Jóhannesarguðspjall 16

16
1Þetta hef ég talað til yðar svo að þér fallið ekki frá. 2Þeir munu gera yður samkunduræk. Já, sú stund kemur að hver sem líflætur yður þykist veita Guði þjónustu. 3Þetta munu þeir gera af því þeir þekkja hvorki föðurinn né mig. 4Þetta hef ég talað til yðar til þess að þér minnist þess að ég sagði yður það þegar stund þeirra kemur.
Verk andans
Ég hef ekki sagt yður þetta frá öndverðu af því ég var með yður. 5En nú fer ég til hans sem sendi mig og enginn yðar spyr mig: Hvert fer þú? 6En hryggð hefur fyllt hjarta yðar af því að ég sagði yður þetta. 7En ég segi yður sannleikann: Það er yður til góðs að ég fari burt því ef ég fer ekki kemur hjálparinn ekki til yðar. En ef ég fer sendi ég hann til yðar. 8Þegar hann kemur mun hann sanna heiminum hvað er synd og réttlæti og dómur. 9Syndin er að þeir trúðu ekki á mig, 10réttlætið að ég fer til föðurins og þér sjáið mig ekki lengur 11og dómurinn að höfðingi þessa heims er dæmdur.
12Enn hef ég margt að segja yður en þér getið ekki skilið það nú. 13En þegar andi sannleikans kemur mun hann leiða yður í allan sannleikann. Það sem hann segir yður hefur hann ekki frá sjálfum sér heldur mun hann segja yður það sem hann heyrir og kunngjöra yður það sem koma á. 14Hann mun gera mig dýrlegan því af mínu mun hann taka og kunngjöra yður. 15Allt sem faðirinn á er mitt. Því sagði ég að hann tæki af mínu og kunngjörði yður.
Hryggð mun snúast í fögnuð
16Innan skamms sjáið þér mig ekki lengur og aftur innan skamms munuð þér sjá mig.“
17Þá sögðu nokkrir lærisveina hans sín á milli: „Hvað er hann að segja við okkur: Innan skamms sjáið þér mig ekki og aftur innan skamms munuð þér sjá mig, og: Ég fer til föðurins?“ 18Lærisveinarnir spurðu: „Hvað merkir þetta: Innan skamms? Við vitum ekki hvað hann er að fara.“
19Jesús vissi að þeir vildu spyrja hann og sagði við þá: „Eruð þér að spyrjast á um það að ég sagði: Innan skamms sjáið þér mig ekki og aftur innan skamms munuð þér sjá mig? 20Sannlega, sannlega segi ég yður: Þér munuð gráta og kveina en heimurinn mun fagna. Þér munuð hryggjast en hryggð yðar mun snúast í fögnuð. 21Þegar konan fæðir er hún í nauð því stund hennar er komin. Þegar hún hefur alið barnið minnist hún ekki framar þrauta sinna af fögnuði yfir því að maður er í heiminn borinn. 22Eins eruð þér nú hrygg en ég mun sjá yður aftur og hjarta yðar mun fagna og enginn tekur fögnuð yðar frá yður. 23Á þeim degi munuð þér ekki spyrja mig neins. Sannlega, sannlega segi ég yður: Hvað sem þér biðjið föðurinn um í mínu nafni mun hann veita yður. 24Hingað til hafið þér einskis beðið í mínu nafni. Biðjið og þér munuð öðlast svo að fögnuður yðar verði fullkominn.
Ég hef sigrað heiminn
25Þetta hef ég sagt yður í líkingum. Sú stund kemur að ég tala ekki framar við yður í líkingum heldur mun ég berum orðum segja yður frá föðurnum. 26Á þeim degi munuð þér biðja í mínu nafni. Ég segi yður ekki að ég muni biðja föðurinn fyrir yður 27því sjálfur elskar faðirinn yður þar eð þér hafið elskað mig og trúað að ég sé frá Guði kominn. 28Ég er kominn í heiminn frá föðurnum. Ég yfirgef heiminn aftur og fer til föðurins.“
29Lærisveinar hans sögðu: „Nú talar þú berum orðum og mælir enga líking. 30Nú vitum við að þú veist allt og þarft eigi að nokkur spyrji þig. Þess vegna trúum við að þú sért frá Guði kominn.“
31Jesús svaraði: „Trúið þér nú? 32Sú stund kemur og er komin að þér tvístrist hver til sín og skiljið mig einan eftir. Þó er ég ekki einn því faðirinn er með mér. 33Þetta hef ég talað við yður svo að þér eigið frið í mér. Í heiminum hafið þér þrenging. En verið hughraust. Ég hef sigrað heiminn.“

Áherslumerki

Deildu

Afrita

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in