YouVersion Logo
Search Icon

Jóhannesarguðspjall 7

7
Jesús og bræður hans
1Eftir þetta fór Jesús um Galíleu. Hann vildi ekki fara um Júdeu sökum þess að ráðamenn Gyðinga#7.1 Orðrétt: Gyðingar. þar sátu um líf hans.
2Nú fór laufskálahátíð Gyðinga í hönd. 3Þá sögðu bræður Jesú við hann: „Flyt þig héðan og farðu til Júdeu til þess að lærisveinar þínir sjái líka þau verk sem þú gerir. 4Sá sem vill verða alkunnur starfar ekki í leynum. Fyrst þú vinnur slík verk þá opinbera sjálfan þig heiminum.“ 5Því jafnvel bræður hans trúðu ekki á hann.
6Jesús sagði við þá: „Minn tími er enn ekki kominn en ykkur hentar allur tími. 7Heimurinn getur ekki hatað ykkur. Mig hatar hann af því ég vitna um að verk hans séu vond. 8Þið skuluð fara upp eftir á hátíðina. Ég fer ekki til þessarar hátíðar því minn tími er enn ekki kominn.“ 9Þetta sagði hann þeim og var kyrr í Galíleu.
Jesús á laufskálahátíð
10Þegar bræður Jesú voru farnir upp eftir til hátíðarinnar fór hann samt líka upp eftir, ekki svo menn vissu heldur nánast á laun. 11Gyðingar voru að leita að honum á hátíðinni og spurðu hvar hann væri. 12Manna á meðal var margt um hann talað. Sumir sögðu: „Hann er góður,“ en aðrir sögðu: „Nei, hann leiðir fjöldann í villu.“ 13Þó talaði enginn opinskátt um hann af ótta við yfirvöldin.#7.13 Orðrétt: Gyðinga.
14Er hátíðin var þegar hálfnuð fór Jesús upp í helgidóminn og tók að kenna. 15Menn#7.15 Orðrétt: Gyðingar. urðu undrandi og sögðu: Hvernig getur þessi maður verið svona lærður? Hann hefur ekki notið fræðslu.“
16Jesús svaraði þeim: „Kenning mín er ekki mín heldur hans er sendi mig. 17Sá sem vill gera vilja hans mun komast að raun um hvort kenningin er frá Guði eða ég tala af sjálfum mér. 18Sá sem talar af sjálfum sér leitar eigin heiðurs, en sá sem leitar heiðurs þess er sendi hann er sannorður og í honum ekkert ranglæti. 19Gaf Móse yður ekki lögmálið? Samt heldur enginn yðar lögmálið. Hví sitjið þér um líf mitt?“
20Fólkið ansaði: „Þú ert haldinn illum anda. Hver situr um líf þitt?“
21Jesús svaraði því: „Eitt verk gerði ég og þér undrist það öll. 22Móse gaf yður umskurnina, sem er að vísu ekki frá honum heldur feðrunum, og þér umskerið syni yðar jafnvel á hvíldardegi. 23Fyrst drengur er umskorinn á hvíldardegi til þess að lögmál Móse verði ekki brotið, hví reiðist þér mér að ég gerði manninn allan heilan á hvíldardegi? 24Dæmið ekki eftir útliti, dæmið réttlátan dóm.“
Hver er Jesús?
25Þá sögðu nokkrir Jerúsalembúar: „Er þetta ekki sá sem þeir sitja um að lífláta? 26Og nú er hann að tala á almannafæri og þeir segja ekkert við hann. Skyldu nú höfðingjarnir hafa komist að raun um að hann sé Kristur? 27Nei, við vitum hvaðan þessi maður er. Þegar Kristur kemur veit enginn hvaðan hann er.“
28Jesús var að kenna í helgidóminum og nú kallaði hann: „Bæði þekkið þið mig og vitið hvaðan ég er. Þó er ég ekki kominn á eigin vegum. En sá er sannur sem sendi mig og hann þekkið þið ekki. 29Ég þekki hann því ég er frá honum og hann sendi mig.“ 30Nú ætluðu þeir að grípa hann en enginn lagði hendur á hann því stund hans var ekki enn komin. 31En af alþýðu manna tóku margir að trúa á hann og sögðu: „Mun Kristur gera fleiri tákn þegar hann kemur en þessi maður hefur gert?“
32Farísear heyrðu að fólk var að skrafa þetta um hann og æðstu prestar og farísear sendu þjóna að taka hann höndum. 33Þá sagði Jesús: „Enn verð ég hjá ykkur skamma stund og þá fer ég aftur til þess sem sendi mig. 34Þið munuð leita mín og eigi finna. Þið getið ekki komist þangað sem ég er.“
35Þá sögðu menn#7.35 Orðrétt: Gyðingar. sín á milli: „Hvert skyldi hann ætla að fara svo að við finnum hann ekki? Hann ætlar þó ekki að fara til Gyðinga sem dreifðir eru meðal Grikkja og kenna Grikkjum? 36Hvað var hann að segja: Þið munuð leita mín og eigi finna og þið getið ekki komist þangað sem ég er?“
Lækir lifandi vatns
37Síðasta daginn, hátíðardaginn mikla, stóð Jesús þar og kallaði: „Ef nokkurn þyrstir þá komi hann til mín og drekki. 38Frá hjarta þess sem trúir á mig munu renna lækir lifandi vatns, eins og ritningin segir.“ 39Þarna átti hann við andann er þau skyldu hljóta sem á hann trúa. Því enn var andinn ekki gefinn þar eð Jesús var ekki enn dýrlegur orðinn.
Menn greindi á
40Þá sögðu nokkrir úr mannfjöldanum sem hlýddu á þessi orð: „Þessi er sannarlega spámaðurinn.“
41Aðrir mæltu: „Hann er Kristur.“ En sumir sögðu: „Mundi Kristur þá koma frá Galíleu? 42Hefur ekki ritningin sagt að Kristur komi af kyni Davíðs og frá Betlehem, þorpinu þar sem Davíð var?“ 43Þannig greindi menn á um hann. 44Nokkrir þeirra vildu grípa hann en þó lagði enginn hendur á hann.
Höfðingjar og farísear
45Nú komu þjónarnir til æðstu prestanna og faríseanna sem sögðu við þá: „Hvers vegna komuð þið ekki með hann?“
46Þjónarnir svöruðu: „Aldrei hefur nokkur maður talað þannig.“
47Þá sögðu farísearnir: „Létuð þið þá einnig leiðast afvega? 48Ætli nokkur af höfðingjunum hafi farið að trúa á hann eða þá af faríseum? 49Þessi almúgi sem veit ekkert í lögmálinu, hann er bölvaður!“
50Nikódemus, sem kom til hans fyrrum og var einn af þeim, segir við þá: 51„Mundi lögmál okkar dæma mann nema hann sé yfirheyrður áður og að því komist hvað hann hefur aðhafst?“ 52Þeir svöruðu honum: „Ert þú nú líka frá Galíleu? Gáðu að og sjáðu að enginn spámaður kemur úr Galíleu.“ 53[Nú fór hver heim til sín.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in