YouVersion Logo
Search Icon

Sálmarnir 54

54
1Til söngstjórans. Með strengjaleik. Maskíl eftir Davíð 2þegar Sifítar komu og sögðu við Sál: „Davíð felur sig hjá oss.“
3Hjálpa mér, Guð, með nafni þínu,
rétt hlut minn með mætti þínum.
4Guð, heyr þú bæn mína,
ljá eyra orðum munns míns.
5Erlendir fjandmenn hafa ráðist gegn mér
og ofbeldismenn sækjast eftir lífi mínu,
eigi hafa þeir Guð fyrir augum. (Sela)
6Sjá, Guð er hjálp mín,
Drottinn er styrkur minn.
7Bölið bitni á fjandmönnum mínum,
eyddu þeim, Drottinn, sakir trúfesti þinnar.
8Þá vil ég færa þér sjálfviljafórnir,
lofa nafn þitt, Drottinn, sem er gott,
9því að það hefur frelsað mig úr hverri neyð
og auga mitt hlakkar yfir fjandmönnum mínum.

Currently Selected:

Sálmarnir 54: BIBLIAN07

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in