YouVersion Logo
Search Icon

Lúkasarguðspjall 14

14
Gátu engu svarað
1Hvíldardag nokkurn kom Jesús í hús eins af höfðingjum farísea til máltíðar og höfðu menn gætur á honum. 2Þá var þar frammi fyrir honum maður einn vatnssjúkur. 3Jesús tók þá til máls og sagði við lögvitringana og faríseana: „Er leyfilegt að lækna á hvíldardegi eða ekki?“
4Þeir þögðu við. En hann tók á honum, læknaði hann og lét hann fara. 5Og Jesús mælti við þá: „Ef einhver ykkar á asna eða naut, sem fellur í brunn, mun hann ekki óðara draga það upp þótt hvíldardagur sé?“
6Þeir gátu engu svarað þessu.
Set þig ekki í hefðarsæti
7Jesús gaf því gætur hvernig boðsgestir völdu sér hefðarsætin, tók dæmi og sagði við þá: 8„Þegar einhver býður þér til brúðkaups, þá set þig ekki í hefðarsæti. Svo getur farið að manni þér fremri að virðingu sé boðið 9og sá komi er ykkur bauð og segi við þig: Þoka fyrir manni þessum. Þá verður þú með kinnroða að taka ysta sæti. 10Far þú heldur er þér er boðið og set þig í ysta sæti svo að sá sem bauð þér segi við þig þegar hann kemur: Vinur, flyt þig hærra upp! Mun þér þá virðing veitast frammi fyrir öllum er sitja til borðs með þér. 11Því að hver sem upp hefur sjálfan sig mun auðmýktur verða en sá sem lítillækkar sjálfan sig mun upp hafinn verða.“
12Þá sagði Jesús við gestgjafa sinn: „Þegar þú heldur miðdegisverð eða kvöldverð bjóð þá hvorki vinum þínum né bræðrum, ættingjum né ríkum nágrönnum því að þeir bjóða þér aftur og þú færð það endurgoldið. 13Þegar þú gerir veislu þá bjóð þú fátækum og örkumla, höltum og blindum 14og munt þú sæll verða því að þeir geta ekki endurgoldið þér en þú færð það endurgoldið í upprisu réttlátra.“
Vonsvikinn veitandi
15Þegar einn þeirra, er að borði sátu, heyrði þetta sagði hann við Jesú: „Sæll er sá sem situr til borðs í Guðs ríki.“
16Jesús sagði við hann: „Maður nokkur gerði mikla kvöldmáltíð og bauð mörgum. 17Er stundin kom að veislan skyldi vera sendi hann þjón sinn að segja þeim er boðnir voru: Komið, nú er allt tilbúið. 18En þeir tóku allir að afsaka sig einum munni. Hinn fyrsti sagði við hann: Ég hef keypt akur og verð að fara og líta á hann. Ég bið þig, haf mig afsakaðan. 19Annar sagði: Ég hef keypt fimm tvenndir akneyta og er á förum að reyna þau. Ég bið þig, haf mig afsakaðan. 20Og enn annar sagði: Konu hef ég eignast, ekki get ég komið.
21Þjónninn kom og tjáði herra sínum þetta. Þá reiddist húsbóndinn og sagði við þjón sinn: Far þú fljótt út á stræti og götur borgarinnar og leið inn hingað fátæka, örkumla, blinda og halta. 22Og þjónninn sagði: Herra, það er gert sem þú bauðst og enn er rúm. 23Þá sagði húsbóndinn við þjóninn: Far þú út um stíga og vegi og þrýstu á menn að koma inn svo að hús mitt fyllist. 24Því ég segi ykkur að enginn þeirra sem fyrst voru boðnir mun smakka kvöldmáltíð mína.“
Að segja skilið við allt
25Mikill fjöldi fólks var Jesú samferða. Hann sneri sér við og sagði við mannfjöldann: 26„Enginn getur komið til mín og orðið lærisveinn minn nema hann taki mig fram yfir föður og móður, maka og börn, bræður og systur og enda fram yfir eigið líf. 27Hver sem ber ekki sinn kross og fylgir mér getur ekki verið lærisveinn minn.
28Hver yðar sest ekki fyrst við ef hann ætlar að reisa turn og reiknar kostnaðinn, hvort hann eigi nóg til að ljúka verkinu? 29Ella má svo fara að hann leggi undirstöðu en fái ekki lokið við og allir, sem það sjá, taki að spotta hann 30og segja: Þessi maður fór að byggja en gat ekki lokið.
31Eða hvaða konungur fer með hernaði gegn öðrum konungi og sest ekki fyrst við og ráðgast um hvort honum sé fært að mæta með tíu þúsundum þeim er fer á móti honum með tuttugu þúsundir? 32Sé svo ekki gerir hann menn á fund andstæðingsins meðan hann er enn langt undan og spyr um friðarkosti. 33Þannig getur enginn yðar verið lærisveinn minn nema hann segi skilið við allt sem hann á.
34Saltið er gott en ef saltið sjálft dofnar með hverju á þá að krydda það? 35Hvorki er það hæft á tún né taðhaug. Því er fleygt. Hver sem eyru hefur að heyra, hann heyri.“

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy