YouVersion Logo
Search Icon

Lúkasarguðspjall 5

5
Fiskidráttur Péturs
1Nú bar svo til að Jesús stóð við Genesaretvatn og mannfjöldinn þrengdist að honum til að hlýða á Guðs orð. 2Þá sá hann tvo báta við vatnið en fiskimennirnir voru farnir í land og þvoðu net sín. 3Hann fór út í þann bátinn er Símon átti og bað hann að leggja lítið eitt frá landi, settist og tók að kenna mannfjöldanum úr bátnum.
4Þegar hann hafði lokið ræðu sinni sagði hann við Símon: „Legg þú út á djúpið og leggið net ykkar til fiskjar.“
5Símon svaraði: „Meistari, við höfum stritað í alla nótt og ekkert fengið en fyrst þú segir það skal ég leggja netin.“ 6Nú gerðu þeir svo og fengu þeir þá mikinn fjölda fiska en net þeirra tóku að rifna. 7Bentu þeir þá félögum sínum á hinum bátnum að koma og hjálpa sér. Þeir komu og hlóðu báða bátana svo að nær voru sokknir.
8Þegar Símon Pétur sá þetta féll hann á kné frammi fyrir Jesú og sagði: „Far þú frá mér, Drottinn, því að ég er syndugur maður.“ 9En felmtur kom á hann og alla þá sem með honum voru vegna fiskaflans er þeir höfðu fengið. 10Eins var um Jakob og Jóhannes Sebedeussyni, félaga Símonar. Jesús sagði þá við Símon: „Óttast þú ekki, héðan í frá skalt þú menn veiða.“
11Og þeir lögðu bátunum að landi, yfirgáfu allt og fylgdu honum.
Jesús læknar líkþráan
12Svo bar við, er Jesús var í einni borginni, að þar var maður altekinn líkþrá. Hann sá Jesú, féll fram fyrir honum og bað hann: „Drottinn, ef þú vilt getur þú hreinsað mig.“#5.12 Líkþráir eða holdsveikir menn voru útilokaðir frá mannlegu samfélagi og öllu helgihaldi í musterinu og samkundum vegna sjúkdóms síns.
13Jesús rétti út höndina, snart hann og mælti: „Ég vil, verð þú hreinn!“ Jafnskjótt hvarf af honum líkþráin. 14Og hann bauð honum að segja þetta engum. „En far þú,“ sagði hann, „sýn þig prestinum og fórna fyrir hreinsun þína eins og Móse bauð, þeim til vitnisburðar.“
15En fregnin um Jesú breiddist út því meir og menn komu hópum saman til að hlýða á hann og læknast af meinum sínum. 16En Jesús dró sig í hlé og fór til óbyggðra staða og baðst þar fyrir.
Jesús læknar lama mann
17Dag nokkurn var Jesús að kenna. Þar sátu farísear og lögmálskennendur, komnir úr hverju þorpi í Galíleu og Júdeu og frá Jerúsalem, og kraftur Drottins var með honum til að lækna. 18Komu þá menn með lama mann í rekkju og reyndu að bera hann inn og leggja hann fyrir framan Jesú. 19En vegna mannfjöldans sáu þeir engin ráð til að komast inn með hann og fóru því upp á þak og létu hann síga í rekkjunni niður um helluþekjuna beint fram fyrir Jesú. 20Og er Jesús sá trú þeirra sagði hann: „Maður, syndir þínar eru þér fyrirgefnar.“
21Þá tóku fræðimennirnir og farísearnir að hugsa með sér: „Hver er sá er fer með slíka guðlöstun? Hver getur fyrirgefið syndir nema Guð einn?“
22En Jesús skynjaði gjörla hugsanir þeirra og sagði við þá: „Hvað hugsið þið í hjörtum ykkar? 23Hvort er auðveldara að segja: Syndir þínar eru þér fyrirgefnar, eða segja: Statt upp og gakk? 24En til þess að þið vitið að Mannssonurinn hefur vald á jörðu til að fyrirgefa syndir, þá segi ég þér,“ − og nú talar hann við lama manninn: „Statt upp, tak rekkju þína og far heim til þín.“
25Jafnskjótt stóð maðurinn upp frammi fyrir þeim, tók það sem hann hafði legið á, fór heim til sín og lofaði Guð. 26En allir voru furðu lostnir og lofuðu Guð. Og þeir urðu óttaslegnir og sögðu: „Óskiljanlegt er það sem við höfum séð í dag.“
Köllun Leví
27Eftir þetta fór Jesús út. Þá sá hann tollheimtumann, Leví að nafni, sitja hjá tollbúðinni og sagði við hann: „Fylg þú mér!“ 28Og hann stóð upp, yfirgaf allt og fylgdi honum.
29Leví bjó honum veislu mikla í húsi sínu og þar sat að borði með þeim mikill fjöldi tollheimtumanna og annarra. 30En farísearnir og fræðimenn þeirra vönduðu um við lærisveina hans og sögðu: „Hvers vegna etið þið og drekkið með tollheimtumönnum og bersyndugum?“
31Og Jesús svaraði þeim: „Ekki þurfa heilbrigðir læknis við, heldur þeir sem sjúkir eru. 32Ég er ekki kominn til að kalla réttláta til afturhvarfs heldur syndara.“
Um föstu
33En farísearnir og fræðimennirnir sögðu við Jesú: „Lærisveinar Jóhannesar fasta oft og fara með bænir og eins lærisveinar okkar en þínir eta og drekka.“
34Jesús sagði við þá: „Hvort getið þið ætlað brúðkaupsgestum að fasta meðan brúðguminn er hjá þeim? 35En koma munu þeir dagar er brúðguminn verður frá þeim tekinn, þá munu þeir fasta á þeim dögum.“
36Jesús sagði þeim einnig líkingu: „Enginn rífur bót af nýju fati og lætur á gamalt fat því að bæði rífur hann þá nýja fatið og bótin af því hæfir ekki hinu gamla. 37Og enginn lætur nýtt vín á gamla belgi því þá sprengir nýja vínið belgina og fer niður en belgirnir ónýtast. 38Nýtt vín ber að láta á nýja belgi. 39Og enginn, sem drukkið hefur gamalt vín, vill nýtt því að hann segir: Hið gamla er gott.“

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy