YouVersion Logo
Search Icon

Lúkasarguðspjall 17

17
Vei þeim er veldur
1Jesús sagði við lærisveina sína: „Eigi verður umflúið að menn séu tældir til falls en vei þeim sem því veldur. 2Betra væri honum að hafa mylnustein um hálsinn og vera varpað í hafið en að tæla einn af þessum smælingjum til falls.
Fyrirgefning
3Hafið gát á sjálfum yður. Ef bróðir þinn syndgar, þá ávíta hann og ef hann sér að sér, þá fyrirgef honum. 4Og þótt hann misgeri við þig sjö sinnum á dag og snúi sjö sinnum aftur til þín og segi: Ég iðrast, þá skalt þú fyrirgefa honum.“
Trú
5Postularnir sögðu við Drottin: „Auk oss trú!“
6En Drottinn sagði: „Ef þér hefðuð trú eins og mustarðskorn gætuð þér sagt við mórberjatré þetta: Ríf þig upp með rótum og fest rætur í sjónum, og það mundi hlýða yður.
Þjónusta
7Hafi einhver yðar þjón, er plægir eða hirðir fénað, segir hann þá við hann þegar hann kemur inn af akri: Kom þegar og set þig til borðs? 8Segir hann ekki fremur við hann: Bú þú mér kvöldverð, tak þig til og þjóna mér meðan ég et og drekk, síðan getur þú etið og drukkið. 9Og er hann þakklátur þjóni sínum fyrir að gera það sem boðið var? 10Eins skuluð þér segja, þá er þér hafið gert allt sem yður var boðið: Ónýtir þjónar erum vér. Vér höfum gert það eitt sem oss bar að gera.“
Hvar eru hinir níu?
11Svo bar við á ferð Jesú til Jerúsalem að leið hans lá á mörkum Samaríu og Galíleu. 12Og er hann kom inn í þorp nokkurt mættu honum tíu líkþráir menn. Þeir stóðu álengdar, 13hófu upp raust sína og kölluðu: „Jesús, meistari, miskunna þú oss!“
14Jesús sá þá og sagði við þá: „Farið og sýnið yður prestunum.“ Þeir héldu af stað og nú brá svo við að þeir urðu hreinir.#17.14 Sjá Lúk 5.12. 15En einn þeirra sneri aftur er hann sá að hann var heill orðinn og lofaði Guð hárri raustu. 16Hann féll fram að fótum Jesú og þakkaði honum. En hann var Samverji. 17Jesús sagði: „Urðu ekki allir tíu hreinir? Hvar eru hinir níu? 18Urðu engir til þess að snúa aftur að gefa Guði dýrðina nema þessi útlendingur?“ 19Síðan mælti Jesús við hann: „Statt upp og far leiðar þinnar. Trú þín hefur bjargað þér.“
Innra með yður
20Farísear spurðu Jesú hvenær Guðs ríki kæmi. Hann svaraði þeim: „Guðs ríki kemur ekki þannig að á því beri. 21Ekki munu menn segja: Sjá, þar er það eða hér er það, því að Guðs ríki er innra með yður.“#17.21 Eða: Guðs ríki er meðal yðar.
Er Mannssonurinn opinberast
22Og Jesús sagði við lærisveinana: „Þeir dagar munu koma að þér þráið að sjá einn dag Mannssonarins og munuð eigi sjá hann. 23Menn munu segja við yður: Sjá hér, sjá þar. En farið ekki og hlaupið eftir því. 24Mannssonurinn kemur eins og elding sem leiftrar og lýsir frá einu skauti himins til annars. 25En fyrst á hann margt að líða og þessi kynslóð mun útskúfa honum.
26Eins og var á dögum Nóa, svo mun og verða á dögum Mannssonarins: 27Menn átu og drukku, kvæntust og giftust allt til þess dags er Nói gekk í örkina og flóðið kom og tortímdi öllum. 28Eins var og á dögum Lots: Menn átu og drukku, keyptu og seldu, gróðursettu og byggðu. 29En daginn sem Lot fór úr Sódómu rigndi eldi og brennisteini af himni og tortímdi öllum. 30Eins mun verða á þeim degi er Mannssonurinn opinberast.
31Sá sem þann dag er á þaki uppi og á muni sína í húsinu fari ekki ofan að sækja þá. Og sá sem er á akri skal ekki heldur hverfa aftur. 32Minnist konu Lots. 33Sá sem vill sjá lífi sínu borgið mun týna því en sá sem týnir því mun öðlast líf. 34Ég segi yður: Á þeirri nóttu verða tveir í einni hvílu, annar mun tekinn, hinn eftir skilinn. 35Tvær munu mala á sömu kvörn, önnur verður tekin, hin eftir skilin. [36Tveir verða á akri, annar mun tekinn, hinn eftir skilinn.]“#17.36 Vantar í sum handrit.
37Þeir spurðu hann þá: „Hvar, herra?“
En hann sagði við þá: „Þar munu ernirnir safnast sem hræið er.“

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy