YouVersion Logo
Search Icon

Sálmarnir 4

4
1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Davíðssálmur.
2Svara mér, er ég hrópa,
þú Guð réttlætis míns!
Þá er að mér kreppti, rýmkaðir þú um mig,
ver mér náðugur og heyr bæn mína.
3Þér menn! Hversu lengi á sæmd mín að sæta smán?
Hversu lengi ætlið þér að elska hégómann og leita til lyginnar? [Sela]
4Þér skuluð samt komast að raun um,
að Drottinn sýnir mér dásamlega náð,
að Drottinn heyrir, er ég hrópa til hans.
5Skelfist og syndgið ekki.
Hugsið yður um í hvílum yðar
og verið hljóðir. [Sela]
6Færið réttar fórnir
og treystið Drottni.
7Margir segja: “Hver lætur oss hamingju líta?”
Lyft yfir oss ljósi auglitis þíns, Drottinn.
8Þú hefir veitt hjarta mínu meiri gleði
en menn hafa af gnægð korns og vínlagar.
9Í friði leggst ég til hvíldar og sofna,
því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.

Currently Selected:

Sálmarnir 4: BIBLIAN81

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in