Matteusarguðspjall 4
4
Jesú freistað
1Þá leiddi andinn Jesú út í óbyggðina til þess að djöfullinn gæti freistað hans. 2Þar fastaði Jesús fjörutíu daga og fjörutíu nætur og var þá orðinn hungraður. 3Þá kom djöfullinn og sagði við hann: „Ef þú ert sonur Guðs þá bjóð þú að steinar þessir verði að brauðum.“
4Jesús svaraði: „Ritað er: Eigi lifir maðurinn á einu saman brauði heldur á hverju því orði sem fram gengur af Guðs munni.“
5Þá tekur djöfullinn Jesú með sér í borgina helgu, setur hann á brún musterisins 6og segir við hann: „Ef þú ert sonur Guðs þá kasta þér ofan því að ritað er:
Hann mun fela þig englum sínum
og þeir munu bera þig á höndum sér
að þú steytir ekki fót þinn við steini.“
7Jesús svaraði honum: „Aftur er ritað: Þú skalt ekki freista Drottins, Guðs þíns.“
8Enn tekur djöfullinn hann með sér upp á ofurhátt fjall, sýnir honum öll ríki heims og dýrð þeirra 9og segir: „Allt þetta mun ég gefa þér ef þú fellur fram og tilbiður mig.“
10En Jesús sagði við hann: „Vík brott, Satan! Ritað er: Drottin, Guð þinn, skalt þú tilbiðja og þjóna honum einum.“
11Þá fór djöfullinn frá Jesú. Og englar komu og þjónuðu honum.
Ljós upp runnið
12Þegar Jesús heyrði að Jóhannes hefði verið tekinn höndum hélt hann til Galíleu. 13Hann fór frá Nasaret og settist að í Kapernaúm við vatnið í byggðum Sebúlons og Naftalí. 14Þannig rættist það sem Jesaja spámaður mælti:
15Sebúlonsland og Naftalíland við vatnið,
landið handan Jórdanar,
Galílea heiðingjanna.#4.15 Eða: þjóðanna.
16Sú þjóð sem í myrkri gengur sér mikið ljós.
Yfir þau sem búa í skuggalandi dauðans skín ljós.
17Upp frá þessu tekur Jesús að prédika og segja: „Takið sinnaskiptum, himnaríki er í nánd.“
Fylgið mér
18Jesús gekk með fram Galíleuvatni og sá tvo bræður, Símon, sem kallaður var Pétur, og Andrés, bróður hans, vera að kasta neti í vatnið en þeir voru fiskimenn. 19Hann sagði við þá: „Komið og fylgið mér og mun ég láta ykkur menn veiða.“ 20Og þegar í stað yfirgáfu þeir netin og fylgdu honum.
21Hann gekk áfram þaðan og sá tvo aðra bræður, Jakob Sebedeusson og Jóhannes, bróður hans. Þeir voru í bátnum með Sebedeusi, föður sínum, að búa net sín. Jesús kvaddi þá til fylgdar við sig 22og þeir yfirgáfu jafnskjótt bátinn og föður sinn og fylgdu honum.
Í Galíleu
23Jesús fór nú um alla Galíleu, kenndi í samkundum þeirra, prédikaði fagnaðarerindið um ríkið og læknaði hvers kyns sjúkdóm og veikindi meðal fólksins. 24Orðstír hans barst um allt Sýrland og menn færðu til hans alla sem þjáðust af ýmsum sjúkdómum og kvölum, voru haldnir illum öndum, tunglsjúka menn og lama. Og hann læknaði þá.
25Mikill mannfjöldi fylgdi honum úr Galíleu, Dekapólis, Jerúsalem, Júdeu og landinu handan Jórdanar.
Currently Selected:
Matteusarguðspjall 4: BIBLIAN07
Highlight
Share
Copy
Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007