YouVersion Logo
Search Icon

Síðara Tímóteusarbréf 1

1
Þakkir og hvatningar
1Páll, postuli Krists Jesú, að vilja Guðs sendur til að boða fyrirheitið um lífið í Kristi Jesú, heilsar 2Tímóteusi, elskuðu barni sínu. Náð, miskunn og friður frá Guði föður og Kristi Jesú, Drottni vorum.
3Ég þakka Guði, sem ég þjóna með hreinni samvisku, eins og forfeður mínir, með því að ég án afláts, nótt og dag, minnist þín í bænum mínum. 4Ég þrái að sjá þig, minnugur tára þinna, til þess að ég fyllist gleði 5er ég rifja upp fyrir mér hina hræsnislausu trú þína. Sú trú bjó fyrst í henni Lóis ömmu þinni og í henni Evnike móður þinni og ég er sannfærður um að hún býr líka í þér.
6Fyrir þá sök minni ég þig á að glæða hjá þér þá náðargjöf sem Guð gaf þér við yfirlagningu handa minna. 7Því að ekki gaf Guð okkur anda hugleysis heldur anda máttar og kærleiks og stillingar.
8Fyrirverð þig því ekki fyrir vitnisburðinn um Drottin vorn né fyrir mig, bandingja hans, heldur skalt þú með mér illt þola vegna fagnaðarerindisins svo sem Guð gefur máttinn til. 9Hann hefur frelsað okkur og kallað heilagri köllun, ekki vegna verka okkar heldur eftir eigin ákvörðun og náð sem okkur var gefin frá eilífum tímum í Kristi Jesú 10en hefur nú birst við komu frelsara vors, Krists Jesú. Hann afmáði dauðann en leiddi í ljós líf og óforgengileika með fagnaðarerindinu. 11Og til að boða það er ég settur prédikari, postuli og kennari.
12Fyrir þá sök líð ég og þetta. En ég fyrirverð mig eigi því að ég veit á hvern ég trúi. Og ég er sannfærður um að hann er þess megnugur að varðveita það sem mér er trúað fyrir þar til dagurinn kemur.
13Farðu eftir heilnæmu orðunum sem þú heyrðir mig flytja og tileinka þér þá trú og þann kærleika sem Kristur Jesús veitir. 14Varðveittu hið góða, sem þér er trúað fyrir, með hjálp heilags anda sem í okkur býr.
15Þú veist að allir Asíumenn sneru við mér bakinu. Í þeirra flokki eru þeir Fýgelus og Hermogenes.
16Drottinn veiti heimili Ónesífórusar miskunn því að oft hressti hann mig og fyrirvarð sig ekki fyrir fjötur minn 17heldur lét sér annt um að leita mín þegar hann kom til Rómar og fann mig. 18Drottinn Jesús veiti honum á þeim degi miskunn hjá Drottni Guði. Og þú þekkir manna best hve mikla þjónustu hann innti af hendi í Efesus.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

Video for Síðara Tímóteusarbréf 1