YouVersion Logo
Search Icon

Rómverjabréfið 1

1
Kveðja
1Páll heilsar ykkur, þjónn Jesú Krists, sem Guð hefur kallað til að vera postuli og valið til að boða fagnaðarerindi sitt, 2sem hann lét spámenn sína áður flytja fyrirheit um í helgum ritningum, 3fagnaðarerindið um son hans, Jesú Krist, Drottin vorn. Sem maður er hann fæddur af kyni Davíðs 4en heilagur andi hans auglýsti með krafti að hann er sonur Guðs þegar hann reis upp frá dauðum. 5Af náð hans er ég postuli og á að leiða heiðna menn hvarvetna til þess að lúta honum í trú, nafni hans til dýrðar. 6Meðal þeirra eruð og þið sem Jesús Kristur hefur kallað sér til eignar.
7Ég heilsa öllum sem Guð elskar í Róm og kallar til heilags lífs.
Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi.
Páll og söfnuðurinn í Róm
8Fyrst og fremst þakka ég Guði mínum í nafni Jesú Krists fyrir ykkur öll af því að orð fer af trú ykkar í öllum heimi. 9Guð, sem ég þjóna í anda mínum með fagnaðarerindinu um son hans, er mér vottur þess að ég sífellt minnist ykkar 10í bænum mínum. Ég bið þess stöðugt að mér mætti loks auðnast að koma einhvern tíma til ykkar, ef Guð lofar. 11Ég þrái að sjá ykkur til þess að geta miðlað af gjöfum andans svo að þið styrkist 12eða réttara sagt: Svo að við getum uppörvast saman í sömu trú, ykkar og minni.
13Ég vil að þið vitið, bræður og systur,#1.13 Orðrétt: bræður. að ég hef oftsinnis ætlað mér að koma til ykkar en hef verið hindraður hingað til. Ég vildi sjá einhvern ávöxt hjá ykkur eins og öðrum sem áður voru heiðingjar. 14Ég er í skuld bæði við Grikki og útlendinga, vitra og fávísa. 15Því fýsir mig að boða fagnaðarerindið einnig ykkur í Róm.
Fagnaðarerindið − kraftur Guðs
16Ég fyrirverð mig ekki fyrir fagnaðarerindið. Það er kraftur Guðs sem frelsar hvern þann mann sem trúir, Gyðinginn fyrst og aðra síðan. 17Réttlæti Guðs opinberast í því fyrir trú til trúar eins og ritað er: Hinn réttláti mun lifa fyrir trú.
Menn þekktu ekki Guð
18En reiði Guðs opinberast af himni yfir öllu guðleysi og illsku manna sem kefja sannleikann með ranglæti. 19Það sem vitað verður um Guð blasir við þeim. Guð hefur birt þeim það. 20Ósýnilega veru hans, eilífan mátt og guðdómstign má skynja og sjá af verkum hans allt frá sköpun heimsins. Því eru mennirnir án afsökunar. 21Þeir þekktu Guð en hafa samt ekki tignað hann sem Guð né þakkað honum heldur fylltu þeir hugann af hégiljum og skynlaust hjarta þeirra hjúpaðist myrkri. 22Þeir þóttust vera vitrir en urðu heimskingjar. 23Í stað þess að tilbiðja dýrlegan, eilífan Guð hafa þeir tilbeðið myndir af dauðlegum mönnum, fuglum, ferfætlingum og skriðkvikindum.
24Þess vegna hefur Guð látið fýsnir þeirra til saurlífis ná valdi yfir þeim svo að þeir svívirtu líkami sína hver með öðrum. 25Þeir völdu lygina í staðinn fyrir sannleika Guðs, hafa göfgað og dýrkað hið skapaða í stað skaparans, hans sem er blessaður að eilífu.
26Því hefur Guð ofurselt þá svívirðilegum girndum. Bæði hafa konur breytt eðlilegum mökum í óeðlileg 27og eins hafa karlar hætt eðlilegum mökum við konur og brunnið í losta hver til annars, karlmenn hafa framið skömm með karlmönnum og tóku svo út á sjálfum sér makleg málagjöld villu sinnar.
28Fyrst menn hirtu ekkert um að þekkja Guð sleppti hann þeim á vald ósæmilegs hugarfars. 29Þeir urðu fullir alls kyns rangsleitni, vonsku, ágirndar og illsku. Þeir eru öfundsjúkir, morðfúsir, deilugjarnir, sviksamir, illgjarnir, illmálgir, bakbítar. 30Þeir eru guðshatarar, oflátar, hrokafullir, gortarar, hrekkvísir, óhlýðnir foreldrum sínum, 31óvitrir, ótrúir, kærleikslausir, miskunnarlausir. 32Þeir vita að Guð dæmir rétt og að allir, sem slíkt fremja, eru dauðasekir. Samt fremja þeir þetta og gera að auki góðan róm að slíkri breytni hjá öðrum.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in