Síðara Korintubréf 5
5
1Við vitum að þótt jarðnesk tjaldbúð okkar verði rifin niður þá höfum við hús frá Guði, eilíft hús á himnum sem eigi er með höndum gert. 2Á meðan andvörpum við og þráum að íklæðast húsi okkar frá himnum. 3Þegar við íklæðumst því munum við ekki standa uppi nakin. 4En á meðan við erum í tjaldbúðinni stynjum við mædd. Við viljum ekki afklæðast forgengilegum líkama okkar heldur íklæðast óforgengilegum líkama til þess að dauðleg tilvera okkar umbreytist og verði eilíf. 5En það er Guð sem er að verki í okkur og gerir okkur þetta fært og hann hefur gefið okkur anda sinn sem tryggingu.
6Ég er því ávallt hughraustur þótt ég viti að meðan ég lifi á jörðinni er ég að heiman frá Drottni 7því að við lifum í trú án þess að sjá. 8Já, ég er hughraustur og mig langar öllu fremur til að hverfa burt úr líkamanum og vera heima hjá Drottni. 9Þess vegna kosta ég kapps um, hvort sem ég er heima eða að heiman, að vera honum þóknanlegur. 10Því að öllum ber okkur að birtast fyrir dómstóli Krists til þess að sérhver fái það endurgoldið sem hann hefur aðhafst í lifanda lífi, hvort sem það er gott eða illt.
Guð sætti heiminn við sig
11Með því að ég nú veit hvað það er að óttast Drottin leitast ég við að sannfæra menn. En Guð gjörþekkir mig, ég vona að þið gerið það einnig í hjörtum ykkar. 12Ekki er ég enn farinn að mæla með sjálfum mér við ykkur heldur er ég að gefa ykkur tilefni til að miklast af mér svo að þið getið svarað þeim sem hrósa sér af hinu ytra en ekki af hjartaþelinu. 13Enda þótt ég hafi fallið í leiðslu og talað tungum þá varðar það Guð. Þegar ég er með sjálfum mér þá er það vegna ykkar. 14Kærleiki Krists knýr mig því að ég hef ályktað svo: Ef einn er dáinn fyrir alla þá eru allir dánir. 15Og hann er dáinn fyrir alla til þess að þeir sem lifa lifi ekki framar sjálfum sér heldur honum sem fyrir þá er dáinn og upprisinn.
16Þannig met ég héðan í frá engan að mannlegum hætti. Þótt ég og hafi þekkt Krist sem mann þekki ég hann nú ekki framar þannig. 17Ef einhver er í Kristi er hann orðinn nýr maður, hið liðna varð að engu, nýtt er orðið til. 18Allt er frá Guði sem sætti mig við sig fyrir Krist og gaf mér þjónustu sáttargerðarinnar. 19Því að það var Guð sem í Kristi sætti heiminn við sig er hann tilreiknaði mönnum ekki afbrot þeirra og fól mér að boða orð sáttargjörðarinnar.
20Ég er því erindreki Krists sem Guð notar til að hvetja ykkur. Ég bið í orðastað Krists: Látið sættast við Guð. 21Guð dæmdi Krist, sem þekkti ekki synd, sekan í okkar stað til þess að hann gerði okkur réttlát í Guðs augum.
Currently Selected:
Síðara Korintubréf 5: BIBLIAN07
Highlight
Share
Copy

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007