YouVersion Logo
Search Icon

Opinberunarbókin 3

3
Til Sardes
1Engli safnaðarins í Sardes skaltu rita:
Þetta segir sá sem hefur þá sjö anda Guðs, stjörnurnar sjö. Ég þekki verkin þín. Þú lifir að nafninu til en ert samt dauður. 2Vakna þú og styrk það sem eftir er og að dauða komið. Því margt hef ég fundið í fari þínu sem ekki stenst fyrir Guði mínum. 3Minnst þú þess sem þú hefur numið og heyrt og varðveit það og bæt ráð þitt. Ef þú vakir ekki mun ég koma eins og þjófur og þú munt alls ekki vita á hverri stundu ég kem yfir þig. 4En þú átt fáein nöfn í Sardes sem ekki hafa saurgað klæði sín og þau munu ganga með mér í hvítum klæðum því að þau eru makleg. 5Sá er sigrar skal þá skrýðast hvítum klæðum og eigi mun ég afmá nafn hans úr bók lífsins. Ég mun kannast við nafn hans frammi fyrir föður mínum og englum hans.
6Hver sem eyra hefur hann heyri hvað andinn segir söfnuðunum.
Til Fíladelfíu
7Engli safnaðarins í Fíladelfíu skaltu rita:
Þetta segir sá heilagi, sá sanni sem hefur lykil Davíðs, hann sem lýkur upp svo að enginn læsir og læsir svo að enginn lýkur upp. 8Ég þekki verkin þín. Ég hef látið dyr standa opnar fyrir þér sem enginn getur lokað. Þú hefur lítinn mátt en hefur þó varðveitt orð mitt og ekki afneitað mér. 9Ég skal láta lygarana af samkundu Satans, sem segjast vera Gyðingar en eru það ekki, koma og kasta sér fyrir fætur þér og láta þá vita að ég elska þig. 10Af því að þú hefur varðveitt orð mitt um þolgæði mun ég varðveita þig á þeirri reynslustund sem á að koma yfir alla heimsbyggðina til að reyna þau sem á jörðinni búa. 11Ég kem skjótt. Haltu fast því sem þú hefur til þess að enginn taki kórónu þína. 12Þann er sigrar mun ég gera að máttarstólpa í musteri Guðs míns og hann skal aldrei framar fara þaðan. Á hann mun ég rita nafn Guðs míns og nafn borgar Guðs míns, hinnar nýju Jerúsalem, er kemur af himni ofan frá Guði mínum, og nafnið mitt hið nýja.
13Hver sem eyra hefur hann heyri hvað andinn segir söfnuðunum.
Til Laódíkeu
14Engli safnaðarins í Laódíkeu skaltu rita:
Þetta segir hann sem er amen, votturinn trúi og sanni, upphaf sköpunar Guðs. 15Ég þekki verkin þín, þú ert hvorki kaldur né heitur. Betur að þú værir annaðhvort kaldur eða heitur. 16En af því að þú ert hálfvolgur og hvorki heitur né kaldur mun ég skyrpa þér út af munni mínum. 17Þú segir: „Ég er ríkur og orðinn auðugur og þarfnast einskis.“ Þú veist ekki að þú ert vesalingur og aumingi, fátækur, blindur og nakinn. 18Ég ræð þér að þú kaupir af mér gull, skírt í eldi, til þess að þú verðir auðugur, og hvít klæði til þess að þú getir hulið skammarlega nekt þína. Kauptu líka smyrsl á augu þín til þess að þú getir séð. 19Ég tyfta og aga alla þá sem ég elska. Legg þú því allt kapp á að bæta ráð þitt. 20Ég stend við dyrnar og kný á. Ef einhver heyrir raust mína og lýkur upp dyrunum mun ég fara inn til hans og neyta kvöldverðar með honum og hann með mér. 21Þann er sigrar mun ég láta sitja hjá mér í hásæti mínu eins og ég sjálfur sigraði og settist hjá föður mínum í hásæti hans.
22Hver sem eyra hefur hann heyri hvað andinn segir söfnuðunum.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in