YouVersion Logo
Search Icon

Rómverjabréfið 9

9
Guð og hans útvaldi lýður
1Ég tala sannleika í Kristi, ég lýg ekki, samviska mín, upplýst af heilögum anda, vitnar það með mér 2að ég hef mikla hryggð og sífellda kvöl í hjarta mínu 3og gæti óskað að mér væri sjálfum útskúfað frá Kristi ef það yrði til heilla fyrir bræður mína og ættmenn, 4Ísraelsmenn. Þeir eiga frumburðarréttinn, dýrðina, sáttmálana,#9.4 Annar lesháttur: sáttmálann. löggjöfina, helgihaldið og fyrirheitin. 5Þeirra eru ættfeðurnir og af þeim er Kristur kominn sem maður, hann sem er yfir öllu, Guð, blessaður að eilífu. Amen.#9.5 Eða: … sem maður. Guð, sem er yfir öllu, sé blessaður að eilífu. Amen.
6Það er ekki svo sem Guðs orð hafi brugðist. Því að ekki eru allir þeir Ísraelsmenn sem af Ísrael eru komnir. 7Ekki eru heldur allir börn Abrahams þótt þeir séu niðjar hans. Nei: „Afkomendur Ísaks munu taldir niðjar þínir.“ 8Það merkir: Ekki eru líkamlegir afkomendur Abrahams börn Guðs heldur þeir sem fyrirheitið hljóðar um. 9Guð gaf honum fyrirheit um fæðingu Ísaks þegar hann sagði: „Í þetta mund að ári kem ég aftur og þá mun Sara hafa eignast son.“
10Og ekki nóg með það. Eins var um Rebekku þegar hún varð þunguð að tveim sveinum af eins manns völdum, forföður okkar, Ísaks. 11Nú, til þess að það stæði stöðugt að ákvörðun Guðs um útvalningu væri óháð verkum og að öllu komin undir vilja þess er kallar, 12var henni sagt áður en sveinarnir voru fæddir og áður en þeir höfðu aðhafst gott eða illt: „Hinn eldri skal þjóna hinum yngri.“ 13Eins og ritað er: „Jakob elskaði ég, Esaú hataði ég.“
14Hvað skal um þetta segja? Er Guð óréttvís? Fjarri fer því. 15Hann segir við Móse: „Ég miskunna þeim sem ég vil miskunna og líkna þeim sem ég vil líkna.“ 16Það er því ekki komið undir vilja manns eða áreynslu heldur Guði sem miskunnar. 17Því er í ritningunni sagt við faraó: „Einmitt til þess hóf ég þig að ég fengi sýnt mátt minn á þér og nafn mitt yrði boðað um alla jörðina.“ 18Svo miskunnar þá Guð þeim sem hann vill en forherðir þann sem hann vill.
Guð sýnir hve ómælanleg dýrð hans er
19Þú munt nú vilja segja við mig: „Hvað er hann þá að ásaka okkur framar? Hver fær staðið gegn vilja hans?“ 20Hver ert þú, maður, að þú skulir deila á Guð? Hvort fær smíðisgripurinn sagt við smið sinn: „Hví gerðir þú mig svona?“ 21Eða hefur ekki leirkerasmiðurinn leirinn á valdi sínu svo að hann megi úr sama deigi gera viðhafnarker og annað til hversdagsnota?
22Hafi Guð viljað sýna reiði sína og birta mátt sinn hefur hann samt af mikilli þolinmæði umborið þau ker sem vöktu reiði hans og áttu fyrir sér að fara forgörðum. 23Hann ætlaði með því að sýna hve ómælanleg dýrð hans er við þá sem hann miskunnar#9.23 Orðrétt: ker miskunnarinnar. og útvelur til dýrðar. 24Þetta á við okkur,#9.24 Orðrétt: Slík ker erum við. sem hann hefur kallað, ekki aðeins úr flokki Gyðinga heldur og úr flokki heiðingja. 25Eins og hann líka segir hjá Hósea:
Lýð sem ekki var minn mun ég kalla minn
og þá sem ekki var elskuð mun ég mína elskuðu kalla.
26Og á sama stað og sagt var við þá:
Þið eruð ekki minn lýður,
þar munu þeir kallaðir verða börn Guðs lifanda.
27En Jesaja hrópar yfir Ísrael: „Þótt fjöldi Ísraels barna væri sem sandur sjávar munu leifar einar frelsaðar verða. 28Drottinn mun í skyndi gera upp reikning sinn á jörð og ljúka að fullu.“ 29Og eins hefur Jesaja sagt: „Hefði Drottinn allsherjar ekki látið oss eftir niðja værum vér orðin eins og Sódóma, værum lík Gómorru.“
30Hvað skal um þetta segja? Heiðingjarnir, sem sóttust ekki eftir réttlæti, hafa öðlast réttlæti − réttlæti af trú. 31En Ísraelsmenn, sem lögðu sig eftir lögmáli er veitt gæti réttlæti, náðu því ekki. 32Hvers vegna? Af því að þeir ætluðu sér að réttlætast með verkum, ekki af trú. Þeir hnutu um ásteytingarsteininn 33eins og ritað er:
Sjá, ég set í Síon ásteytingarstein
og hrösunarhellu.
Enginn sem á hann trúir
skal þurfa að blygðast sín.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in