1
Jesaja 6:8
Biblían (2007)
Þá heyrði ég rödd Drottins sem spurði: „Hvern skal ég senda? Hver vill reka erindi vort?“ Ég svaraði: „Hér er ég. Send þú mig.“
Compare
Explore Jesaja 6:8
2
Jesaja 6:3
Þeir kölluðu hver til annars og sögðu: „Heilagur, heilagur, heilagur er Drottinn allsherjar, öll jörðin er full af hans dýrð.“
Explore Jesaja 6:3
3
Jesaja 6:5
Þá sagði ég: „Vei mér, það er úti um mig því að ég er maður með óhreinar varir og bý meðal fólks með óhreinar varir en samt hafa augu mín séð konunginn, Drottin allsherjar.“
Explore Jesaja 6:5
4
Jesaja 6:1
Á dánarári Ússía konungs sá ég Drottin sitja í háu og gnæfandi hásæti og slóði skikkju hans fyllti helgidóminn.
Explore Jesaja 6:1
5
Jesaja 6:7
Hann snerti munn minn með kolinu og sagði: „Þetta hefur snortið varir þínar, sekt þín er frá þér tekin og friðþægt er fyrir synd þína.“
Explore Jesaja 6:7
6
Jesaja 6:2
Serafar stóðu fyrir ofan hann. Hafði hver þeirra sex vængi: með tveimur huldu þeir ásjónu sína, með tveimur huldu þeir fætur sína og með tveimur flugu þeir.
Explore Jesaja 6:2
7
Jesaja 6:6
Þá flaug einn serafanna til mín. Hann hélt á glóandi koli sem hann hafði tekið af altarinu með töng.
Explore Jesaja 6:6
8
Jesaja 6:9
Hann sagði: „Far þú og seg þessu fólki: Hlustið og hlustið en skiljið ekki. Horfið og horfið en skynjið ekki.
Explore Jesaja 6:9
9
Jesaja 6:10
Sljóvga hjarta þessa fólks, deyf eyru þess og loka augum þess svo að það sjái ekki með augunum, heyri ekki með eyrunum og skilji ekki með hjartanu, svo að það snúi ekki við og læknist.“
Explore Jesaja 6:10
Home
Bible
Plans
Videos