1
Matteusarguðspjall 5:15-16
Biblían (2007)
Ekki kveikja menn heldur ljós og setja undir mæliker heldur á ljósastiku og þá lýsir það öllum í húsinu. Þannig lýsi ljós yðar meðal mannanna að þeir sjái góð verk yðar og vegsami föður yðar sem er á himnum.
Compare
Explore Matteusarguðspjall 5:15-16
2
Matteusarguðspjall 5:14
Þér eruð ljós heimsins. Borg, sem á fjalli stendur, fær ekki dulist.
Explore Matteusarguðspjall 5:14
3
Matteusarguðspjall 5:8
Sælir eru hjartahreinir því að þeir munu Guð sjá.
Explore Matteusarguðspjall 5:8
4
Matteusarguðspjall 5:6
Sælir eru þeir sem hungrar og þyrstir eftir réttlætinu því að þeir munu saddir verða.
Explore Matteusarguðspjall 5:6
5
Matteusarguðspjall 5:44
En ég segi yður: Elskið óvini yðar og biðjið fyrir þeim sem ofsækja yður.
Explore Matteusarguðspjall 5:44
6
Matteusarguðspjall 5:3
„Sælir eru fátækir í anda því að þeirra er himnaríki.
Explore Matteusarguðspjall 5:3
7
Matteusarguðspjall 5:9
Sælir eru friðflytjendur því að þeir munu Guðs börn kallaðir verða.
Explore Matteusarguðspjall 5:9
8
Matteusarguðspjall 5:4
Sælir eru syrgjendur því að þeir munu huggaðir verða.
Explore Matteusarguðspjall 5:4
9
Matteusarguðspjall 5:10
Sælir eru þeir sem ofsóttir eru fyrir réttlætis sakir því að þeirra er himnaríki.
Explore Matteusarguðspjall 5:10
10
Matteusarguðspjall 5:7
Sælir eru miskunnsamir því að þeim mun miskunnað verða.
Explore Matteusarguðspjall 5:7
11
Matteusarguðspjall 5:11-12
Sæl eruð þér þá er menn smána yður, ofsækja og ljúga á yður öllu illu mín vegna. Gleðjist og fagnið því að laun yðar eru mikil á himnum. Þannig ofsóttu þeir spámennina sem voru á undan yður.
Explore Matteusarguðspjall 5:11-12
12
Matteusarguðspjall 5:5
Sælir eru hógværir því að þeir munu jörðina erfa.
Explore Matteusarguðspjall 5:5
13
Matteusarguðspjall 5:13
Þér eruð salt jarðar. Ef saltið dofnar, með hverju á að selta það? Það er þá til einskis nýtt, menn fleygja því og troða undir fótum.
Explore Matteusarguðspjall 5:13
14
Matteusarguðspjall 5:48
Verið því fullkomin eins og faðir yðar himneskur er fullkominn.
Explore Matteusarguðspjall 5:48
15
Matteusarguðspjall 5:37
En þegar þér talið sé já yðar já og nei sé nei. Það sem umfram er kemur frá hinum vonda.
Explore Matteusarguðspjall 5:37
16
Matteusarguðspjall 5:38-39
Þér hafið heyrt að sagt var: Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn. En ég segi yður: Rísið ekki gegn þeim sem gerir yður mein. Nei, slái einhver þig á hægri kinn þá bjóð honum einnig hina.
Explore Matteusarguðspjall 5:38-39
17
Matteusarguðspjall 5:29-30
Ef hægra auga þitt tælir þig til falls þá ríf það úr og kasta frá þér. Betra er þér að einn lima þinna glatist en öllum líkama þínum verði kastað í helvíti. Ef hægri hönd þín tælir þig til falls þá sníð hana af og kasta frá þér. Betra er þér að einn lima þinna glatist en allur líkami þinn fari til helvítis.
Explore Matteusarguðspjall 5:29-30
Home
Bible
Plans
Videos