Orðskviðir Salómons Davíðssonar, konungs í Ísrael,
til þess að menn nemi visku og leiðsögn
og læri að meta orð skynseminnar,
til þess að menn hljóti viturlega leiðsögn,
réttsýni, sanngirni og heiðarleika,
til þess að þeir verði óreyndum til ráðgjafar
og veiti unglingum þekkingu og forsjálni