1
Fyrra Pétursbréf 2:9
Biblían (2007)
En þið eruð „útvalin kynslóð, konunglegur prestdómur, heilög þjóð, eignarlýður, til þess að þið skuluð víðfrægja dáðir hans,“ sem kallaði ykkur frá myrkrinu til síns undursamlega ljóss.
Compare
Explore Fyrra Pétursbréf 2:9
2
Fyrra Pétursbréf 2:24-25
Hann bar sjálfur syndir okkar á líkama sínum upp á tréð, til þess að við skyldum deyja frá syndunum og lifa réttlætinu. Fyrir hans benjar eruð þið læknuð. Þið voruð sem villuráfandi sauðir en nú hafið þið snúið ykkur til hans sem er hirðir og biskup sálna ykkar.
Explore Fyrra Pétursbréf 2:24-25
3
Fyrra Pétursbréf 2:10
Þið sem áður voruð ekki lýður eruð nú orðin „Guðs lýður“. Þið sem „ekki nutuð miskunnar“ hafið nú „miskunn hlotið“.
Explore Fyrra Pétursbréf 2:10
4
Fyrra Pétursbréf 2:2
Sækist eins og nýfædd börn eftir hinni andlegu, ómenguðu mjólk til þess að þið af henni getið dafnað til hjálpræðis
Explore Fyrra Pétursbréf 2:2
5
Fyrra Pétursbréf 2:11-12
Þið elskuðu, ég áminni ykkur sem gesti og útlendinga að halda ykkur frá holdlegum girndum sem heyja stríð gegn sálunni. Hegðið ykkur vel meðal þjóðanna, til þess að þeir sem nú hallmæla ykkur sem illgjörðamönnum sjái góðverk ykkar og vegsami Guð þegar hann kemur.
Explore Fyrra Pétursbréf 2:11-12
6
Fyrra Pétursbréf 2:5
Látið sjálf uppbyggjast sem lifandi steinar í andlegt hús til heilags prestdóms, til að bera fram andlegar fórnir fyrir Jesú Krist, Guði velþóknanlegar.
Explore Fyrra Pétursbréf 2:5
7
Fyrra Pétursbréf 2:1
Segið því skilið við alla vonsku og alla pretti, hræsni, öfund og allt baktal.
Explore Fyrra Pétursbréf 2:1
8
Fyrra Pétursbréf 2:4
Komið til hans, hins lifanda steins, sem menn höfnuðu en er í augum Guðs útvalinn og dýrmætur.
Explore Fyrra Pétursbréf 2:4
9
Fyrra Pétursbréf 2:16
Þið eruð frjálsir menn. Notið frelsið til að þjóna Guði en ekki til að hylja vonsku.
Explore Fyrra Pétursbréf 2:16
10
Fyrra Pétursbréf 2:15
Það er vilji Guðs að þið þaggið niður í vanþekkingu heimskra manna með því að breyta vel.
Explore Fyrra Pétursbréf 2:15
Home
Bible
Plans
Videos