Fyrsta Jóhannesarbréf 3
3
Börn Guðs
1Sjáið hvílíkan kærleika faðirinn hefur auðsýnt okkur, að við skulum kallast Guðs börn. Og það erum við. Heimurinn þekkir okkur ekki vegna þess að hann þekkti hann ekki. 2Þið elskuðu, nú þegar erum við Guðs börn og það er enn þá ekki orðið bert hvað við munum verða. Við vitum að þegar hann birtist, þá verðum við honum lík því að við munum sjá hann eins og hann er. 3Hver sem hefur þessa von til hans hreinsar sjálfan sig eins og Kristur er hreinn.
4Hver sem drýgir synd fremur lögmálsbrot. Syndin er lögmálsbrot. 5Þið vitið að Kristur birtist til þess að taka burt syndir.#3.5 Annar lesháttur: syndir okkar. Í honum er engin synd. 6Hver sem er stöðugur í honum syndgar ekki, hver sem heldur áfram að syndga hefur ekki séð hann og þekkir hann ekki heldur.
7Börnin mín, látið engan villa ykkur. Sá sem iðkar réttlætið er réttlátur eins og Kristur er réttlátur. 8Hver sem syndgar heyrir djöflinum til því að djöfullinn hefur syndgað frá upphafi. Til þess birtist Guðs sonur að hann skyldi brjóta niður verk djöfulsins. 9Hver sem af Guði er fæddur syndgar ekki því að það sem Guð hefur í hann sáð varir í honum. Hann getur ekki syndgað af því að hann er fæddur af Guði. 10Af þessu má greina að börn Guðs og börn djöfulsins. Sá sem iðkar ekki réttlæti og elskar ekki bróður sinn heyrir ekki Guði til.
Elskum hvert annað
11Því að þetta er sá boðskapur sem þið hafið heyrt frá upphafi: Við eigum að elska hvert annað. 12Ekki vera eins og Kain sem var af hinum vonda og myrti bróður sinn. Og af hverju myrti hann hann? Af því að verk hans voru vond en verk bróður hans góð.
13Undrist ekki, systkin, þótt heimurinn hati ykkur. 14Við vitum að við erum komin yfir frá dauðanum til lífsins af því að við elskum bræður okkar og systur.#3.14 Orðrétt: bræður okkar. Sá sem ekki elskar er áfram í dauðanum. 15Hver sem hatar bróður sinn eða systur#3.15 Orðrétt: bróður sinn. er manndrápari og þið vitið að enginn manndrápari hefur eilíft líf í sér. 16Af því þekkjum við kærleikann að Jesús lét lífið fyrir okkur. Svo eigum við og að láta lífið hvert fyrir annað. 17Ef sá sem hefur heimsins gæði horfir á bróður sinn eða systur#3.17 Orðrétt: bróður sinn. vera þurfandi og lýkur aftur hjarta sínu fyrir þeim, hvernig getur kærleikur til Guðs verið stöðugur í honum? 18Börnin mín, elskum ekki með tómum orðum heldur í verki og sannleika.
19Af þessu munum við þekkja að við erum sannleikans megin og munum geta friðað hjörtu okkar frammi fyrir honum, 20hvað sem hjarta okkar kann að dæma okkur fyrir. Því að Guð er meiri en hjarta okkar og þekkir allt. 21Þið elskuðu, ef hjartað dæmir okkur ekki, þá höfum við djörfung til Guðs. 22Og hvað sem við biðjum um fáum við hjá honum af því að við höldum boðorð hans og gerum það sem honum er þóknanlegt. 23Og þetta er hans boðorð, að við skulum trúa á nafn sonar hans Jesú Krists og elska hvert annað, samkvæmt því sem hann hefur gefið okkur boðorð um. 24Sá sem heldur boðorð Guðs er stöðugur í Guði og Guð í honum. Að hann er stöðugur í okkur þekkjum við af andanum sem hann hefur gefið okkur.
Currently Selected:
Fyrsta Jóhannesarbréf 3: BIBLIAN07
Highlight
Share
Copy

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007