YouVersion Logo
Search Icon

Jobsbók 2

2
Síðari prófraun Jobs
1Dag nokkurn bar svo til að synir Guðs komu og gengu fyrir Drottin og kom Satan einnig með þeim og gekk fyrir Drottin. 2Drottinn spurði Satan: „Hvaðan kemur þú?“ Satan svaraði Drottni og sagði: „Ég var á ferðalagi um jörðina.“ 3Þá spurði Drottinn Satan: „Veittir þú athygli Job, þjóni mínum? Enginn maður á jörðinni er jafnráðvandur og réttlátur og hann. Hann óttast Guð og forðast illt. Hann er staðfastur í ráðvendni sinni þó að þú hafir að tilefnislausu egnt mig gegn honum til að gera út af við hann.“ 4Satan svaraði Drottni og sagði: „Nær er skinnið en skyrtan. Menn láta allt sem þeir eiga fyrir líf sitt. 5En réttu út hönd þína og snertu hold hans og bein. Þá mun hann vissulega formæla þér upp í opið geðið.“ 6Þá sagði Drottinn við Satan: „Hann er í þínum höndum en þú skalt þyrma lífi hans.“
7Síðan fór Satan frá augliti Drottins og sló Job illkynjuðum kaunum frá hvirfli til ilja. 8Hann tók sér þá leirbrot til að skafa sig með þar sem hann sat á öskuhaugnum. 9Þá sagði kona hans við hann: „Ertu enn staðfastur í ráðvendni þinni? Formæltu Guði og farðu að deyja.“ 10Hann svaraði henni: „Þú talar eins og fávís kona. Ættum við að þiggja það sem er gott frá Guði en ekki það sem er illt?“
Þrátt fyrir allt þetta syndgaði Job ekki með vörum sínum.
11Þegar þrír vinir Jobs fréttu um allt það böl sem hann hafði orðið fyrir héldu þeir hver um sig að heiman, Elífas frá Teman, Bildad frá Súa og Sófar frá Naama. Þeir tóku sig saman um að fara og sýna honum samúð og hugga hann. 12En þegar þeir hófu upp augu sín álengdar gátu þeir ekki þekkt hann. Þá fóru þeir að gráta hástöfum, rifu klæði sín og jusu mold yfir höfuð sér hátt í loft upp. 13Síðan sátu þeir hjá honum á jörðinni sjö daga og sjö nætur. Enginn þeirra yrti á hann því að þeir sáu að kvöl hans var mikil.

Currently Selected:

Jobsbók 2: BIBLIAN07

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in