Markúsarguðspjall 7
7
Hið ytra og innra
1Nú safnast að Jesú farísear og nokkrir fræðimenn, komnir frá Jerúsalem. 2Þeir sáu að sumir lærisveina hans neyttu matar með vanhelgum, það er óþvegnum, höndum. 3En farísear, og reyndar Gyðingar allir, eta ekki nema þeir þvoi hendur sínar og fylgja þannig erfðavenju#7.3 Munnleg erfikenning við hlið lögmáls Gamla testamentisins. Þar voru m.a. fyrirmæli um þvotta og hreinsanir sem áttu að tryggja hreinleika manna til þátttöku í helgihaldi. forfeðra sinna. 4Og ekki neyta þeir matar þegar þeir koma frá torgi nema þeir hreinsi sig áður. Þeir fara einnig eftir mörgum öðrum fyrirmælum sem þeim hefur verið kennt, svo sem að hreinsa bikara, könnur og eirkatla.
5Farísearnir og fræðimennirnir spyrja hann: „Hvers vegna fylgja lærisveinar þínir ekki erfðavenju forfeðranna heldur neyta matar með vanhelgum höndum?“
6Jesús svarar þeim: „Sannspár var Jesaja um ykkur hræsnara þar sem ritað er:
Þessir menn heiðra mig með vörunum
en hjarta þeirra er langt frá mér.
7Til einskis dýrka þeir mig
því að þeir kenna það eitt sem menn hafa samið.
8Þið hafnið boðum Guðs en haldið erfikenning manna.“
9Enn sagði Jesús við þá: „Listavel gerið þið að engu boðorð Guðs svo þið getið rækt erfikenning ykkar. 10Móse sagði: Heiðra föður þinn og móður þína, og: Hver sem formælir föður eða móður skal deyja. 11En þið segið: Ef maður segir við föður sinn eða móður: Það sem ég hefði átt að styrkja þig með er korban, ég gef það til musterisins, 12þá leyfið þið honum ekki framar að gera neitt fyrir föður sinn eða móður. 13Þannig látið þið erfikenning ykkar, sem þið fylgið, ógilda orð Guðs. Og margt annað gerið þið þessu líkt.“
14Aftur kallaði Jesús til sín mannfjöldann og sagði: „Heyrið mig öll og skiljið. 15Ekkert er það utan mannsins er saurgi hann þótt inn í hann fari. Hitt saurgar manninn sem út frá honum fer.“ [16Ef einhver hefur eyru að heyra, hann heyri!]#7.16 Vantar í sum handrit.
17Þegar Jesús var kominn inn frá fólkinu spurðu lærisveinar hans hann um líkinguna. 18Og hann segir við þá: „Eruð þið einnig svo skilningslausir? Skiljið þið ekki að ekkert sem fer inn í manninn utan frá getur saurgað hann? 19Því að ekki fer það inn í hjarta hans heldur maga og út síðan í safnþróna.“ Þannig lýsti hann alla fæðu hreina. 20Og hann sagði: „Það sem fer út frá manninum það saurgar manninn. 21Því að innan frá, úr hjarta mannsins, koma hinar illu hugsanir, saurlifnaður, þjófnaður, manndráp, 22hórdómur, ágirnd, illmennska, sviksemi, taumleysi, öfund, lastmælgi, hroki, heimska. 23Allt þetta illa kemur innan að og saurgar manninn.“
Eigi fékk hann dulist
24Jesús tók sig upp þaðan og hélt til byggða Týrusar. Þar fór hann inn í hús og vildi engan láta vita. En eigi fékk hann dulist. 25Kona ein frétti þegar af honum og kom og féll honum til fóta en dóttir hennar hafði óhreinan anda. 26Konan var heiðin, ættuð úr Fönikíu sýrlensku. Hún bað Jesú að reka illa andann út af dóttur sinni. 27Hann sagði við hana: „Lofaðu börnunum að seðjast fyrst, ekki sæmir að taka brauð barnanna og kasta því fyrir hundana.“
28Hún svaraði honum: „Satt er það, herra, þó eta hundarnir undir borðinu af molum barnanna.“
29Og Jesús sagði við hana: „Vegna þessara orða skaltu heim snúa, illi andinn er farinn úr dóttur þinni.“ 30Hún fór heim, fann barnið liggjandi á rúminu og illi andinn var farinn.
Allt gerir hann vel
31Síðan hélt Jesús úr Týrusarbyggðum, um Sídon og yfir Dekapólis byggðir miðjar til Galíleuvatns. 32Þá færa menn til hans daufan og málhaltan mann og biðja hann að leggja hönd sína yfir hann. 33Jesús leiddi hann afsíðis frá fólkinu, stakk fingrum sínum í eyru honum og vætti tungu hans með munnvatni sínu. 34Þá leit hann upp til himins, andvarpaði og sagði við hann: „Effaþa,“ það er: Opnist þú.
35Og eyru hans opnuðust og haft tungu hans losnaði og hann talaði skýrt. 36Jesús bannaði þeim að segja þetta neinum en svo mjög sem hann bannaði þeim því frekar sögðu þeir frá því. 37Menn undruðust mjög og sögðu: „Allt gerir hann vel, daufa lætur hann heyra og mállausa mæla.“
Currently Selected:
Markúsarguðspjall 7: BIBLIAN07
Highlight
Share
Copy

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007