Sálmarnir 110
110
1Davíðssálmur.
Svo segir Drottinn við herra minn:
„Set þig mér til hægri handar,
þá mun ég leggja óvini þína
sem skör fóta þinna.“
2Drottinn réttir út þinn volduga sprota frá Síon.
Drottna þú meðal óvina þinna.
3Þjóð þín kemur fúslega er þú kveður til her þinn.#110.3 Önnur hugsanleg þýðing: á valdadegi þínum.
Á helgum fjöllum fæddi ég þig
eins og dögg úr skauti morgunroðans.#110.3 Önnur hugsanleg þýðing: Í helgum skrúða kemur æskulýður þinn til þín líkt og dögg frá skauti morgunroðans.
4Drottinn hefur svarið
og hann iðrar þess eigi:
„Þú ert prestur að eilífu
að hætti Melkísedeks.“
5Drottinn er þér til hægri handar,
hann knosar konunga á degi reiði sinnar.
6Hann heldur dóm meðal þjóðanna,
fyllir allt líkum,
knosar höfðingja um víðan vang.
7Á leiðinni drekkur hann úr læknum,
þess vegna ber hann höfuðið hátt.
Currently Selected:
Sálmarnir 110: BIBLIAN07
Highlight
Share
Copy

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007