YouVersion Logo
Search Icon

Lúkasarguðspjall 3

3
Jóhannes skírir og kennir
1Á fimmtánda stjórnarári Tíberíusar keisara, þegar Pontíus Pílatus var landstjóri í Júdeu en Heródes fjórðungsstjóri í Galíleu, Filippus, bróðir hans, í Ítúreu og Trakónítishéraði og Lýsanías í Abílene, 2í æðstapreststíð Annasar og Kaífasar, kom orð Guðs til Jóhannesar Sakaríasonar í óbyggðinni. 3Og hann fór um alla Jórdanbyggð og boðaði mönnum að taka sinnaskiptum og láta skírast til fyrirgefningar synda, 4eins og ritað er í bók Jesaja spámanns:
Rödd hrópanda í eyðimörk:
Greiðið veg Drottins,
gerið beinar brautir hans.
5Öll gil skulu fyllast,
öll fell og hálsar jafnast,
bugður verða beinar
og óvegir sléttar götur.
6Og allir munu sjá hjálpræði Guðs.
7Við mannfjöldann, sem fór út til að láta hann skíra sig, sagði hann: „Þið nöðrukyn, hver kenndi ykkur að flýja komandi reiði? 8Sýnið í verki að þið hafið tekið sinnaskiptum og farið ekki að segja með sjálfum ykkur: Við eigum Abraham að föður. Ég segi ykkur að Guð getur vakið Abraham börn af steinum þessum. 9Öxin er þegar lögð að rótum trjánna og hvert það tré, sem ber ekki góðan ávöxt, verður upp höggvið og því í eld kastað.“
10Mannfjöldinn spurði hann: „Hvað eigum við þá að gera?“
11En hann svaraði þeim: „Sá sem á tvo kyrtla gefi þeim er engan á og eins geri sá er matföng hefur.“
12Þá komu og tollheimtumenn til að skírast. Þeir sögðu við hann: „Meistari, hvað eigum við að gera?“
13En hann sagði við þá: „Heimtið ekki meira en fyrir ykkur er lagt.“
14Hermenn spurðu hann einnig: „En hvað eigum við að gera?“
Hann sagði við þá: „Hafið ekki fé af neinum, hvorki með ofríki né svikum. Látið ykkur nægja mála ykkar.“
15Allir voru nú fullir eftirvæntingar og hugsuðu með sjálfum sér hvort Jóhannes kynni að vera Kristur. 16En Jóhannes svaraði öllum og sagði: „Ég skíri ykkur með vatni en sá kemur sem mér er máttugri og er ég ekki verður að leysa skóþveng hans. Hann mun skíra ykkur með heilögum anda og eldi. 17Hann er með varpskófluna í hendi sér til þess að gjörhreinsa láfa sinn og safna hveitinu í hlöðu sína en hismið mun hann brenna í óslökkvanda eldi.“
18Með mörgu öðru hvatti hann fólk og flutti því fagnaðarboðin.
Varpað í fangelsi
19Jóhannes vítti Heródes fjórðungsstjóra vegna Heródíasar, konu bróður hans, og fyrir allt hið illa sem hann hafði gert. 20Þá bætti Heródes einnig því ofan á allt annað að hann varpaði Jóhannesi í fangelsi.
Jesús skírður
21Er allt fólkið lét skírast var Jesús einnig skírður. Þá bar svo við, er hann gerði bæn sína, að himinninn opnaðist 22og heilagur andi steig niður yfir hann í líkamlegri mynd, eins og dúfa, og rödd kom af himni: „Þú ert minn elskaði sonur, á þér hef ég velþóknun.“#3.22 Annar lesháttur: „Þú ert minn elskaði sonur, í dag hef ég fætt þig.“
Ættartala
23En Jesús var um þrítugt er hann hóf starf sitt. Var hann, eftir því sem haldið var, sonur Jósefs, sonar Elí, 24sonar Mattats, sonar Leví, sonar Melkí, sonar Jannaí, sonar Jósefs, 25sonar Mattatíass, sonar Amoss, sonar Naúms, sonar Eslí, sonar Naggaí, 26sonar Maats, sonar Mattatíass, sonar Semeíns, sonar Jóseks, sonar Jóda, 27sonar Jóhanans, sonar Hresa, sonar Serúbabels, sonar Sealtíels, sonar Nerí, 28sonar Melkí, sonar Addí, sonar Kósams, sonar Elmadams, sonar Ers, 29sonar Jesú, sonar Elíesers, sonar Jóríms, sonar Mattats, sonar Leví, 30sonar Símeons, sonar Júda, sonar Jósefs, sonar Jónams, sonar Eljakíms, 31sonar Melea, sonar Menna, sonar Mattata, sonar Natans, sonar Davíðs, 32sonar Ísaí, sonar Óbeðs, sonar Bóasar, sonar Salmons, sonar Naksons, 33sonar Ammínadabs, sonar Admíns, sonar Arní, sonar Esroms, sonar Peres, sonar Júda, 34sonar Jakobs, sonar Ísaks, sonar Abrahams, sonar Tara, sonar Nakórs, 35sonar Serúgs, sonar Reú, sonar Pelegs, sonar Ebers, sonar Sela, 36sonar Kenans, sonar Arpaksads, sonar Sems, sonar Nóa, sonar Lameks, 37sonar Metúsala, sonar Enoks, sonar Jareds, sonar Mahalalels, sonar Kenans, 38sonar Enoss, sonar Sets, sonar Adams, sonar Guðs.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy