Jóhannesarguðspjall 8
8
Sakfelld sýknuð
1En Jesús fór til Olíufjallsins. 2Snemma morguns kom hann aftur í helgidóminn og allt fólkið kom til hans en hann settist og tók að kenna því. 3Farísear og fræðimenn koma með konu, staðna að hórdómi, létu hana standa mitt á meðal þeirra 4og sögðu við Jesú: „Meistari, kona þessi var staðin að verki þar sem hún var að drýgja hór. 5Móse bauð okkur í lögmálinu að grýta slíkar konur. Hvað segir þú nú?“ 6Þetta sögðu þeir til að reyna hann svo þeir hefðu eitthvað að ákæra hann fyrir. En Jesús laut niður og skrifaði með fingrinum á jörðina.
7Og þegar þeir héldu áfram að spyrja hann rétti hann sig upp og sagði við þá: „Sá ykkar sem syndlaus er kasti fyrstur steini á hana.“ 8Og aftur laut hann niður og skrifaði á jörðina. 9Þegar þeir heyrðu þetta fóru þeir burt, einn af öðrum, öldungarnir fyrstir. Jesús var einn eftir og konan stóð í sömu sporum.
10Hann rétti sig upp og sagði við hana: „Kona, hvað varð af þeim? Sakfelldi enginn þig?“
11En hún sagði: „Enginn, Drottinn.“
Jesús mælti: „Ég sakfelli þig ekki heldur. Far þú. Syndga ekki framar.“]#8.11 Vantar í sum handrit.
Jesús, ljós heimsins
12Nú talaði Jesús aftur til þeirra og sagði: „Ég er ljós heimsins. Sá sem fylgir mér mun ekki ganga í myrkri heldur hafa ljós lífsins.“
13Þá sögðu farísear við hann: „Þú vitnar um sjálfan þig. Vitnisburður þinn er ekki gildur.“
14Jesús svaraði þeim: „Enda þótt ég vitni um sjálfan mig er vitnisburður minn gildur því ég veit hvaðan ég kom og hvert ég fer. En þér vitið ekki hvaðan ég kem né hvert ég fer. 15Þér dæmið að hætti manna. Ég dæmi engan. 16En ef ég dæmi er dómur minn réttur því ég er ekki einn, með mér er faðirinn sem sendi mig. 17Og í lögmáli yðar er ritað að vitnisburður tveggja manna sé gildur. 18Ég er sá sem vitna um sjálfan mig og faðirinn, sem sendi mig, vitnar um mig.“
19Þeir sögðu við hann: „Hvar er faðir þinn?“
Jesús svaraði: „Hvorki þekkið þér mig né föður minn. Ef þér þekktuð mig þá þekktuð þér líka föður minn.“
20Þessi orð mælti Jesús hjá fjárhirslunni þegar hann var að kenna í helgidóminum. Enginn lagði hendur á hann því stund hans var enn ekki komin.
Ekki af þessum heimi
21Enn sagði Jesús við þá: „Ég fer burt og þér munuð leita mín en þér munuð deyja í synd yðar. Þangað sem ég fer getið þér ekki komist.“
22Nú sagði fólkið:#8.22 Orðrétt: Gyðingar. „Mun hann ætla að fyrirfara sér fyrst hann segir: Þangað sem ég fer getið þér ekki komist?“
23En hann sagði við það: „Þér eruð neðan að, ég er ofan að. Þér eruð af þessum heimi, ég er ekki af þessum heimi. 24Þess vegna sagði ég yður að þér munduð deyja í syndum yðar. Því ef þér trúið ekki að ég sé sá sem ég er munuð þér deyja í syndum yðar.“
25Fólkið spurði hann þá: „Hver ert þú?“ Jesús svaraði því: „Sá sem ég hef sagt yður frá upphafi.#8.25 Eða: Hvers vegna ætti ég yfirleitt að vera að tala við yður? 26Margt hef ég um yður að tala og fyrir margt að dæma. En sá sem sendi mig er sannorður og það sem ég heyrði hjá honum, það tala ég til heimsins.“
27Fólkið skildi ekki að hann var að tala við þá um föðurinn. 28Því sagði Jesús: „Þegar þér hefjið upp Mannssoninn munuð þér skilja að ég er sá sem ég er og að ég geri ekkert einn og sér heldur tala ég það eitt sem faðirinn hefur kennt mér. 29Og sá sem sendi mig er með mér. Hann hefur ekki látið mig einan því ég geri ætíð það sem honum þóknast.“ 30Þegar hann mælti þetta fóru margir að trúa á hann.
Frjálsir − þrælar
31Þá sagði Jesús við Gyðingana, sem tekið höfðu trú á hann: „Ef þér farið eftir því sem ég segi eruð þér sannir lærisveinar mínir 32og munuð þekkja sannleikann, og sannleikurinn mun gera yður frjálsa.“
33Fólkið svaraði honum: „Við erum niðjar Abrahams og höfum aldrei verið nokkurs manns þrælar. Hvernig getur þú þá sagt: Þið munuð verða frjálsir?“
34Jesús svaraði þeim: „Sannlega, sannlega segi ég yður: Hver sem drýgir synd er þræll syndarinnar. 35En þrællinn dvelst ekki um aldur á heimilinu, sonurinn dvelst þar um aldur og ævi. 36Ef sonurinn frelsar yður munuð þér sannarlega verða frjálsir. 37Ég veit að þér eruð niðjar Abrahams. Þó leitist þér við að lífláta mig því að orð mitt fær ekki rúm hjá yður. 38Ég tala það sem ég hef séð hjá föður mínum og þér gerið það sem þér hafið heyrt hjá föður yðar.“
39Menn svöruðu honum: „Faðir okkar er Abraham.“
Jesús svaraði þeim: „Ef þér væruð niðjar Abrahams munduð þér vinna verk Abrahams. 40En nú leitist þér við að lífláta mig, mann sem hefur sagt yður sannleikann sem ég heyrði hjá Guði. Slíkt gerði Abraham aldrei. 41Þér vinnið verk föður yðar.“
Menn sögðu við hann: „Við erum ekki hórgetnir. Einn föður eigum við, Guð.“
42Jesús svaraði: „Ef Guð væri faðir yðar munduð þér elska mig því að frá Guði er ég út genginn og kominn. Ekki hef ég sent mig sjálfur. Það er hann sem sendi mig. 43Hví skiljið þér ekki mál mitt? Af því að þér getið ekki hlustað á orð mitt. 44Þér eigið djöfulinn að föður og viljið gera það sem faðir yðar girnist. Hann var manndrápari frá upphafi og hefur aldrei þekkt sannleikann því í honum finnst enginn sannleikur. Þegar hann lýgur fer hann að eðli sínu því hann er lygari og lyginnar faðir. 45En af því að ég segi sannleikann trúið þér mér ekki. 46Hver yðar getur sannað á mig synd? Ef ég segi sannleikann, hví trúið þér mér ekki? 47Sá sem er af Guði heyrir Guðs orð. Þér heyrið ekki vegna þess að þér eruð ekki af Guði.“
48Þeir svöruðu honum: „Er það ekki rétt sem við segjum að þú sért Samverji og hafir illan anda?“
49Jesús ansaði: „Ekki hef ég illan anda. Ég heiðra föður minn en þér smánið mig. 50Ég leita ekki míns heiðurs. Sá er til sem leitar hans og dæmir. 51Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem varðveitir mitt orð skal aldrei að eilífu deyja.“
52Þá sögðu þeir við hann: „Nú vitum við að þú hefur illan anda. Abraham dó og spámennirnir og þú segir að sá sem varðveitir orð þitt skuli aldrei að eilífu deyja. 53Ert þú meiri en faðir okkar, Abraham? Hann dó og spámennirnir dóu. Hver þykist þú vera?“
54Jesús svaraði: „Ef ég vegsama sjálfan mig er vegsemd mín engin. Faðir minn er sá sem vegsamar mig, hann sem þér segið vera Guð yðar. 55Og þér þekkið hann ekki en ég þekki hann. Ef ég segðist ekki þekkja hann væri ég lygari eins og þér. En ég þekki hann og varðveiti orð hans. 56Abraham faðir yðar vænti þess með fögnuði að sjá dag minn og hann sá hann og gladdist.“
57Þá sögðu þeir við hann: „Þú ert ekki enn orðinn fimmtugur og hefur séð Abraham!“
58Jesús svaraði: „Sannlega, sannlega segi ég yður: Áður en Abraham fæddist er ég.“
59Þá tóku menn upp steina til að grýta Jesú. En hann duldist og hvarf úr helgidóminum.
Valið núna:
Jóhannesarguðspjall 8: BIBLIAN07
Áherslumerki
Deildu
Afrita
Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007