Síðara Tímóteusarbréf 3
3
Á síðustu dögum
1En það skaltu vita að á síðustu dögum munu koma örðugar tíðir. 2Menn verða sérgóðir, fégjarnir, raupsamir, hrokafullir, illmálgir, óhlýðnir foreldrum, vanþakklátir, guðlausir, 3kærleikslausir, ósáttfúsir, rógberandi, taumlausir, grimmir og andsnúnir öllu góðu, 4sviksamir, framhleypnir, drambsamir og elska munaðarlífið meira en Guð. 5Þeir hafa á sér yfirskin guðhræðslunnar en afneita krafti hennar. Forðastu þá.
6Úr hópi þeirra eru mennirnir sem smeygja sér inn á heimilin og véla kvensniftir sem syndum eru hlaðnar og leiðast af margvíslegum fýsnum. 7Þær eru alltaf að reyna að læra en geta aldrei komist til þekkingar á sannleikanum. 8Eins og þeir Jannes og Jambres#3.8 Nöfn töframanna sem nefndir eru í 2Mós 7.11, 22. stóðu í gegn Móse þannig standa þessir menn í gegn sannleikanum. Þeir eru menn hugspilltir og óhæfir í trúnni. 9En þeim verður ekki ágengt því að heimska þeirra verður hverjum manni augljós eins og líka heimska hinna varð.
Staðfesta
10En þú hefur fylgt mér í kenningu, hegðun, ásetningi, trú, langlyndi, kærleika, þolgæði 11í ofsóknum og þjáningum, slíkum sem ég varð fyrir í Antíokkíu, Íkóníum og Lýstru. Slíkar ofsóknir þoldi ég og Drottinn frelsaði mig úr þeim öllum.
12Enda verða allir ofsóttir sem lifa vilja guðrækilega í Kristi Jesú. 13En vondir menn og svikarar munu magnast í vonskunni, villa aðra og villast sjálfir.
14En halt þú stöðuglega við það sem þú hefur numið og hefur fest trú á þar eð þú veist af hverjum þú hefur numið það. 15Þú hefur frá blautu barnsbeini þekkt heilagar ritningar. Þær geta veitt þér speki til sáluhjálpar fyrir trúna á Krist Jesú.
16Sérhver ritning er innblásin af Guði#3.16 Eða: Sérhver ritning, innblásin af Guði, er … og nytsöm til fræðslu, umvöndunar, leiðréttingar og menntunar í réttlæti 17til þess að sá sem trúir á Guð sé albúinn og hæfur ger til sérhvers góðs verks.
Currently Selected:
Síðara Tímóteusarbréf 3: BIBLIAN07
Highlight
Share
Copy

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007