Síðara Korintubréf 2
2
1En það ásetti ég mér að koma ekki aftur til ykkar með hryggð. 2Ef ég hryggi ykkur, hver er þá sá sem gleður mig? Sá sem ég er að hryggja? 3Ég skrifaði einmitt þetta til þess að þeir sem áttu að gleðja mig skyldu ekki hryggja mig er ég kæmi. Ég hef það traust til ykkar allra að gleði mín sé gleði ykkar allra. 4Af mikilli þrengingu og hjartans trega skrifaði ég ykkur með mörgum tárum, ekki til þess að þið skylduð hryggjast heldur til þess að þið skylduð komast að raun um þann mikla kærleik sem ég ber til ykkar.
Fyrirgefning og huggun
5En ef nokkur hefur orðið til þess að valda öðrum hryggð, þá hefur hann ekki aðeins hryggt mig heldur að vissu leyti hryggt ykkur öll svo að ég geri ekki enn meira úr því. 6Látið þeim manni nægja þá refsingu sem allflest ykkar hafa veitt honum. 7Því ættuð þið nú öllu heldur að fyrirgefa honum og uppörva hann til þess að hann sökkvi ekki niður í allt of mikla hryggð. 8Þess vegna bið ég ykkur að sýna honum kærleika í reynd. 9Því að í þeim tilgangi skrifaði ég ykkur, til þess að ég fengi að vita hvernig þið reyndust, hvort þið væruð hlýðin í öllu. 10En hverjum sem þið fyrirgefið, þeim fyrirgef ég líka. Og það sem ég hef fyrirgefið, hafi ég þurft að fyrirgefa nokkuð, þá hefur það verið vegna ykkar fyrir augliti Krists 11til þess að Satan nái ekki tökum á okkur því að ekki er okkur ókunnugt um vélráð hans.
Óslitin sigurför
12En er ég kom til Tróas til að boða fagnaðarerindið um Krist og Drottinn hafði þar opnað mér dyr til að starfa, 13þá hafði ég enga eirð í mér af því að ég hitti ekki Títus, bróður minn, svo að ég kvaddi og fór til Makedóníu.
14En Guði séu þakkir sem fer með mig í óslitinni sigurför Krists og lætur mig alls staðar breiða út þekkinguna um sig eins og þekkan ilm. 15Því að Guði til dýrðar er ég ilmur sem flyt Krist bæði til þeirra sem frelsast og til þeirra sem glatast. 16Þeim sem glatast er ég banvænn daunn til dauða, hinum lífgandi ilmur til lífs. Og hver er til þessa hæfur? 17Ekki er ég eins og hinir mörgu er pranga með Guðs orð heldur flyt ég það af hreinum huga frá Guði frammi fyrir augliti Guðs með því að ég er í samfélagi við Krist.
Currently Selected:
Síðara Korintubréf 2: BIBLIAN07
Highlight
Share
Copy

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in
Icelandic DC Bible © Icelandic Bible Society, 2007