Daníel 12
12
1Mikael, leiðtoginn mikli,
sem verndar syni þjóðar þinnar,
mun þá birtast.
Verða þá slíkir hörmungatímar
að eigi verður við jafnað frá því að þjóðin varð til.
Á þeim tíma mun þjóð þín bjargast,
allir þeir sem skráðir eru í bókinni.
2Margir þeirra sem hvíla í dufti jarðar
munu upp vakna,
sumir til eilífs lífs,
aðrir til lasts og ævarandi smánar.
3Hinir vitru munu skína eins og björt himinhvelfing
og þeir sem beina mörgum til réttlætis
verða sem stjörnur um aldur og ævi.
4En leyndu þessum orðum, Daníel, og innsiglaðu bókina þar til dregur að endalokum. Menn munu leita víða og skilningur þeirra mun aukast.“
5Ég, Daníel, leit þá upp og sá hvar tveir aðrir stóðu, annar mín megin fljótsins, hinn handan þess. 6Annar þeirra sagði við línklædda manninn sem stóð yfir fljótinu: „Hve langt mun þar til þessum furðuverkum linnir?“ 7Þá heyrði ég að línklæddi maðurinn, sem stóð yfir fljótinu, sór við Hinn eilífa, fórnaði hægri og vinstri hendi til himins og sagði: „Ein tíð, tvær tíðir og hálf tíð; þegar máttur hinnar heilögu þjóðar er brotinn á bak aftur mun allt þetta ganga eftir.“
8Ég hlustaði á en skildi ekki og spurði: „Herra minn, hverjar verða lyktirnar?“ 9Hann svaraði: „Farðu, Daníel, því að þessi orð eru leyndardómur, innsigluð allt til endalokanna. 10Margir verða skírðir, reyndir og hreinsaðir, illmennin munu fremja ranglæti og enginn hinna ranglátu mun skilja neitt; en hinir vitru munu skilja það. 11Frá því að daglega fórnin verður afnumin og viðurstyggð eyðingarinnar upp reist munu líða eitt þúsund tvö hundruð og níutíu dagar. 12Sæll er sá sem þolgóður þreyr uns eitt þúsund þrjú hundruð þrjátíu og fimm dagar eru liðnir. 13En gakk þú til hvíldar. Þú munt rísa upp og taka við hlut þínum við endalok daganna.“
Currently Selected:
Daníel 12: BIBLIAN07
Highlight
Share
Copy

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007