YouVersion Logo
Search Icon

Jóhannesarguðspjall 10

10
Líkingin um hirðinn
1„Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem kemur ekki um dyrnar inn í sauðabyrgið heldur fer yfir annars staðar, hann er þjófur og ræningi 2en sá sem kemur inn um dyrnar er hirðir sauðanna. 3Dyravörðurinn lýkur upp fyrir honum og sauðirnir heyra raust hans og hann kallar á sína sauði með nafni og leiðir þá út. 4Þegar hann hefur látið út alla sauði sína fer hann á undan þeim og þeir fylgja honum af því að þeir þekkja raust hans. 5En ókunnugum fylgja þeir ekki, heldur flýja frá honum því þeir þekkja ekki raust ókunnugra.“
6Þessa líkingu sagði Jesús þeim. En menn skildu ekki hvað það þýddi sem hann var að tala við þá.
Jesús, góði hirðirinn
7Því sagði Jesús aftur: „Sannlega, sannlega segi ég yður: Ég er dyr sauðanna. 8Allir þeir sem á undan mér komu eru þjófar og ræningjar enda hlýddu sauðirnir þeim ekki. 9Ég er dyrnar. Sá sem kemur inn um mig mun frelsast og hann mun ganga inn og út og finna haga. 10Þjófurinn kemur ekki nema til að stela og slátra og eyða. Ég er kominn til þess að þeir hafi líf, líf í fyllstu gnægð.
11Ég er góði hirðirinn. Góði hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauðina. 12Sá sem er leigður og hvorki er hirðir né á sauðina, hann flýr og yfirgefur sauðina þegar hann sér úlfinn koma og úlfurinn hremmir þá og tvístrar þeim. 13Enda gætir hann sauðanna aðeins fyrir borgun og er ekkert annt um þá. 14Ég er góði hirðirinn og þekki mína og mínir þekkja mig 15eins og faðirinn þekkir mig og ég þekki föðurinn. Ég legg líf mitt í sölurnar fyrir sauðina. 16Ég á líka aðra sauði sem eru ekki úr þessu sauðabyrgi. Þá ber mér einnig að leiða, þeir munu heyra raust mína. Og það verður ein hjörð, einn hirðir. 17Faðirinn elskar mig af því að ég legg líf mitt í sölurnar til þess að ég fái það aftur. 18Enginn tekur það frá mér, ég legg það sjálfur í sölurnar. Ég hef vald til að leggja það í sölurnar og vald til að taka það aftur. Þetta hefur faðir minn boðið mér.“
19Þessi orð urðu til þess að aftur kom upp ágreiningur með mönnum#10.19 Orðrétt: Gyðingum. um Jesú. 20Margir sögðu: „Hann hefur illan anda og er genginn af vitinu. Hvað eruð þið að hlusta á hann?“
21Aðrir sögðu: „Þessi orð mælir enginn sá sem hefur illan anda. Mundi illur andi geta gefið blindum sýn?“
Ég og faðirinn erum eitt
22Nú var vígsluhátíðin í Jerúsalem og kominn vetur. 23Jesús gekk um í súlnagöngum Salómons í helgidóminum. 24Þá söfnuðust menn#10.24 Orðrétt: Gyðingar. um hann og sögðu: „Hve lengi lætur þú okkur í óvissu? Ef þú ert Kristur, þá segðu okkur það berum orðum.“
25Jesús svaraði þeim: „Ég hef sagt yður það en þér trúið ekki. Verkin, sem ég geri í nafni föður míns, vitna um mig 26en þér trúið ekki því að þér eruð ekki úr hópi sauða minna. 27Mínir sauðir heyra raust mína og ég þekki þá og þeir fylgja mér. 28Ég gef þeim eilíft líf og þeir skulu aldrei að eilífu glatast og enginn skal slíta þá úr hendi minni. 29Faðir minn, sem hefur gefið mér þá, er meiri en allir#10.29 Annar lesháttur: Það sem faðir minn hefur gefið mér er öllu öðru meira. og enginn getur slitið þá úr hendi föðurins. 30Ég og faðirinn erum eitt.“
31Menn#10.31 Orðrétt: Gyðingar. tóku aftur upp steina til að grýta hann. 32Jesús mælti: „Ég hef sýnt yður mörg góð verk frá föður mínum. Fyrir hvert þeirra verka viljið þér grýta mig?“
33Þeir#10.33 Orðrétt: Gyðingar. svöruðu honum: „Við grýtum þig ekki fyrir góð verk heldur fyrir guðlast. Þú gerir sjálfan þig að Guði þótt þú sért aðeins maður.“
34Jesús svaraði þeim: „Er ekki skrifað í lögmáli yðar: Ég hef sagt: Þér eruð guðir? 35– og ritningin verður ekki felld úr gildi. Ef lögmálið nefnir þá guði sem Guðs orð kom til 36segið þér þá við mig, sem faðirinn helgaði og sendi í heiminn, að ég guðlasti af því ég sagði: Ég er sonur Guðs? 37Ef ég vinn ekki verk föður míns skuluð þér ekki trúa mér 38en ef ég vinn þau, þá trúið verkunum þótt þér trúið mér ekki svo að þér skiljið og vitið að faðirinn er í mér og ég í föðurnum.“
39Nú reyndu þeir aftur að grípa hann en hann gekk úr greipum þeirra.
40Jesús fór aftur burt yfir um Jórdan þangað sem Jóhannes hafði fyrrum verið að skíra og var þar um kyrrt. 41Margir komu til hans og sögðu: „Víst gerði Jóhannes ekkert tákn en allt er það satt sem hann sagði um þennan mann.“ 42Og þarna tóku margir trú á hann.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in