YouVersion Logo
Search Icon

Fyrsta Mósebók 5

5
Ættartala frá Adam til Nóa
1Þetta er ættartala Adams. Þegar Guð skapaði manninn gerði Guð hann í líkingu sinni. 2Hann skapaði þau karl og konu. Hann blessaði þau og kallaði þau menn er þau voru sköpuð.
3Adam var hundrað og þrjátíu ára er hann gat son líkan sér, eftir sinni mynd, og nefndi hann Set. 4Eftir fæðingu Sets lifði Adam í átta hundruð ár og gat syni og dætur. 5Allir ævidagar Adams urðu níu hundruð og þrjátíu ár. Þá dó hann.
6Set var hundrað og fimm ára er hann gat Enos. 7Eftir fæðingu Enosar lifði Set í átta hundruð og sjö ár og gat syni og dætur. 8Ævidagar Sets urðu níu hundruð og tólf ár. Þá dó hann.
9Enos var níutíu ára er hann gat Kenan. 10Eftir fæðingu Kenans lifði Enos í átta hundruð og fimmtán ár og gat syni og dætur. 11Allir dagar Enosar urðu níu hundruð og fimm ár. Þá dó hann.
12Kenan var sjötíu ára er hann gat Mahalalel. 13Eftir fæðingu Mahalalels lifði Kenan í átta hundruð og fjörutíu ár og gat syni og dætur. 14Allir dagar Kenans urðu níu hundruð og tíu ár. Þá dó hann.
15Mahalalel var sextíu og fimm ára er hann gat Jared. 16Eftir fæðingu Jareds lifði Mahalalel í átta hundruð og þrjátíu ár og gat syni og dætur. 17Ævidagar Mahalalels urðu átta hundruð níutíu og fimm ár. Þá dó hann.
18Jared var hundrað sextíu og tveggja ára er hann gat Enok. 19Eftir fæðingu Enoks lifði Jared í átta hundruð ár og gat syni og dætur. 20Allir dagar Jareds urðu níu hundruð sextíu og tvö ár. Þá dó hann.
21Enok var sextíu og fimm ára er hann gat Metúsala. 22Eftir fæðingu Metúsala gekk Enok með Guði í þrjú hundruð ár og gat syni og dætur. 23Ævidagar Enoks urðu þrjú hundruð sextíu og fimm ár. 24Enok gekk með Guði, þá hvarf hann því að Guð tók hann.
25Metúsala var hundrað áttatíu og sjö ára er hann gat Lamek. 26Eftir fæðingu Lameks lifði Metúsala í sjö hundruð áttatíu og tvö ár og gat syni og dætur. 27Ævidagar Metúsala urðu níu hundruð sextíu og níu ár. Þá dó hann.
28Lamek var hundrað áttatíu og tveggja ára er hann gat son. 29Hann nefndi hann Nóa og mælti: „Hann mun veita okkur styrk í erfiði og striti handa okkar á jörðinni sem Drottinn lýsti bölvun yfir.“ 30Eftir fæðingu Nóa lifði Lamek í fimm hundruð níutíu og fimm ár og gat syni og dætur. 31Ævidagar Lameks urðu sjö hundruð sjötíu og sjö ár. Þá dó hann.
32Nói var fimm hundruð ára er hann gat Sem, Kam og Jafet.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy