir:
Drottinn sagði við minn drottin:
Set þig mér til hægri handar
35þangað til ég geri óvini þína að fótskör þinni.
36Með öruggri vissu viti þá öll Ísraels ætt að þennan Jesú, sem þið krossfestuð, hefur Guð gert bæði að Drottni og Kristi.“
37Er menn heyrðu þetta var sem stungið væri í hjörtu þeirra og þeir sögðu við Pétur og hina postulana: „Hvað eigum við að gera, bræður?“
38Pétur sagði við þá: „Takið sinnaskiptum og látið skírast í nafni Jesú Krists svo að þið öðlist fyrirgefningu syndanna og gjöf heilags anda. 39Því að ykkur er ætlað fyrirheitið, börnum ykkar og öllum þeim sem í fjarlægð eru, öllum þeim sem Drottinn Guð vor kallar til sín.“ 40Og með öðrum fleiri orðum brýndi hann þá og hvatti og sagði: „Látið frelsast frá þessari rangsnúnu kynslóð.“ 41En þau sem veittu orði hans viðtöku tóku skírn og þann dag bættust við um þrjú þúsund sálir. 42Þau ræktu trúlega uppfræðslu postulanna og samfélagið, brotning brauðsins og bænirnar.
Samfélag trúaðra
43Ótta setti að hverjum manni en mörg undur og tákn gerðust fyrir hendur postulanna. 44Allir þeir sem trúðu héldu hópinn og höfðu allt sameiginlegt. 45Menn seldu eigur sínar og muni og skiptu meðal allra eftir því sem hver hafði þörf á 46Daglega komu menn saman með einum huga í helgidóminum, brutu brauð í heimahúsum, neyttu fæðu saman í fögnuði og einlægni hjartans. 47Þeir lofuðu Guð og höfðu vinsældir af öllum. En Drottinn bætti daglega við í hópinn þeim er frelsast létu.

Currently Selected:

Postulasagan 2: BIBLIAN07

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy